Óttinn við að kúka í vinnunni og góð ráð Rakel Sveinsdóttir skrifar 8. apríl 2022 07:01 Það er ótrúlega mikill fjöldi fólks sem þorir ekki eða vill helst ekki þurfa að kúka í vinnunni. Þessi kvíði kallast á ensku bathroom anxiety og um hann hefur mikið verið ritað og rætt, meðal annars í sérstakri bók. Hjá fólki sem starfar skrifstofuvinnu sýna rannsóknir að allt að 51% starfsmanna líður illa með að þurfa að kúka í vinnunni. Kannast þú við þetta? Vísir/Getty Niðurstöður rannsókna sýna að mjög stór hópur fólks vill ekki, þorir ekki eða forðast að kúka í vinnunni. Kannast þú við þetta?
Samkvæmt vefsíðunni MedicalNewToday hafa rannsóknir sýnt að klósettkvíði hrjáir 6,5-32% fólks á öllum aldri í heiminum. Í könnun sem gerð var í nokkrum löndum hjá fólki sem vinnur skrifstofuvinnu, mældist þetta hlutfall enn hærra en þar sögðust 51% þátttakenda helst ekki vilja, eða líða illa með að kúka í vinnunni. Svarendur voru um fimm þúsund skrifstofustarfsmenn í Ástralíu, Frakklandi, Þýskalandi, Bretlandi og Malasíu. Hvert svo sem hlutfallið er nákvæmlega, kannast flestir við það að ýmist vilja ekki kúka í vinnunni eða þekkja nákominn aðila sem vill ekki kúka í vinnunni. En fyrst allir þurfa að kúka, hvers vegna þá þessi ótti? Svo virðist sem kvíðinn stafi af áhyggjum af því að hljóðunum eða lyktinni fylgi mikil skömm. Árið 2012 kom út bókin Psychology in the Bathroom en í þeirri bók er meðal annars fjallað um það hver áhrifin af því að þora ekki eða vilja ekki kúka í vinnunni geta verið. En þau geta meðal annars falist í að draga úr afköstum og frammistöðu fólks. Því þegar að við höfum áhyggjur af einhverju eða hugsum mjög mikið um eitthvað (eins og það að þurfa að fara að kúka í vinnunni en þora því ekki), hefur það áhrif á það hvernig við stöndum okkur. Það er því full ástæða til að rýna aðeins í þennan klósettkvíða og hvað er til ráða. Heilsan Á ensku er að jafnaði fjallað um þennan ótta við að kúka í vinnunni sem klósett kvíða, eða bathroom anxiety. Í grein MedicalNewsToday má finna ýmsan fróðleik um það hvaða áhrif það getur haft á fólk ef það fer ekki á klósettið þegar það þarf að kúka, sjá nánar hér. Þar er sem dæmi nefnt að fólk sem heldur í sér þegar það þarf að kúka vegna þess að það vill ekki kúka í vinnunni eða annars staðar en heima hjá sér, getur leitt til þess að fólk fer að glíma við hægðatregðu sem viðvarandi vandamáli. Fyrir heilsuna er í alla staði gott fyrir líkamann að vera með góðar og reglulegar hægðir. Drekka nógu mikið af vatni, borða trefjaríkan mat, stunda hreyfingu og helst að kúka á sama tíma daglega ef hægt. Fólk leggur ýmislegt á sig Í umfjöllun FastCompany um klósettkvíðann er sagt frá því að fólk leiti ótrúlegustu leiða til að þykjast ekki kúka í vinnunni. Sumir fara til dæmis á klósett sem er á annarri hæð en þeirra eigin. Aðrir reyna að koma sér út úr húsi, fara á kaffihús eða verslunarmiðstöð og kúka frekar þar. Þá eru enn aðrir sem þola ekki við lengur og hreinlega fara á klósettið að kúka en sitja þar síðan í ótta- og svitakasti, með áhyggjur af því að upp um þá muni komast. Sumir reyna að draga úr þörfinni með breyttum venjum. Hætta til dæmis að fá sér kaffi á morgnana því hjá mörgum hefur það þau áhrif að líkurnar á að þurfa að kúka í vinnunni aukast. Enn aðrir bíða þörfina af sér allan vinnudaginn en þurfa síðan í orðsins fyllstu merkingu að hlaupa á klósettið um leið og heim er komið. Kannast þú við eitthvað af ofangreindu? Góðu ráðin Til að hjálpa okkur að sporna við þessum kvíða er til dæmis hægt að styðjast við eftirfarandi ráð. Mundu að allir kúka. Hugsaðu um heilsuna og það hversu góðar hægðir eru mikilvægar. Mundu sérstaklega vel eftir því að drekka mikið vatn. Ekki halda í þér eða sleppa því að fara á klósettið þegar þú þarft að kúka. Það getur leitt af sér verri vandamál, til dæmis hægðatregðu sem er vond og sár og getur orðið að viðvarandi vítahring. Ekki gera grín að lykt eða hljóðum annarra samstarfsfélaga sem voru að kúka. Því þannig stuðlar þú að vinnustaðamenningu sem einmitt flestir eru að hafa áhyggjur af: Að upplifa skömm og