2,9 milljarða tap en gera ráð fyrir hagnaði á síðari hluta ársins Eiður Þór Árnason skrifar 16. mars 2022 18:29 Jómfrúarflug flugfélagsins Play fór í loftið í júní í fyrra. Vísir/Vilhelm Tekjur flugfélagsins Play námu 16,4 milljónum Bandaríkjadala á árinu 2021 en tap ársins nam 22,5 milljónum dala, eða um 2,9 milljörðum íslenskra króna. Tekjur voru lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir vegna neikvæðra áhrifa Covid-19 en kostnaður var samkvæmt áætlunum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu sem gerir ráð fyrir rekstrarhagnaði á síðari hluta ársins 2022 eftir að tengiflugsleiðarkerfið var tekið í gagnið. Að sögn stjórnenda hafa bókanir styrkst verulega með tilkomu þess. Play segir bókunarstöðuna hafa verið sterka að undanförnu og mikil uppsöfnuð eftirspurn hafi losnað úr læðingi við afnám sóttvarnatakmarkana víða um heim. Félagið hyggst auka starfsemi sína í yfirveguðum skrefum á næstu vikum og telur sig vera að auka framboð sitt á hárréttum tíma eftir að hafa farið sér hægt frá upphafi starfsemi sinnar. Engin áform um hlutafjáraukningu Ekki var gert ráð fyrir hagnaði á seinasta ári sem var fyrsta rekstrarár félagsins en starfsemi þess hófst ekki fyrr en á miðju ári. Flugfélagið er enn í uppbyggingarfasa og að sögn stjórnenda eru engin áform uppi um hlutafjáraukningu þar sem lausafjárstaða félagsins sé sterk, bókunarstaða góð og fyrirtækið beri engar vaxtaberandi skuldir. „Blikur eru á lofti í heimsmálunum eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu en áhrifin á PLAY hafa fram til þessa takmarkast við hækkandi olíuverð því bókanir hafa haldið áfram að styrkjast. Gert er ráð fyrir að hækkanir á olíuverði vegna innrásarinnar muni valda um tíu milljóna Bandaríkjadala kostnaðarauka á þessu ári. Því verður mætt með aukinni ráðdeild í kostnaði og tilkomu sérstaks olíugjalds ofan á miðaverð líkt og margir stærstu samkeppnisaðilar PLAY hafa innleitt,“ segir jafnframt í tilkynningu. Birgir Jónsson forstjóri PlayVÍSIR/VILHELM Ekki með virkar olíuvarnir Play hefur ekki haft virkar olíuvarnir frá því að flugfélagið hóf starfsemi. Að sögn stjórnenda var félagið í þann mund að innleiða og kynna stefnu í olíuvörnum þegar innrás Rússa í Úkraínu hófst. Fallið var frá því í ljósi breyttrar stöðu og er þróun markaðsins í framhaldinu harla óljós á þessari stundu. „Markaðir bregðast hratt við síbreytilegri stöðu og PLAY hyggst ekki taka upp olíuvarnir fyrr en meiri fyrirsjáanleiki á markaði næst því annað telst of áhættusamt. Á móti er stefnt á að lágmarka rekstrarkostnað á öllum sviðum til þess að mæta háu olíuverði og girða fyrir áhrif þess á rekstur félagsins eins og kostur er,“ segir í tilkynningu. Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir að síðasta ár hafi sýnt að það sé sannarlega tækifæri fyrir nýtt lággjaldaflugfélag á Íslandi. Tekist hafi að lágmarka áhrif heimsfaraldursins á reksturinn og undirbúa uppbyggingu arðbærs tengiflugskerfis milli Evrópu og Bandaríkjanna. „Leynivopnið okkar í því verkefni er hinn magnaði hópur starfsfólks sem er að störfum hjá félaginu, hópur sem er lausnamiðaður, faglegur og alltaf með bros á vör. Með flugi til Bandaríkjanna hefst nýr og spennandi kafli í sögu PLAY og ég hlakka mikið til að takast á við þær áskoranir og vinna nýja sigra við hlið minna mögnuðu samstarfsmanna hjá PLAY,“ segir Birgir.
Fréttir af flugi Play Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira