
Hár og förðun

Allt fyrir ferminguna á einum stað
Fermingardagurinn stór stund í lífi fermingarbarna og margt sem þarf að huga að.

Silfurrefurinn George Clooney á bak og burt
Bandaríska kvikmyndastjarnan George Clooney er búinn að lita á sér hárið. Silfurgráa hárið sem einkennt hefur leikarann er horfið en þess í stað hefur hann litað hár sitt brúnt. Aðdáendur þurfa þó ekki að örvænta þar sem liturinn er einungis til bráðabirgða og er tilkominn vegna hlutverks sem hann fer brátt með á Broadway.

Svona losnar þú við baugana
Dökkir baugur undir augunum er vandamál sem margir glíma við. Þessi óæskilegi litur getur stafað af ýmsum ástæðum, svo sem svefnleysi, of mikilli streitu eða vökvaskorti. Það eru þó einfaldar og náttúrulegar lausnir sem geta hjálpað til við að draga úr dökkum baugum og frískað upp á útlitið.

Kenndi hárvörum um í umdeildu jafntefli
Gervonta Davis kom með nokkuð óvenjulega afsökun eftir að hann gerði jafntefli við Lamont Roach í titilbardaga í léttvigt í gær.

Í samkeppni við Noona með Sinna
Inga Tinna Sigurðardóttir, eigandi Dineout.is, opnaði nýlega nýtt markaðstorg á vefnum sinna.is þar sem hægt er að bóka tíma í hárgreiðslu, á snyrtistofu, heilsulind, nudd og ýmsa þjálfun. Inga Tinna segir þau leggja áherslu á heilsu og vellíðan. Um 60 rekstraraðilar hafa skráð sig á síðuna.

Nýtt serum gegn hrukkum vegna sykurs
Sykur úr sætindum, ávöxtum og öðrum matvælum getur haft áhrif á húðina okkar og skert teygjanleika hennar.

Tíu góð andlitskrem í vetrarkuldann
Á veturna kjósa margir að nota feit rakakrem þar sem kuldi, þurrt loft og miskunnarlausir vindar hafa gjarnan mikil áhrif á húðina. Skíðatímabilið er rétt að hefjast og fyrir þá sem stunda íþróttina er mikilvægt að vernda húðina enn betur.

Heitustu trendin árið 2025
Nú er splunkunýtt ár gengið í garð og nýju ári fylgja óumflýjanlega ný trend sem sækja þó mörg hver innblástur til fortíðar. Það er engum skylt að fylgja tískubylgjum og eflaust forðast einhverjir þær eins og heitan eldinn en þó getur verið skemmtilegt að vera með puttann á púlsinum á því sem slær í gegn. Lífið á Vísi ræddi við fjölbreyttan hóp sérfræðinga um heitustu trendin á margvíslegum sviðum.

Húðrútína Önnu Guðnýjar
Anna Guðný Ingvarsdóttir er 25 ára flugfreyja hjá Icelandair og áhrifavaldur. Hún segist hafa mikinn áhuga á förðun og húðumhirðu og reynir að hafa daglega húðrútínu einfalda. Fyrir aukinn ljóma á köldum dögum gætir hún að því að velja vörur með meiri raka.

Húðrútína Birtu Abiba
Ofurfyrirsætan Birta Abiba segir sólarvörn framar öllu öðru þegar kemur að daglegri húðumhirðu. Hún segir að vegna starfsins sé húðrútínan hennar umfangsmeiri en hjá flestum, en hún hvetur ungmenni til að nota færri vörur en fleirri.

Ógleymanlegt að vinna fyrir Rihönnu
Förðunarfræðingurinn og hárgreiðslukonan Tinna Empera hefur haft áhuga á tísku frá blautu barnsbeini og ólst upp við það að þora að hugsa stórt. Hún flutti til New York fyrir þrettán árum síðan og hefur tekið þátt í ýmsum ævintýralegum verkefnum. Blaðamaður ræddi við Tinnu um lífið úti.

Ilmaðu eins og frambjóðendur
Góður ilmur spilar stórt hlutverk í lífi margra og er stundum sagt að ilmur geti sagt mikið til um persónuleika okkar. Þegar við finnum ilm sem við erum ánægð með, eigum við það til að nota hann árum saman. Frambjóðendur til Alþingiskosninga 2024 eru þar engin undantekning. Hér að neðan má sjá hvaða ilmi nokkrar af þeim konum sem eru í framboði nota.

Sektuð vegna fullyrðinga um aukinn hárvöxt og minni hrukkur
Félagið X20 Lausnir ehf. hefur verið gert að greiða hundrað þúsund króna stjórnvaldssekt vegna fullyrðinga sem birtust á vefsíðunni lifsbylgja.is. Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að umræddar fullyrðingar teldust undir öllum kringumstæðum óréttmætar, en þær vörðuðu vörur undir merkinu Lifewave.

„Að fá þykkt og fallegt hár hefur fyrst og fremst gefið mér aukið sjálfstraust“
Á einum tímapunkti árið 2017 íhugaði Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir að raka af sér allt hárið. Hún hafði í einhvern tíma reynt að vinna bug á þrálátum skallablettum en án árangurs. Þá stakk frænka hennar upp á að hún myndi prufa Nourkrin Woman hárbætiefnið. Strax eftir mánuð fór hún að sjá mun, þar sem farið var að móta fyrir nýjum hárum í skallablettunum. Síðan þá hefur hárvöxturinn verið á jafnri og góðri leið upp á við.

Hvað ef þú gætir breytt framtíð húðar þinnar?
Á 4 sekúndna fresti selst flaska af gullelixírnum sem hefur haldið vinsældum sínum á milli kynslóða í 4 áratugi. Double Serum frá Clarins hefur ávallt verið dáð fyrir einstaka formúlu sína sem nýtir ofurkrafta náttúrunnar og sameinar þá nýjustu tækni í heimi húðumhirðu.

