Lífið

Sandra Dís flýgur frítt með PLAY í heilt ár

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Birgir Jónsson, forstjóri PLAY, og innanhúsarkitektinn og lýsingarhönnuðurinn Sandra Dís Sigurðardóttir.
Birgir Jónsson, forstjóri PLAY, og innanhúsarkitektinn og lýsingarhönnuðurinn Sandra Dís Sigurðardóttir. PLAY

Sandra Dís Sigurðardóttir mun fljúga frítt með flugfélaginu PLAY í heilt ár en hún vann í samfélagsmiðlaleik flugfélagsins. 

Birgir Jónsson, forstjóri PLAY, tilkynnti Söndru Dís þetta símleiðis í vikunni og urðu miklir fagnaðarfundir þegar Sandra Dís mætti í höfuðstöðvar flugfélagsins fyrr í dag og veitti gullna miðanum viðtöku úr hendi forstjórans.

„Sandra Dís var ein af 10 þúsund manns sem tóku þátt í Borgarkosningum PLAY um liðna helgi. Þar var fólk hvatt til að kjósa uppáhalds áfangastaðinn sinn í leiðakerfi PLAY til að komast í pottinn um að hreppa gullna miðann. Dregið var síðan úr þessum tíu þúsund manna hópi og mun Sandra Dís sem fyrr segir fljúga frítt á alla áfangastaði PLAY, sem eru 25 talsins, í heilt ár,“ segir í tilkynningu frá flugfélaginu.

„Í borgarkosningum PLAY var einn áfangastaðurinn langvinsælastur en það var New York í Bandaríkjunum og var Sandra Dís ein af þeim fjölmörgu sem völdu þessa mögnuðu borg. Jómfrúarflug PLAY til New York Stewart alþjóðaflugvallarins verður 9. júní næstkomandi. New York Stewart er í 75 mínútna fjarlægð frá Times Square-torginu í Manhattan ef farþegar velja að taka rútu frá flugvellinum sem verður tímasett eftir komum og brottförum PLAY.

Flugvöllurinn er í Hudson-dalnum þar sem finna má Woodbury Commons verslunarkjarnann sem er með 220 verslanir og allar þær helstu sem finna má á Madison Avenue í Manhattan. Þá var stærsti Legoland skemmtigarður í heimi opnaður í 25 mínútna akstursfjarlægð frá New York Stewart í fyrra.“


Tengdar fréttir

Gera ráð fyrir 5,7 milljónum far­þega

Farþegaspá Isavia fyrir árið 2022 gerir ráð fyrir að 5,7 milljónir farþega muni fara um Keflavíkurflugvöll í ár. Gerir spáin ráð fyrir að í ár verði fjöldi farþega 79 prósent af þeim fjölda sem fór um völlinn árið 2019.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.