Veður

Skýjað og víða súld eða rigning

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti á landinu í dag verður á bilinu þrjú til tólf stig.
Hiti á landinu í dag verður á bilinu þrjú til tólf stig. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir að í dag verði fremur hæg breytileg átt í öllum landshlutum. Skýjað og víða dálítil súld eða rigning, þó síst suðvestanlands.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að þegar líður á daginn sé síðan útlit fyrir að létti heldur til á vestanverðu landinu.

Hiti verður á bilinu þrjú til tólf stig, svalast á Vestfjörðum en mildast syðst.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Suðvestan 3-8 m/s og skýjað með köflum. Lítilsháttar væta vestantil, en léttir til austanlands síðdegis. Hiti 6 til 12 stig að deginum.

Á föstudag: Suðvestlæg átt, 3-8 m/s. Dálítil rigning norðan- og vestantil en bjartviðri austanlands. Hiti 4 til 12 stig, svalast á Vestfjörðum.

Á laugardag: Suðvestan 5-10 m/s, en 10-15 norðvestantil. Skýjað en þurrt að kalla á vestanverðu landinu, annars að mestu bjart. Hiti 6 til 13 stig.

Á sunnudag og mánudag: Norðlæg átt, skýjað og lítilsháttar snjókoma norðantil. Frost 0 til 5 stig. Austanátt, dálítil rigning og hiti að 10 stigum sunnanlands.

Á þriðjudag: Breytileg átt, skýjað með köflum og lítilsháttar væta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×