Lífið

Svipta hulunni af þema Met Gala

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Met Gala. stærsti tískuviðburður ársins fer fram 1. maí næstkomandi. Þar verður hönnuðurinn Karl Lagerfeld heiðraður.
Met Gala. stærsti tískuviðburður ársins fer fram 1. maí næstkomandi. Þar verður hönnuðurinn Karl Lagerfeld heiðraður. Getty/ Dimitrios Kambouris/Sean Zanni/Patrick McMullan

Óhætt er að segja að hinn árlegi Met Gala viðburður sé einn stærsti tískuviðburður ársins. Á hverju ári er valið sérstakt þema fyrir viðburðinn sem skærustu stjörnur heims klæða sig eftir. Það hafa því eflaust margir beðið spenntir eftir því að fá að vita hvaða þema verður fyrir valinu fyrir þennan stórviðburð á næsta ári.

Skipuleggjendur Met Gala tilkynntu í dag að þemað verði Karl Lagerfeld: A Line of Beauty. Lagerfeld var listrænn stjórnandi Chanel tískurisans. Hann lést úr krabbameini fyrir þremur árum síðan, þá áttatíu og fimm ára gamall.

Karl Lagerfeld var einn þekktasti hönnuður heims. Hvíta hárið og svört sólgleraugun voru hans sérkenni.Getty/Bertland Rindoff

Yfir sextíu og fimm ára langur ferill

Markmið þemans er að varpa ljósi á þær listrænu aðferðir og þá hátísku hugmyndafræði sem liggur að baki allri hönnun Lagerfelds.

Lagerfeld starfaði sem hönnuður í meira en sextíu og fimm ár. Á ferlinum vann hann með mörgum af stærstu tískuhúsum heims, ásamt því að hanna undir sínu eigin merki. Hann gaf út sína síðustu línu árið 2019, árið sem hann lést.

Skærustu stjörnurnar í dýrustu flíkunum

Viðburðurinn fer alltaf fram á fyrsta mánudegi maí mánaðar á Metropolitian safninu í New York. Þar mætast listir, menning og tíska á óaðfinnanlegan hátt og stórstjörnur heimsins ganga rauða dregilinn í einhverjum dýrustu flíkum heims. Aðeins vel valdar stórstjörnur sem fá boð á viðburðinn.

Samhliða viðburðinum mun opna sýning á Metropolitian safninu þar sem um hundrað og fimmtíu flíkur hannaðar af Lagerfeld verða til sýnis.

Þrátt fyrir að Met Gala viðburðurinn sjálfur sé aðeins fyrir útvalda, verður sýningin aðgengileg almenningi út júlí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.