Seinni bylgjan: „Umgjörðin er svo sannarlega til staðar á Selfossi“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. apríl 2022 14:30 Svavar Vignisson tók við kvennaliði Selfoss fyrir tímabilið og kom liðinu upp í Olís-deildina í fyrstu tilraun. Stöð 2 Sport Selfyssingar munu leika í Olís-deild kvenna í handbolta á næstu leiktíð eftir að liðið tryggði sér deildarmeistaratitilinn í Grill66-deild kvenna á dögunum. Svavar Vignisson, þjálfari liðsins, viðurkennir að markmiðið hafi ekki endilega verið að vinna deildina. „
Markmiðið var svo sem ekki endilega að fara upp, heldur að kannski bara byggja upp liðið og byggja umgjörð og svo kannski bara að halda áfram að gera vel á Selfossi,“ sagði Svavar í samtali við Seinni bylgjuna. „Það að hafa farið upp er bara mjög jákvæður bónus sem fylgir þessu.“ Lið sem koma úr Grill66-deildinni og upp í Olís-deild kvenna hafa á seinustu árum oft átt mjög erfitt uppdráttar í deild þeirra bestu. Svavar segir að liðið þurfi að styrkja sig fyrir komandi átök og bendir á allar þær stelpur sem Selfyssingar hafa alið af sér og eru að spila annarsstaðar. „Þið komuð svo sem ágætlega inn á þetta í þættinum hjá ykkur og þar talaði Anna Úrsúla einmitt um að ekkert þessara liða ætti erindi upp nema með því að styrkja sig. Og það er bara alveg rétt.“ „Það er mikill munur á milli þessara deilda, en hún bendir einnig á að umgjörðin hjá þessum liðum sé bara alls ekki nógu góð og ég veit að þetta stakk marga á Selfossi. Við eigum örugglega tíu eða ellefu stelpur sem eru að spila fyrir Val, Stjörnuna, Fram og annarsstaðar. Þannig að umgjörðin á Selfossi er sannarlega til staðar og það væri voða gaman að fá Selfossstelpurnar heim og búa til alvöru Selfosslið.“ En geta Selfyssingar sótt þessar stelpur aftur heim? „Ég vona það. Ég vona það svo sannarlega að þeim þyki það spennandi að koma og gera Selfoss að samkeppnishæfu liði. Þar liggur þetta svolítið. Ef þær koma ekki þá þurfum við væntanlega að leita eitthvað annað og það er erfitt. Það er stundum eins og að biðja stelpur að koma á Egilsstaði þeim finnst svo langt að fara á Selfoss á æfingar. En auðvitað væri lang skemmtilegast að gera þetta með heimastelpum,“ sagði Svavar að lokum. Klippa: Viðtal við Svavar og umræða um Selfoss í Olís „Ég þarf ekki að svara fyrir neitt“ Anna Úrsúla var í setti Seinni bylgjunnar þegar viðtalið við Svavar var spilað og Svava Kristín, stjórnandi þáttarins, spurði strax hvort Anna þyrfti að svara fyrir eitthvað. „Nei, ég þarf ekki að svara fyrir neitt vegna þess að ég talaði við hann þegar ég hitti hann daginn eftir þegar U-lið Vals var að spila við Selfoss,“ sagði Anna. „Hann minntist á að hann hafi verið ósáttur við það að ég sagði að aðstöðurnar væru ekki nógu góðar. Það var bara því miður ekki rétt hjá honum. Ég talaði um að leikmennirnir - sama hvort það væri í Grillinu eða efstu deild eða hvað það er - ættu ekki að vera að líta til peninga eða inneigna, heldur að líta til aðstæðna félaga, þjálfara sem er verið að bjóða upp á, aðstöðu og annað.“ Snúa Selfyssingarnir aftur heim? Eins og Svavar talaði um í viðtalinu þá eiga Selfyssingar helling af stelpum sem hafa verið að spila með öðrum liðum í Olís-deildinni á síðustu árum. Systurnar Hrafnhildur Hanna og Hulda Dís Þrastardætur leika með ÍBV og Val, og mágkona þeirra, Perla Ruth Albertsdóttir, leikur með Fram. Kristrún Steinþórsdóttir er liðsfélagi Perlu hjá Fram og þær Elena Elísabet Birgisdóttir og Katla María Magnúsdóttir leika með Stjörnunni. Þá er Katrín Ósk Magnúsdóttir einnig Selfyssingur, en ekki er alveg vitað með stöðu hennar. Allt eru þetta leikmenn sem léku með yngri flokkum Selfoss og hófu sinn meistaraflokksferil þar. „Pælið í þessum nöfnum,“ sagði Svava þegar sérfræðingar Seinni bylgjunnar fóru yfir uppalda Selfyssinga sem leika annarsstaðar. „Það þarf ekki nema að Svavar myndi ná tveimur eða þremur.“ Anna Úrsúla greip boltann á lofti og sagði það í raun ótrúlegt að Selfyssingar hafi fallið á sínum tíma. „Það er í raun ótrúlegt - því miður að ég skuli koma með þessi leiðindi - að þær hafi yfir höfuð fallið með liðið sem þær voru með. Það var ótrúlegt.“ Stelpurnar tóku sér svo góðan tíma í að ræða um þessa leikmenn sem Selfyssingar eiga í Olís-deildinni, sem og möguleika liðsins á að halda sér uppi með og án þeirra, en innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Olís-deild kvenna UMF Selfoss Seinni bylgjan Mest lesið Snöggreiddust Ómari og báðu hann um að róa sig gegn Dönum Handbolti CrossFit-kona fær fjögurra ára bann fyrir að breyta myndbandi Sport Janus hjá Barcelona næstu þrjú árin Handbolti Jóhann Berg hætti við að skrifa undir Íslenski boltinn Ósáttur Verstappen lét reka blaðamann út: „Hypjaðu þig“ Formúla 1 Stjóri í leyfi út tímabilið eftir andlát nýfædds sonar Enski boltinn Uppselt á alla leiki Íslands en HSÍ verður með hópferðir Handbolti Hópurinn sem á að koma Íslandi á fjórða stórmótið í röð Handbolti „Ef ég sé hann á æfingu þá brýt ég á honum lappirnar“ Fótbolti Liverpool-goðsögn greind með heilabilun Enski boltinn Fleiri fréttir Hæstánægður á Íslandi þrátt fyrir neglu í andlitið Hópurinn sem á að koma Íslandi á fjórða stórmótið í röð „Stelpurnar skipta okkur alveg jafn miklu máli og strákarnir“ Janus hjá Barcelona næstu þrjú árin Snöggreiddust Ómari og báðu hann um að róa sig gegn Dönum Uppselt á alla leiki Íslands en HSÍ verður með hópferðir „Ekki fallegur sigur og áttum hann eiginlega ekki skilið“ „Djöfull er ég helvíti drullufúll“ Uppgjörið: Valur - HK 42-39 | Deildarmeistararnir þurftu framlengingu KA-menn fögnuðu eftir rosalegan leik í Eyjum Óðinn var fullkominn í flottum sigri Ólafur leggur skóna á hilluna: „Auðvitað er þetta svolítið skrýtið“ „Gaman að hann hafi tekið eftir mér þar“ Elvar með stórleik í flottum sigri Sigurgangan endaði í síðasta leik fyrir úrslitakeppni Fer frá Selfossi til Svíþjóðar Stjarnan lætur Hrannar fara fyrir umspilið Lykilmenn lýsa yfir stuðningi við Alfreð Gagnrýnir HSÍ og bendir á misræmi: „Galið dæmi“ Meistaraskjöldurinn kom óvænt í leitirnar Bikarinn brotnaði við lyftingu HK flaug upp í Olís-deildina Ósáttur við sóknina í fyrri hálfleik: „Fannst við of hægir og staðir“ „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 27-30 | Gamlir draugar létu á sér kræla Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Dramatísk endurkoma Stjörnunnar felldi Selfoss Þórir ráðleggur þjálfurum Noregs líka í þrjátíu prósent starfi Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir Sjá meira