verða vandræðanleg. Ef þér finnst sérstaklega óþægilegt að vinnufélagar sem koma inn á salernið á sama tíma, geti heyrt að þú sért að kúka, er gott ráð að setja nokkur blöð í klósettið áður en þú sest á setuna, það mildar hljóðin. Ef þér finnst það sérstaklega vandræðalegt að vinnufélagar fatti að þú varst að kúka, bíddu þá með að fara út af klósettinu þar til aðrir eru farnir eða liðin smá stund. Hugsaðu af skynsemi. Til dæmis er líklegt að öllum vinnufélögunum þínum sé hreinlega nákvæmlega sama að þú varst að kúka. Hugsaðu með húmor. Að kúka í vinnunni þýðir til dæmis að þú ert á launum við að kúka! Góð ráð fyrir vinnuveitendur Þá er vinnuveitendum bent á að létta undir með fólki og milda þennan kvíða. Til dæmis með því að vera alltaf með lyktareyðandi inni á salerni og huga að öðru umhverfi og hönnun. Á vinnustöðum þar sem klósettrými eru mjög stór og ekki með lokuð rými fyrir klósettin sjálf, er til dæmis mælt með því að fólk hangsi ekki þar inni. Á kvennaklósettum getur það til dæmis verið ákveðið vandamál ef rýmið er stórt og samstarfskonur detta í spjall eða förðun, með þeim afleiðingum að sú kona sem mögulega er þá stundina að gera sitt í næði en líður óþægilega, er líkleg til að forðast enn meira að kúka í vinnunni. Almennt finnst fólki líka auðveldara að kúka í vinnunni ef það er hægt að loka alveg að sér og ef klósettin eru ekki mjög fá. Þá þarf vart að nefna mikilvægi þess að salerni starfsmanna séu hrein og þau reglulega þrifin.
Góðu ráðin Vinnustaðurinn Heilsa Tengdar fréttir Bremsuför og uppvaskið viðkvæm mál á vinnustöðum Bremsuför í klósettinu, mæta alltaf og seint, vaska aldrei upp eða lykta illa eru dæmi um viðkvæm mál á vinnustöðum sem fólk á erfitt með að ræða um. 9. september 2020 10:04 Að leysa vind í vinnunni Það getur enginn þóst aldrei hafa lent í því að hafa prumpað í vinnunni. Jafn neyðarlega og það kann að vera. 11. mars 2022 07:01 Heilbrigði hægðanna Litur og áferð hægðanna geta sagt þér ansi margt um heilbrigði líkamans. 16. janúar 2015 14:00 Mest lesið Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Viðskipti innlent Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Samstarf Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Viðskipti innlent Opna verslanir í Kringlunni á ný Viðskipti innlent Máttu ekki fullyrða að eldsneytið væri kolefnisjafnað Neytendur Vilja þvinga Google til að selja Chrome Viðskipti erlent Kristján ráðinn til Advania Viðskipti innlent Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Viðskipti innlent Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Dæmi: „Tvær konur geta ekki unnið saman því einu sinni áttu þær sama kærasta“ „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Stærðin skiptir ekki máli Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Allt í steik: Samtalið við yfirmanninn „Okkur langar til að búa til nýja tegund af bjórmenningu“ „Eitthvað við kvöldin og nóttina sem ég heillast af“ Dýrara að gera ekkert: „Erum öll að pissa í sömu laugina“ Úrelt kerfi: „Síðan kom bara einhver bíll og tæmdi allt“ Sorp: Fólk að hoppa niður plastið í tunnunum til að þjappa því „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ „Hörðustu samningaviðræðurnar voru við yngsta fólkið Eitraður starfsmaður og góð ráð „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ B-týpa sem vill verða A en þarf tíma til að „morgna sig“ Fólki á helst að líða betur eftir vinnudaginn en þegar það mætti Slökkt á asanum: „Hljómar kannski auðveldlega en er það ekki“ Konurnar ofþreyttar en karlmenn vilja meiri frið til að vinna Sjá meira
Bremsuför og uppvaskið viðkvæm mál á vinnustöðum Bremsuför í klósettinu, mæta alltaf og seint, vaska aldrei upp eða lykta illa eru dæmi um viðkvæm mál á vinnustöðum sem fólk á erfitt með að ræða um. 9. september 2020 10:04
Að leysa vind í vinnunni Það getur enginn þóst aldrei hafa lent í því að hafa prumpað í vinnunni. Jafn neyðarlega og það kann að vera. 11. mars 2022 07:01
Heilbrigði hægðanna Litur og áferð hægðanna geta sagt þér ansi margt um heilbrigði líkamans. 16. janúar 2015 14:00