Lífið

Tanja Ýr er komin aftur í samband

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Frumkvöðullinn Tanja Ýr stefnir á að kalla London sitt HEIMA innan skamms.
Frumkvöðullinn Tanja Ýr stefnir á að kalla London sitt HEIMA innan skamms. Skjáskot/Instagram

Áhrifavaldurinn Tanja Ýr Ástþórsdóttir er komin með nýjan kærasta. Hún sagði frá þessu á Instagram í gær og birti af honum myndir.

Fylgjendur Tönju fengu að senda henni spurningar um lífið og tilveruna á Instagram og kom fram í svörum hennar að hún á kærasta. Sá heppni heitir Ryan og virðist vera frá Essex. Tanja var áður í sambandi með Agli Fannari Halldórssyni.

Skjáskot af Instagrammi Tönju.Skjáskot/Instagram

Tanja er þó að fara að leigja ein úti í Bretlandi en eins og fram hefur komið hér á Lífinu á Vísi er Tanja flutt erlendis þar sem hún mun einbeita sér að því að koma vörumerki sínu Glamista Hair í verslanir erlendis.

Ryan var á Íslandi með Tönju í janúar og birti Stefán John Turner ljósmyndari myndir af þeim á flakki á Íslandi á Instagram eins og sjá má í albúminu hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Kveður sólina og flytur til Manchester

Athafnakonan og samfélagsmiðlastjarnan Tanja Ýr Ástþórsdóttir er að flytja til Manchester. Hún sagði frá því á Instagram að þar væri planið að koma hárlengingamerkinu Glamista hair í verslanir erlendis. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.