Tindastóll tryggði sér sæti í úrslitakeppninni Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 10. mars 2022 21:02 Tindastóll ermeð öruggt sæti í úrslitakeppninni í vor. Vísir/Hulda Margrét Tindastóll vann nauman fjögurra stiga útisigur gegn ÍR í Subway-deild karla í kröfubolta í kvöld, 75-71, og tryggði sér um leið sæti í úrslitakeppni Íslandsmótsins með sigrinum.
Nokkuð jafnræði var með liðinum í upphafi leiks og þegar fyrsta leikhluta lauk höfðu gestirnir í Tindastól tveggja stiga forskot, 19-17. Þeir juku svo forkot sitt fyrir hálfleik og fóru með átta stiga forystu inn í hlé, staðan 39-31 Stólunum í vil. ÍR-ingar snéru taflinu svo við í upphafi síðari hálfleiks og jöfnuðu leikinn í þriðja leikhluta. Þegar komið var að lokaleikhlutanum var staðan jöfn 55-55. Það virtist ekkert geta skilið liðin að í lokaleikhlutanum, en þegar tæpar tvær mínútur voru til leiksloka var enn jafnt, 71-71. Tindastóll skoraði þá fjögur stig gegn engu stigi heimamanna á lokakaflanum og vann að lokum nauman fjögurra stiga sigur, 75-71. Taiwo Hassan Badmus var stigahæsti maður vallarins með 27 stig fyrir gestina að norðan, en hann tók einnig átta fráköst og gaf eina stoðsendingu. Í liði ÍR var Triston Isaiah Simpson atkvæðamestur með 22 stig, fjögur fráköst og tvær stoðsendingar. Tindastóll situr nú í sjötta sæti deildarinnar með 22 stig eftir 19 leiki, átta stigum meira en ÍR-ingar sem sitja í níunda sæti. ÍR-ingar geta því ekki náð Stólunum og strákarnir að norðan eru því öruggir með sæti í úrslitakeppninni.
Subway-deild karla Tindastóll ÍR Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ Fótbolti Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Enski boltinn Mikil óvissa um þátttöku Alberts í mikilvægum landsleikjum Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Sjá meira