Heldur skýjaðra en í gær og sums staðar rigning Atli Ísleifsson skrifar 17. maí 2022 07:13 Hiti verður um átta til sautján stig, en svalara austast. Vísir/Vilhelm Heldur skýjaðara verður á landinu í dag samanborið við í í gær og má búast við rigningu suðaustantil og jafnvel gætu komið nokkrir dropar um landið suðvestanvert eftir hádegi og fram á kvöld.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði að öllum líkindum þess valdandi að við munum ekki sjá sömu hitatölur og í gær. Samt muni allnokkrar stöðvar fara yfir fimmtán stigin og um miðjan maí, þyki það bara ansi gott. Þannig verði hiti átta til sautján stig, en svalara austast. „Á morgun, miðvikudag er svo enn meiri bleyta á leiðinni til okkar en suðvestantil á landinu verður þurrt fram yfir hádegi og horfur eru á að úrkoman þar verði minni en víðast hvar annars staðar og líklega á skúraformi. Það veldur því að hæstu hitatölurnar verða líklega kringum 13 til 15 gráður, en fremur svalt verður fyrir norðan og austan,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort Veðurstofunnar fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðaustlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og rigning víða um land. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast suðvestanlands. Á fimmtudag: Norðaustan 8-13 m/s og rigning norðvestantil, en annars suðaustan 3-10 og víða skúrir. Hiti yfirleitt 7 til 14 stig. Á föstudag: Fremur hæg austlæg átt og rigning með köflum sunnantil, en stöku skúrir fyrir norðan. Hiti 6 til 15 stig, svalast á Vestfjörðum. Á laugardag: Norðlæg eða breytileg átt og víða dálítil væta, en þurrt að mestu sunnan- og vestanlands. Hlýtt á sunnanverðu landinu, en svalt fyrir norðan. Á sunnudag: Norðan kaldi. Rigning fyrir norðan og fremur kalt, en þurrt, víða bjart milt syðra að deginum. Á mánudag: Útlit fyrir suðvestanátt með dálítilli vætu sunnan- og vestantil, en annars þurrt. Hiti 6 til 12 stig.
Veður Mest lesið Svandís stígur til hliðar Innlent Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Innlent Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Erlent Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Innlent Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Innlent Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Innlent Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Innlent Sanna býður sig fram undir merkjum Vors til vinstri Innlent Fleiri fréttir Víða allhvass vindur og rigning Siggi stormur spáir rauðum jólum Hellidemba í kortunum og líkur á þrumum Stormur gengur yfir sunnan- og vestanvert landið Austan stormur og gular viðvaranir á morgun Hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Bæta við gulri viðvörun á Vestfjörðum og miðhálendi Hvasst sunnantil og víða rigning eða slydda Hvassviðri syðst á landinu Smá rigning eða slydda víða Hiti gæti náð upp undir 10 gráður Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands Bjart sunnan- og vestanlands en él norðan- og austantil Allhvasst syðst en hægari vindur annars staðar Bjartviðri suðvestantil en hvasst suðaustanlands Blæs hressilega af austri Stormur í kortunum Snjódýptin geti náð fjörutíu sentimetrum Gul viðvörun vegna snjókomu Snjókoma í kortunum Kuldinn bítur í kinnar landsmanna Slær í storm suðaustantil en höfuðborgarsvæðið í skjóli Allvíða él eða skúrir og flughált víða um land Hlýnar í veðri og gæti orðið flughált Vara við flughálku í fyrramálið Skúrir á víð og dreif og hiti að sex stigum Hefðbundin lægð með rigningu og allhvössum vindi Hvít jörð á höfuðborgarsvæðinu og víðar Frost og víða fallegt vetrarveður Víða vindasamt á landinu Sjá meira