Lífið

Ricky Martin sakaður um sifja­spell og heimilis­of­beldi

Árni Sæberg skrifar
Ricky Martin hefur gert garðinn frægan sem söngvari og nú nýlega sem leikari.
Ricky Martin hefur gert garðinn frægan sem söngvari og nú nýlega sem leikari. Jacopo M. Raule/Getty

Ungur frændi söngvarans Ricky Martin hefur kært hann fyrir heimilisofbeldi. Hann segist hafa átt í sjö mánaða ástarsambandi með söngvaranum

Lögmaður Martin hefur þvertekið fyrir ásakanirnar og segir að Martin hafi aldrei nokkurn tímann verið í sambandi með frænda sínum og að sú hugmynd sé ekki aðeins röng heldur líka ógeðsleg. Þá segir hann að frændinn, sem er 21 árs gamall, eigi við geðræn vandamál að stríða.

Í frétt dægurmálamiðilsins Deadline um málið segir að Martin gæti átt yfir höfði sér fimmtíu ára fangelsisdóm í heimalandi hans Púertó Ríkó. Þá segir að frændinn hafi fengið nálgunarbann á Martin eftir að meintu sambandi þeirra lauk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.