Byltingarkennd nýjung fyrir blondínur frá JOHN FRIEDA
Njóttu þess að vera ljóska án þess að hafa áhyggjur af skemmdum! Blonde+ Repair er fyrir ljóskur alls staðar, hvort sem þú elskar balayage eða babylights, strípur eða aflitun.

Hvernig náum við fram okkar bestu andlitsdráttum?
„Í þættinum í dag ætla ég að fara með ykkur í gegnum skyggingar. Skyggingar vefjast oft fyrir mörgum og við erum oft pínu hrædd við þær,“ segir förðunarfræðingurinn og hársnyrtinn Rakel María í nýjasta þætti Fagurfræða. Þar fer Rakel yfir það hvernig best er að skyggja andlitið svo andlitsdrættir njóti sín sem best.

Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg
Dr. Ragna Hlín Þorleifsdóttir, húðsjúkdómalæknir hjá Húðlæknastöðinni og Húðvaktinni, hefur miklar áhyggjur af aukinni notkun ungmenna á húðvörum fyrir fullorðna, og þá sérstaklega hjá stúlkum.

Einfalt og frísklegt útlit fyrir hlaupið
„Í dag ætla ég að fara með ykkur í gegnum það hvernig við getum haft okkur til án þess að vera að farða okkur endilega,“ segir förðunarfræðingurinn og hársnyrtirinn Rakel María í nýjasta þætti Fagurfræða. Þar sýnir Rakel hvernig hægt er að ná fram frísklegu útliti fyrir útivistina án mikillar fyrirhafnar.

MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði
MZ Skin er húðvörumerki sem hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem eitt af fremstu lúxusmerkjunum á markaðnum. Merkið var stofnað af Dr. Maryam Zamani, þekktum augnlækni og húðlækni, sem er sérfræðingur í meðferðum tengdum öldrun húðar og fagurfræðilegum lausnum á sviði lýtalækninga.

Hafdís segir Emmy tilnefninguna „smá súrrealíska“
Förðunarfræðingurinn Hafdís Pálsdóttir skein skært á Emmy verðlaununum um síðustu helgi þar sem hún og teymið hennar fengu tilnefningu. Blaðamaður ræddi við hana um ferilinn, tilnefninguna og stóra kvöldið.

Aldrei haft jafn þykkt hár
Edda Dungal hefur tekið inn Hair Volume í nokkur ár en hún missti allt hár eftir lyfjameðferð.

Rakel María afhjúpar skotheldar leynileiðir í förðun
„Ég get farið farið að dansa sveitt í alla nótt, farið að sofa, vaknað og verið gordjöss í fyrramálið,“ segir förðunarfræðingurinn og hársnyrtirinn Rakel María um skothelda förðun sem hún kennir í splunkunýjum þáttum. Þættirnir heita Fagurfræði og þar fer Rakel María yfir ýmis góð ráð og aðgengilegar aðferðir þegar það kemur að förðun.

Heitustu trendin fyrir haustið
Umferðin er orðin þyngri, rigningin heldur áfram að heiðra okkur með nærveru sinni, laufin falla af trjánum, litapallettan breytist, skólabjöllurnar hringja og rútínan tekur yfir. Haustið er mætt í allri sinni dýrð og er árstíðin gjarnan í fararbroddi hinna þegar það kemur að tískubylgjum og nýjum stefnum og straumum.

Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris
L´Oréal Paris býður upp á hágæða húðvörur þar sem allir ættu að geta fundið vörur sem henta sinni húð.

Vinkonukvöldin hjá Elira Beauty farin af stað
„Við höfum boðið upp á þessa skemmtilegu tilbreytingu fyrir saumaklúbbana, mömmuhópana, vinnustaðina og aðra vinkonuhópa síðan við opnuðum fyrir tæpum þremur árum. Þessi kvöld eru alltaf jafn vinsæl," segir Rakel Ósk Guðbjartsdóttir eigandi snyrtivöruverslunarinnar Elira en Elira Beauty býður vinkonuhópinn að koma í verslunina á Kirkjusandi eftir lokun.

Feðgar með 90 ára reynslu á elstu og minnstu rakarastofu landsins
Ein elsta og minnsta rakarastofa landsins er á Akranesi en sjálft húsið verður hundrað ára á þessu ári. Þar starfa samrýmdir feðgar með samtals níutíu ára starfsreynslu. Þeir eru hvergi nærri hættir að klippa og raka en sá yngri ætlar að minnsta kosti að starfa áfram í húsinu í þrjátíu ár í við viðbót.

Má augnskugginn þinn fara í kringum augun?
Róen Beauty er byltingarkennd förðunarlína sem og setur ný viðmið í sjálfbærum snyrtivörum.

„Klippingin sem frelsaði mig“
„Það ættu öll að prófa það einhverntímann að ögra ríkjandi hugmyndum samfélagsins, hverjum er ekki sama,“ skrifar fjölmiðlakonan og meistaraneminn Chanel Björk sem tók afdrifaríka ákvörðun fyrr í sumar og lét klippa allt hárið af sér. Hún segist ekki alveg hafa áttað sig á því hve áhrifaríkt það yrði.

Farðu ljómandi í sumarið!
Halló sólardýrkendur! Við erum með spennandi nýjungar sem munu láta húðina þína og daginn ljóma bjartar en nokkru sinni fyrr! Kynntu þér nýjustu vörurnar frá Hello Sunday sem hannaðar eru til að gefa þér sólkysstan ljóma á meðan þær vernda húðina með bestu SPF formúlunum!