Twitch bannar fjárhættuspilastreymi Bjarki Sigurðsson skrifar 22. september 2022 11:23 Flestir nota Twitch til að horfa á aðra spila tölvuleiki en nýlega fóru streymi af fólki stunda fjárhættuspil að verða vinsæl. Getty/Silas Stein Frá og með 18. október næstkomandi munu notendur streymissíðunnar Twitch ekki geta streymt frá því þegar þeir stunda fjárhættuspil á netinu, nema að vefsíðan sem þeir nota sé skráð í Bandaríkjunum. Fjárhættuspilastreymi hafa aukist gríðarlega í vinsældum upp á síðkastið.
Fjárhættuspilastreymi á Twitch náðu hápunkti sínum í síðasta mánuði þegar notendur eyddu alls 50 milljónum klukkutíma í að horfa á slík streymi, en að meðaltali voru sjötíu þúsund notendur að horfa á streymin að hverju sinni samkvæmt TwitchTracker. Þegar mest lét á í ágúst voru tæplega 300 þúsund áhorfendur að horfa. Flestir nota Twitch til að streyma frá og fylgjast með öðrum spilatölvuleiki en einnig eru dæmi um fólk sem notar vefsíðuna til að spjalla við aðdáendur sína eða sýna frá stórum viðburðum. Twitch hefur aftur á móti orðið fyrir mikilli gagnrýni vegna streymanna. Í rauninni getur hver sem er, sama hversu gamall hann er, horft á einhvern eyða tugum, jafnvel hundruðu, milljónum króna á örfáum klukkutímum. Þegar peningurinn hverfur er þó ekki mesta áhyggjuefnið, heldur er það þegar streymararnir vinna háar upphæðir. An update on gambling on Twitch. pic.twitter.com/lckNTY9Edo— Twitch (@Twitch) September 20, 2022 Það býr til falska von meðal áhorfenda, en oft á tíðum er þetta ekki alvöru peningur sem verið er að nota. Stærstu streymararnir eru í samstarfi með netspilavítunum og fá þar af leiðandi inneign. Til dæmis setur notandi inn þúsund krónur en fær tíu þúsund krónur inn á aðganginn. Þegar hann ætlar síðan að taka peninginn út fær hann einungis tíu prósent af upphæðinni. Einn vinsælasti fjárhættuspilastreymarinn kallar sig Trainwreck. Hann laðar iðulega að um fjörutíu þúsund áhorfendur á hverri stundu. Á níu mánuðum tókst honum að tapa 23 milljónum dollara, 3,2 milljörðum íslenskra króna, með því að stunda fjárhættuspil. Twitch birti í gær færslu á Twitter-síðu sinni þar sem tilkynnt var um að veitan ætlaði að banna streymi sem innihalda spilakassa, rúllettu eða teningaleiki á vefsíðum sem ekki eru skráðar í Bandaríkjunum. Vinsælasta vefsíðan, stake.com, sem er meðal annars framan á treyjum enska knattspyrnu liðsins Everton, er til að mynda skráð í Curacao og verður því ekki leyfileg. Trainwreck sjálfur var mjög harðorður á Twitter-síðu sinni eftir að hann frétti af áformum Twitch. Hann benti á misræmi þess að í boði verður að streyma frá því þegar verið er að veðja á íþróttaleiki. you want to see how corrupt these mother fuckers are, i'll start doing full time sports betting streams, and you'll see their silence now turn into full fledged bad faith activism, this has never had anything to do with "gambling" and their inconsistency shows that— Trainwreck (@Trainwreckstv) September 21, 2022
Fjárhættuspil Bandaríkin Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Himneskt ei meir Viðskipti innlent Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira