Veiði

Þurrflugu Master class hjá Caddis bræðrum

Karl Lúðvíksson skrifar

Nú gefst tækifæri á að læra og skilja öll dýpstu leyndarmál þurrfluguveiðinnar í gegnum námskeiðaröð sem haldin verður nú í vor. Aðeins tíu sæti eru í boði á hvert námskeið þar sem kennsla og þjálfun er bæði persónuleg og djúp.

Caddisbræður eru landsþekktir veiðimenn og leiðsögumenn sem hafa getið sér gott fyrir frábæra fræðslu og þjálfun veiðimanna. Námskeiðin henta þeim sem hafa náð sæmilegum tökum á almennum veiðiskap en langar að fara á næsta þrep. Tekið er á móti skráningum á netfanginu caddisbrothers@gmail.com.

Þeir veiðimenn sem hafa áhuga á að læra um þurrfluguveiði og verða betri í þeim fræðum ættu klárlega að skoða þetta námskeið því þeir Caddis bræður hafa undanfarin ár náð feykna árangri með þurrfluguna og verið við leiðsögn í Laxárdalnum sem þykir eitt magnaðasta þurrflugu veiðisvæði landsins. Nánri upplýsingar um námskeiðið eru hér fyrir neðan:

Námskeið 1. Dry or Die – Allt um þurrfluguveiðar

Laugardagurinn 2. Apríl klukkan 13-17 - Verð: 13.900 kr.

Námskeið 2. Presentation Mastery – Á veiðislóð, verður í ap/maí - Verð: 13.900 kr

Master-class lýsing:

I. Dry or Die – Allt um þurrfluguveiðar - Á þessu námskeiði verður farið verður yfir öll atriði sem vita þarf fyrir þurrfluguveiðar:

1. Flugur og Lífríki

2. Hegðun fiska

3. Vatnslestur

4. Uppsetningar

5. Presentation 101

6. Erfiðar aðstæður

7. Þurrfluguhönnun

Margt fleira

2. Presentation Mastery – Á veiðislóð: - Annað námskeiðið þar sem áhersla er á að ná fullri hæfni við köst, nálgun og framsetningu á bæði bóklegan og verklegan hátt:

1. Að nálgast fisk

2. Presentation köst

3. Verkleg Presentation kennsla

4. Stanga og línuval

5. Baráttan við fiskinn

Margt fleira...

ATH: Skráning í gangi á námskeið: Masterclass I sem verður 2 apríl er á caddisbrothers@gmail.com.






×