Lífið

Elvis leikkonan Shonka Dukure fannst látin á heimili sínu

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Shonka Dukureh fór með hlutverk Big Mama Thornton
Shonka Dukureh fór með hlutverk Big Mama Thornton Warner Bros

Leik- og tónlistarkonan Shonka Dukureh, sem fór með hlutverk Big Mama Thornton í nýrri mynd um Elvis, fannst látin á heimili sínu í gær. 

Shonka var 44 ára gömul og var hlutverkið hennar fyrsta stóra hlutverk í Hollywood.

Leikonan Olivia DeJonge, sem fór með hlutverk Priscillu Presley í myndinni, sagði í viðtali við Entertainment Weekly hún hafi orðið vitni af stjörnu fæðast þegar hún lýsti frammistöðu Shonku fyrir framan myndavélarnar. 

Dánarorsök eru enn óljós en leikkonan fannst látin á heimili sínu í svefnherbergi sem hún deilir með tveimur ungum börnum sínum. Ekki leikur grunur á því að dauðsfallið hafi borið að með saknæmum hætti. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.