Lífið

Myndaveisla: Opnun 66°Norður á Hafnartorgi

Elísabet Hanna skrifar
Burkard hjónin mættu líkt og hjónin Elín og Guðni. Þau skemmtu sér öll vel meðal annarra góðra gesta.
Burkard hjónin mættu líkt og hjónin Elín og Guðni. Þau skemmtu sér öll vel meðal annarra góðra gesta. Jón Ragnar Jónsson

Fyrirtækið 66°Norður opnaði á dögunum sína elleftu verslun til þessa og er hún staðsett á Hafnartorgi á gamla hafnarsvæðinu. Basalt Arkitektar hönnuðu verslunina og var innblásturinn íslenskt veður og umhverfi.

Staðsetning verslunarinnar er bein skírskotun í arfleið 66°Norður en fyrirtækið hóf framleiðslu á skjólfatnaði fyrir sjómenn fyrir tæplega 100 árum síðan. 

Verslunin er hin glæsilegasta.Jón Ragnar Jónsson

Megin áherslan sjálfbærni

Í versluninni er að finna handverk eftir íslenska hönnuði og er megin áherslan á sjálfbærni. Samkvæmt talsmönnum merkisins er fyrirtækinu umhugað um náttúruna og hefur markvisst unnið í því að draga úr umhverfisáhrifum. Fyrirtækið hefur verið kolefnishlutlaust frá árinu 2019.

Íslensk flóra á búðarborðinu

Búðarborðið með íslenskri flóru hannaði Ragna Ragnars og stólar í mátunarklefum verslunarinnar kallast Ermi og eru hannaðir af Valdísi Steinars og Arnari Inga. 

Stólarnir eru gerðir úr ermum af dúnúlpum sem var ekki hægt að gera við og voru frumsýndir á Hönnunarmars fyrr á árinu. 

Listasýning í versluninni

Í versluninni má sjá skúlptúra sem eru hluti af sýningu listakonunnar Öldu Ægisdóttur, Útópíu. Megin áhersla 66°Norður, sjálfbærnin, endurspeglast í framleiðsluferli fyrirtækisins og vöruframboði.

Hér að neðan má sjá myndir frá opnuninni:

Allir voru vel vökvaðir.Jón Ragnar Jónsson
Gugusar skemmti gestum opnunarinnar.Jón Ragnar Jónsson
Hrefna Rós Hlynsdóttir, Vala Rún Magnúsdóttir, Þórunn Salka Pétursdóttir, Arnar Logi Hákonarson, Fannar Páll Aðalsteinsson og Líneik Þóra Bryndísardóttir.Jón Ragnar Jónsson
David Young, Sigrún Ásta Jörgensen og Daníel Kristinn Pétursson.Jón Ragnar Jónsson
Teitur og Fanney Ingvars.Jón Ragnar Jónsson
Alísa og Arnaldur.Jón Ragnar Jónsson
Hilmar Björnsson, Elín Konráðsdóttir, Guðni Bergsson.Jón Ragnar Jónsson
Helga Kristín og Daníel.Jón Ragnar Jónsson
Þorgbjörg Auður, Þórunn Edwald og Birgir Marteinsson.Jón Ragnar Jónsson
Andri Dungal og Ragnhildur.Jón Ragnar Jónsson
Arnar Ingi, Valdís Steinars og Hrefna.Jón Ragnar Jónsson
Guðrún Ólöf Hrafnsdóttir og Katrín Margrét.Jón Ragnar Jónsson
Helgi Ómars og Álfrún Pálsdóttir.Jón Ragnar Jónsson
Brosin voru á hverju andliti.Jón Ragnar Jónsson
Gleðin leyndi sér ekki.Jón Ragnar Jónsson
Gestir gátu skoðað list og hönnun.Jón Ragnar Jónsson
Gunnar Freyr, Chris Buckard og Breanne Buck.Jón Ragnar Jónsson
Glæsilegir gestir!Jón Ragnar Jónsson
Gói, Sveina og Ingibjörg Ýr.Jón Ragnar Jónsson
Allir skemmtu sér vel.Jón Ragnar Jónsson
Það var margt um manninn á opnuninni.Jón Ragnar Jónsson


Tengdar fréttir

Myndaveisla: Hjóluðu alla Vestfirði á fimm dögum

Hjólreiðakeppnin Westfjords Way Challenge fór fram í vikunni í fyrsta sinn en keppendur hjóluðu allan Vestfjarðarhringinn á einungis fimm dögum. 57 keppendur tóku þátt og komu þeir frá öllum heimshornum. 

Safarík myndaveisla frá frumsýningu Ávaxtakörfunnar

Ávaxtakarfan var frumsýnd um helgina í Hörpu þar sem sýningarnar munu fara fram. Einvalalið leikara fer með hlutverk ávaxtanna og grænmetisins og var líkt og Eyþór Ingi hafi aldrei gert annað en að leika sjálfumglaðan ananas.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.