„Ég er ekki á leiðinni í neitt samband“ Elísabet Hanna skrifar 19. maí 2022 22:00 Hjónin fagna tuttugu ára brúðkaupsafmæli í sumar. Betri helmingurinn. Listahjónin Edda Björg Eyjólfsdóttir og Stefán Magnússon hafa verið gift í tæp tuttugu ár eftir rómantískt bónorð á Ítalíu. Stebbi var samt alls ekki á leiðinni í samband þegar leiðir þeirra lágu upphaflega saman en ástin tók völdin og er mikið um grín og glens hjá parinu.
Ástríðan með ófjölskylduvænan vinnutíma Þau starfa bæði við ástríðu sína en Edda er leikkona og Stefán gítarleikari. Edda segir það oft vera mikið hark að vera í listaheiminum og hefur hún aldrei verið fastráðin á allri sinni leikaratíð og oft þurft að feta sínar eigin leiðir og búa til tækifæri sem hefur lukkast vel. Stefán hefur starfað sem sjálfstæður gítarleikari síðustu tuttugu árin og hefur spilað meðal annars í Geirfuglunum, Reiðmönnum vindanna og SSSól. Undanfarið hefur hann þar að auki verið að vinna við skjátextagerð og þýðingu fyrir bíómyndir og sjónvarp eftir að hafa skellt sér í nám. „Þetta er ekki fjölskylduvænn vinnutími, það vita það náttúrulega allir sem hafa eitthvað komið nálægt þessu, þetta eru kvöldin og helgar,“ segir Stefán um listalífið og segir það geta verið bras þegar þau lenda í sömu sýningunum. Þau Edda og Stebbi voru gestir í 56. þætti af hlaðvarpinu Betri helmingurinn með Ása en hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni neðst í greininni. Umsjónarmaður þáttanna er Ásgrímur Geir Logason. Hann fær til sín þjóðþekkta einstaklinga ásamt þeirra betri helming og ræðir um ástarsambandið, lífið og tilveruna. Sá hann fyrst í strætó Fyrsta minningin af hvort öðru er frá unglingsárunum þegar Edda fékk leyfi til þess að taka síðasta strætóinn heim. Þar sá hún mjög sætan strák með sixpensara sem hann er enn með í dag. Leiðir þeirra lágu oft saman í gegnum tíðina án þess að verða að sambandi enda aðeins ár á milli þeirra. Þegar þau horfa til baka segja þau það vera eins og alheimurinn hafi verið að sá einhverjum fræum að lífinu sem þau eiga saman í dag. „Ég er ekki á leiðinni í neitt samband“ Nokkrum árum síðar var Stebbi á nemendasýningu hjá Eddu þar sem hann sá hana á sviðinu „þar kviknaði lítill neysti líka sem varð síðan að gríðar miklu báli“ segir hann. Það var svo sumarið 1999 sem Edda ákvað að þetta yrði kærastinn sinn en þá höfðu þau verið að blikka hvort annað í gegnum tíðina án þess að neitt hafi gerst. „Við drógumst hvort að öðru,“ segja þau í kór. Þau segja Menningarnótt árið 1999 hafa verið örlagaríka í sínu sambandi. Þau segjast hafa átt rómantíska stund þar sem þau röltu um miðbæinn eftir að hafa átt gott sumar saman og Stebbi setti fram yfirlýsinguna: „Bara svo þú vitir það, ég er ekki á leiðinni í neitt samband.“ Ástin tók yfir Eftir yfirlýsinguna tók við tímabil þar sem Edda ásamt vinkonu sinni Lindu Ásgeirsdóttur keyrðu stundum framhjá húsinu hans til þess að athuga hvort að hann væri heima. Það var ekki fyrr en í október sem þau urðu par þegar Geirfuglarnir voru að spila í frumsýningarpartýi eftir sýningu sem Edda var að leika í og þau sáu hvort annað. „Við fórum bara saman með kampavínsflöskuna og the rest is history,“ segir Edda. Í dag eru þau með lítinn bóndabæ í Skerjafirðinum eins og þau grínast með þar sem mikið er um dýrahald á heimilinu og jafnvel verið að íhuga að bjóða hænur velkomnar í fjölskylduna. View this post on Instagram A post shared by Stebbi Magg (@gitarkall) Án vegabréfs á Ítalíu Fyrsta ferðin þeirra saman var til rómantísku Ítalíu þar sem Stebbi skellti sér á skeljarnar. Þegar þau voru að fljúga heim til baka þurftu þau að stoppa á leiðinni og sýna vegabréf en þá hafði hann pakkað vegabréfinu sínu vel og vandlega ofan í ferðatöskuna sína sem var farin út í flugvélina segja þau og hlæja. „Það hefur nokkrum sinnum gerst á okkar ferðalögum að við erum óheppin eða bara svolítið rugluð.