Hér eru fimm atriði sem gott er að renna yfir fyrir lok síðasta vinnudags fyrir frí.
1. Vel upplýsandi Out of office tilkynning
Fyrir þann sem mun fá tilkynningu um að þú sért í fríi skiptir mestu máli að textinn í skilaboðunum frá þér innifeli eftirfarandi:
Hversu lengi þú verður fjarverandi
Hvort og þá hvernig hægt er að hafa samband við þig ef eitthvað áríðandi
Við hvern á að tala við á meðan þú ert í sumarfríi. Hér þarf nafn og netfang að koma fram.
2. Gleymdu ekki vinnufélögunum
Það er mismunandi á vinnustöðum hversu aðgengilegar upplýsingar eru um hvenær fólk verður í fríi og eins er það alls ekki svo, að allir starfi í vinnuumhverfi þar sem fólk notar tölvupósta.
Það er því alltaf gott að tryggja að þínir helstu vinnufélagar séu vel upplýstir um hvenær sumarfríið þitt er og hvort það er í einni beit eða hvort þú takir nokkur styttri frí en mætir til vinnu á milli.
3. Taktu til!
Já, við erum öll alls konar í skipulagi á borðinu okkar eða í þeirri aðstöðu sem við höfum í vinnunni fyrir okkar dót. Góð regla er að taka vel til áður en við förum í frí. Ekki aðeins fyrir kurteisissakir gagnvart vinnufélögunum heldur er líka góð tilfinning að mæta aftur og koma þá að snyrtilegu borði/aðstöðu.
4. Örfundir (stutt spjall) til upplýsinga fyrir vinnufélaga
Gott er að taka örfundi með helsta samstarfsfólki og fara yfir það hver staðan er á einstaka máli eða verkefni.
Þetta þurfa ekki að vera formlegir fundir en til upplýsinga fyrir vinnufélaga og/eða viðskiptavini er oft ágætt að samstarfsfólk viti hver staða helstu mála á þinni könnu er.
5. Kláraðu verkefnin sem þurfa að klárast
Á sama tíma og það er ekkert vit í því að reyna að klára „allt“ áður en maður fer í frí, er mikilvægt að klára þau verkefni sem þurfa að klárast fyrir fríið. Stundum er þetta erfitt vegna þess að aðrir eru í fríi, til dæmis samstarfsfólk eða viðskiptavinir, en allt sem mögulega þarf að klárast og hægt er að klára er gott að hreinsa alveg út af borðinu.
Því annars er hætta á að þessi verkefni leiti á hugann á meðan þú ert í fríinu. Eða að þú þurfir að sinna þeim úr fríi.