Lífið

Um­deild Love Is­land stjarna komin til Ís­lands

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Molly er mætt til landsins. Myndin er samsett.
Molly er mætt til landsins. Myndin er samsett. Skjáskot af Instagram, Getty/Ricky Vigil M

Breska fyrirsætan og Love Island stjarnan Molly-Mae Hague er á Íslandi um þessar mundir. Af myndum Molly á Instagram story að dæma kom hún til landsins fyrr í dag og virðist vera stödd hér vegna myndatöku.

Ef horft er til umfjöllunar miðilsins The Week má sjá að Hague hafi verið frekar umdeild í Bretlandi. Þá sérstaklega vegna forréttindablindu en hún er sögð hafa ítrekað að allir hefðu sömu tuttugu og fjóra tíma í sólarhringnum og gætu látið drauma sína rætast, „ef þeir vildu það nógu mikið.“ 

Á leiðinni til Íslands virðist Hague hafa verið spennt fyrir dvöl sinni á landinu ef marka má myndir hennar á Instagram story.

Spennt fyrir dvölinni.Skjáskot af Instagram Molly-Mae Hague.

Einnig heimsótti hún Hamborgarabúllu Tómasar fyrr í dag og segist hafa „þurft“ að fara inn á staðinn vegna nafnsins en kærasti Hague er hnefaleikakappinn og fyrrum Love Island þátttakandinn, Tommy Fury.

Mætt á Hamborgarabúllu Tómasar.Skjáskot af Instagram Molly-Mae Hague.

Notendanafn Hague á Instagram er @mollymae.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.