“ Klippa: Betri helmingurinn með Ása - Edda Björg Eyjólfsdóttir og Stefán Magnússon Þarf að gæta að sambandinu Þau segjast hafa komist að því með árunum að maður þurfi að gæta vel að sambandinu alveg sama hversu lengi maður er búinn að vera saman. View this post on Instagram A post shared by Stebbi Magg (@gitarkall) „Fara út af heimilinu, gista einhversstaðar annarsstaðar. Nótt á hóteli í miðbænum eða eitthvað. Gera date night og hafa svolítið fyrir því að skipuleggja fyrir hvort annað,“ segir Edda.„Fólk þarf að passa það að gefa sér tíma í það að vera kærustupar og þurfa ekki að hugsa um neitt nema hvort annað í smá stund,“ bætir Stebbi við. „Við getum samt alveg tekist á og átt okkar moment þar sem við náum ekki utan um þetta en við erum alltaf skotin í hvort öðru, það hefur aldrei breyst,“ segir Edda áður en Stefán bætir í glensi við: „Svo erum við náttúrulega að swinga líka, nýbyrjuð á því, það er rosa stuð.“ View this post on Instagram A post shared by Stebbi Magg (@gitarkall) Í þættinum ræða þau eldamennskuna, hreyfingu, heilsuna, listina, æskuna, öll ferðalögin og mikilvægi þess að rækta sig og hvort annað. Þáttinn má heyra í heild sinni hér að neðan:
Betri helmingurinn með Ása Ástin og lífið Tengdar fréttir Hittust í fyrsta sinn á flugvellinum í L.A.: „Það var svakalegt móment sem við munum alltaf eiga“ Elli hafði séð Steinunni þegar hún var í stúlknasveitinni Nylon og hafði honum alltaf þótt hún afar sæt. Það var þó ekki fyrr en mörgum árum síðar sem hann sá viðtal við hana í blaðinu og ákvað að senda henni vinabeiðni á Facebook. Það reyndist honum mikið gæfuspor, því í dag eru þau trúlofuð og eiga von á sínu öðru barni. 12. maí 2022 22:00 Gleymdu barninu heima: „Hvar er Stefán?“ Magnús Geir Þórðarson og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir eiga fimm börn og lentu í því ótrúlega atviki að upplifa alvöru „Home Alone“ augnablik þegar þau voru á leiðinni upp á flugvöll. 5. maí 2022 22:00 Spákonan vissi að þau ættu eftir að enda saman Linda og Siggi kynntust í menntaskóla og urðu þau fljótt góðir vinir. Það var þó ekki fyrr en leiðir þeirra lágu aftur saman á fullorðinsárunum sem neistinn kviknaði á milli þeirra og hafa þau verið saman síðan. 28. apríl 2022 22:00 Hægðastoppandi lyf gerðu Sigga óleik á fyrsta stefnumótinu „Ég vissi ekki að hún væri einhleyp. En eftir á er bara mjög fínt að hafa haldið það, því ég var ekkert stressaður í kringum hana,“ segir Siggi Þór um fyrstu kynnin við unnustu sína Sonju. Þau smullu saman og fóru fljótlega á sitt fyrsta stefnumót sem tók óvæntan snúning fyrir Sigga. 7. apríl 2022 22:01 Voru á leið í glasafrjóvgun þegar þau fengu óvænt jákvætt óléttupróf Einar og Milla höfðu verið samstarfsfélagar í þónokkur ár þegar ástin kviknaði á milli þeirra. Þau giftu sig í miðjum heimsfaraldri og eiga þau nú von á sínu fyrsta barni saman. Þau tala opinskátt um það að hafa glímt við ófrjósemi, en þau voru á leiðinni í glasafrjóvgun þegar kraftaverkið kom óvænt undir. 1. apríl 2022 22:01 Áskorun að þurfa að horfa á maka sinn njóta ásta með annarri manneskju Listafólkið Arnar Dan og Sigga Soffía urðu ástfangin á göngum Listaháskólans enda segir Arnar fátt meira heillandi en að sjá manneskju í essinu sínu. Sigga viðurkennir þó að það hafi reynst henni erfitt að þurfa horfa á Arnar nakinn í ástarsenu með annarri konu á nemendasýningu skólans. 