Apple slær ekki feilnótu með iPhone 14 Epli 23. september 2022 08:56 Apple þróar nýja eiginleika sem byggja á þrautreyndri virkni og umgjörð tækjanna. Nýju símarnir eru þar engin undantekning. Epli.is Apple leggur sig sífellt fram við að bæta viðmót og upplifun notanda og eru nýju símarnir iPhone 14 og 14 Pro stútfullir af frábærum eiginleikum. Meðal annars eru þeir búnir bestu rafhlöðuendingu sem sést hefur í iPhone, háþróuðu tvöföldu myndavélakerfi og árekstrarskynjara með sjálfvirku neyðarboði. Í boði eru fimm fallegir litir eins og ljósgull, ljósblár og svarblár.
Þessi landslagsmynd er tekin á iPhone 14 Pro. iPhone er eitt þekktasta vörumerki í heiminum og hefur náð þeim árangri með stanslausri þróun og betrumbótum í gegnum tíðina. Hönnunin er stór partur og nær fyrirtækið að þróa nýja eiginleika sem byggja á þrautreyndri virkni og umgjörð tækjanna. Nýju símarnir eru þar engin undantekning og þetta er það helsta: iPhone 14 hefur fengið góða uppfærslu hvað varðar myndavélar, eins og Action mode sem virkjar eina öflugustu hristivörn í snjallsímum í dag. iPhone 14 Pro hefur fengið nýja öfluga A16 flögu, enn bjartari skjá sem er alltaf virkur (Always-On), 48MP aðalmyndavél og stærri myndaflögur sem bætir ljósnæmni til muna. Nýtt Truetone flash stillir sig sérstaklega eftir myndefni. Báðar tegundir hafa að geyma eina öflugustu hristivörn sem fyrirfinnst í símum í dag, nú með autofókus á frammyndavél, snjallari myndavélatækni, betri rafhlöðuendingu og ekki má gleyma öryggislausnum á borð við bílaárekstursskynjun. Stærri skjár og endingarbetri rafhlaða iPhone 14 Plus er svar Apple við aukinni eftirspurn viðskiptavina eftir stærri skjá en 14 Plus hefur 6,7" skjá. Áður var eingöngu hægt að kaupa slíka stærð í Pro-útgáfu. Staðfestur útgáfudagur á 14 Plus verður tilkynntur bráðlega. Þá er rafhlöðuending iPhone í stöðugri þróun og nú næst enn betri ending með tilkomu iPhone 14 og 14 Pro. Ef engin viðbrögð verða hjá notanda símans sem lendir í slysi, hefur síminn sjálfkrafa samband með neyðarboði í viðbragðsaðila. Byltingarkenndur árekstrarskynjari iPhone 14 skynjar, heyrir og mælir aðstæður ef notandi lendir í árekstri með hjálp tækni á borð við hristiskynjara, hljóðnema, hröðunarmæli og loftþrýstiskynjara sem skynjar þegar loftpúðar þenjast út. Ef engin viðbrögð verða hjá notanda símans, hefur hann sjálfkrafa samband með neyðarboði í viðbragðsaðila. Skref í átt að kolefnishlutleysi Apple lætur sig umhverfismál varða og stefnir á kolefnishlutleysi í allri framleiðslu fyrir árið 2030. iPhone 14 er skref í þeirri þróun en allir góðmálmar í símanum eru 100% endurunnir og ytri umbúðir eru plastlausar. Ef plast er notað er það 100% endurunnið. Arseník, kvikasilfur og fleiri eiturefni finnast ekki í iPhone 14. Til gamans má geta að orkunotkun Apple tækja hefur minnkað um 70 % frá árinu 2008.
Tækni Mest lesið Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent „Já veistu Gummi, þetta gæti verið eitthvað“ Atvinnulíf Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Viðskipti innlent Landsbankinn við Austurstræti falur Viðskipti innlent Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags Viðskipti innlent Hefja flug til Edinborgar og Malaga Viðskipti innlent Árni hættir sem forstjóri Húsasmiðjunnar Viðskipti innlent Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Viðskipti innlent Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent