HI beauty mynda þær Heiður Ósk og Ingunn Sig, en þær eru förðunarfræðingar, eigendur Reykjavík Makeup School og eru auk þess pistlahöfundar og þáttastjórnendur hér á Lífinu á Vísi. Í þáttunum heimsækja þær þekkta Íslendinga og ræða um snyrtivörur, hárvörur, förðun og margt fleira áhugavert.
„Nýja þáttaröðin af Snyrtiborðinu er skemmtileg og töluvert öðruvísi en síðasta sería. Með afléttingum fengum við loksins að fara heim til viðmælenda okkar og sáum við hvernig þau gera sig til fyrir daginn. Það var svo gaman að sjá fjölbreytt umhverfi og rútínu og lærðum við ekkert smá mikið af gestum þáttarins. Við tókum síðan upp á því að hafa áskorun fyrir hvern og einn viðmælenda og stilltum þessu upp í æsispennandi og skrautlega augnhárakeppni sem verður gaman að fylgjast með út seríuna,“ segir Heiður Ósk í samtali við Vísi.
„Við lögðum upp úr því að hafa þættina fjölbreytta og pössuðum við að viðmælendurnir fylgdu því. Við hittum meðal annars Patrek Jamie, Aldísi Önnu Hamilton, Dóru Júlíu og Lindu Ben en listinn er alls ekki tæmdur þar,“ segir Ingunn spennt.

Nýja þáttaröðin er framleidd af Undireins fyrir Vísi og voru stelpurnar glaðar að þurfa ekki sjálfar að sjá um upptökuna líkt og í fyrstu þáttaröðinni.
„Samstarf okkar við framleiðslufyrirtækið Undireins hefur gengið eins og í sögu. Við þekktumst aðeins frá fyrri störfum og erum öll á svipuðum aldri og með gríðarlegan metnað fyrir þeim verkefnum sem við tökum að okkur. Þau skildu algjörlega sýn okkar á þáttunum og gætum við ekki verið ánægðari með útkomuna. Við getum ekki beðið eftir að vinna nánar með þeim í framtíðinni,“ segir Heiður.

„Við viljum enda á því að þakka öllum gestunum fyrir að taka svona vel á móti okkur og vonumst til að áhorfið verði jafn skemmtilegt og vinnan á bakvið þættina.“
Þær Heiður og Ingunn munu mæta í Brennsluna á FM957 og ræða nýju þáttaröðina.
Fyrsti þáttur kemur út á morgun en fyrstu þáttaröðina má skoða HÉR á Vísi.