10. mars 2022 21:01 Mest lesið Stjörnulífið: Sjóðheitar stjörnur í fimbulkulda Lífið Helgi Björns tryllti lýðinn á 40 ára afmæli Gagnrýni Ferðast umhverfis jörðina á 38 dögum Lífið Ísak og Karítas orðin foreldrar eftir bráðakeisara Lífið Tara Sif og Elfar selja íbúðina Lífið Innlit í nýuppgerða íbúð Kára Sverris Lífið Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Bíó og sjónvarp Adele kveður sviðið um óákveðinn tíma Lífið Frambjóðendur stigu trylltan dans með unga fólkinu Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Fleiri fréttir Tara Sif og Elfar selja íbúðina Innlit í nýuppgerða íbúð Kára Sverris Stjörnulífið: Sjóðheitar stjörnur í fimbulkulda Ísak og Karítas orðin foreldrar eftir bráðakeisara Ferðast umhverfis jörðina á 38 dögum Adele kveður sviðið um óákveðinn tíma Frambjóðendur stigu trylltan dans með unga fólkinu Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Krakkatían: Eyðimerkur, býflugur og kjólar Hraðfréttir verða Hlaðfréttir Khalid kemur út úr skápnum Skautasvellið opnað í tíunda sinn Sykurlausar og dísætar smákökur Flaug alla leið frá Ástralíu til að heimsækja Eiðistorg Fréttatían: Gömul mannshvörf, rukkanir og gos Vængir, bjór og lófaklapp þegar Kaninn var forsýndur Kendrick Lamar gefur út óvænta plötu „Þetta var það erfitt, að við vorum öll dofin“ Lúxusíbúð við Heiðmörk með stórbrotnu útsýni Jay Leno illa leikinn og með lepp Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Hrund Gunnsteins kaupir íbúð Viktors Bjarka og Álfrúnar Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? „Þú varst að tala um Klausturmálið!“ Datt í miðri sýningu á Ellý: „Eitt lélegasta fall leikhússögunnar“ Sigraði í alþjóðlegri kokteilakeppni á Kýpur Mikill sigur að geta opnað aftur í Kringlunni Átta ár án áfengis og fíkniefna Flytja frá Bandaríkjunum eftir sigur Trump Svava Rós og Hinrik eiga von á dreng Sjá meira
Hittust í fyrsta sinn á flugvellinum í L.A.: „Það var svakalegt móment sem við munum alltaf eiga“ Elli hafði séð Steinunni þegar hún var í stúlknasveitinni Nylon og hafði honum alltaf þótt hún afar sæt. Það var þó ekki fyrr en mörgum árum síðar sem hann sá viðtal við hana í blaðinu og ákvað að senda henni vinabeiðni á Facebook. Það reyndist honum mikið gæfuspor, því í dag eru þau trúlofuð og eiga von á sínu öðru barni. 12. maí 2022 22:00
Gleymdu barninu heima: „Hvar er Stefán?“ Magnús Geir Þórðarson og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir eiga fimm börn og lentu í því ótrúlega atviki að upplifa alvöru „Home Alone“ augnablik þegar þau voru á leiðinni upp á flugvöll. 5. maí 2022 22:00
Spákonan vissi að þau ættu eftir að enda saman Linda og Siggi kynntust í menntaskóla og urðu þau fljótt góðir vinir. Það var þó ekki fyrr en leiðir þeirra lágu aftur saman á fullorðinsárunum sem neistinn kviknaði á milli þeirra og hafa þau verið saman síðan. 28. apríl 2022 22:00
Hægðastoppandi lyf gerðu Sigga óleik á fyrsta stefnumótinu „Ég vissi ekki að hún væri einhleyp. En eftir á er bara mjög fínt að hafa haldið það, því ég var ekkert stressaður í kringum hana,“ segir Siggi Þór um fyrstu kynnin við unnustu sína Sonju. Þau smullu saman og fóru fljótlega á sitt fyrsta stefnumót sem tók óvæntan snúning fyrir Sigga. 7. apríl 2022 22:01
Voru á leið í glasafrjóvgun þegar þau fengu óvænt jákvætt óléttupróf Einar og Milla höfðu verið samstarfsfélagar í þónokkur ár þegar ástin kviknaði á milli þeirra. Þau giftu sig í miðjum heimsfaraldri og eiga þau nú von á sínu fyrsta barni saman. Þau tala opinskátt um það að hafa glímt við ófrjósemi, en þau voru á leiðinni í glasafrjóvgun þegar kraftaverkið kom óvænt undir. 1. apríl 2022 22:01
Áskorun að þurfa að horfa á maka sinn njóta ásta með annarri manneskju Listafólkið Arnar Dan og Sigga Soffía urðu ástfangin á göngum Listaháskólans enda segir Arnar fátt meira heillandi en að sjá manneskju í essinu sínu. Sigga viðurkennir þó að það hafi reynst henni erfitt að þurfa horfa á Arnar nakinn í ástarsenu með annarri konu á nemendasýningu skólans. 10. mars 2022 21:01