Óttast að ríkið gæti verið bótaskylt dragist afléttingar á langinn Fanndís Birna Logadóttir og Snorri Másson skrifa 26. janúar 2022 19:18 Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, segir ákveðið áhyggjuefni ef ríkisstjórnin ætlar að fara hægar í afléttingar en nauðsynlegt er. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar eru sammála um að forsendur fyrir núgildandi takmörkunum séu brostnar og mikilvægt sé að aflétta þeim sem fyrst. Þingmaður Viðreisnar telur mögulegt að ríkið gæti verið að kalla yfir sig bótaskyldu ef ekki verður aflétt tiltölulega hratt.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, eru bæði sammála því að það séu litlar sem engar forsendur fyrir þeim samkomutakmörkunum sem nú eru í gildi. Tíu manna samkomubann er nú í gildi, veitingastöðum gert að loka klukkan níu þar sem síðustu gestir þurfa að vera farnir út klukkan tíu, og skemmtistaðir sem ekki hafa veitingaleyfi hafa þurft að loka. „Þetta eru mjög íþyngjandi takmarkanir á líf fólks, á fyrirtækjarekstur og við verðum auðvitað að geta komist eins hratt og hægt er í eðlilegt líf þegar að tölurnar blasa þannig við okkur að við erum í miklu betri stöðu nú en áður,“ segir Áslaug og tók þar með undir ummæli fjármálaráðherra frá því fyrr í vikunni. Ríkisstjórnin mun kynna afléttingaráætlun sína á föstudaginn en Áslaug vildi lítið gefa upp hvað fælist í henni. „Við ætlum að ræða afléttingaráætlunina á föstudaginn og ég er bara mjög bjartsýn að við getum komist út úr þessu sem fyrst,“ segir Áslaug. „Ég er mjög bjartsýn miðað við stöðuna. Við þurfum auðvitað að líta til annarra landa og alltaf annarra þátta og átta okkur á því að við þurfum að hafa mjög rík gögn til að viðhalda takmörkunum en ekki til að aflétta. Eðlilegt líf er án þessara takmarkana, án grímuskyldu án samkomutakmarkana,“ segir Áslaug. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, segist bjartsýn. Sigmar tekur í sama streng og segir ekki lengur rök fyrir því að fyrirtæki þurfi að loka eða skerða starfsemi sína meðan staðan á spítalanum er langt undir bjartsýnustu spám. Hann segir þó ákveðið áhyggjuefni ef ríkisstjórnin ætlar að fara hægar í afléttingar en nauðsynlegt er. „Ég óttast það, og ætla að leyfa mér að segja það, að ríkið gæti verið að kalla yfir sig bótaskyldu ef það verður ekki aflétt tiltölulega hratt þessum hörðustu takmörkunum,“ segir Sigmar. „Ég get alveg skilið það að menn vilji fara að einhverju leiti varfærnislega en þessar ströngustu takmarkanir hljóta að þurfa að hverfa strax og svo vonandi nokkuð ákveðin en kannski hóflega varfærin skref í framhaldinu. Ég vonast til þess að menn fari frekar eftir því sem Bjarni er að segja frekar en Willum er að tala um,“ segir Sigmar.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Beinir því til fólks að fara ekki í sýnatöku að ástæðulausu Sóttvarnalæknir beinir því til fólks að fara ekki í sýnatöku að ástæðulausu. Hjarðónæmi gæti náðst í mars eða apríl, en þrátt fyrir góða stöðu borgi sig að fara hægt í afléttingar. 26. janúar 2022 18:21 Langþráð hjarðónæmi geti náðst eftir um tvo mánuði „Spurningin sem á öllum brennur þessa stundina er hvenær getum við búist við að faraldrinum muni ljúka eða að minnsta kosti hvenær fer að draga verulega úr honum. Þessu er auðvitað ekki hægt að svara með neinni vissu en þó er hægt að segja að með þessum útbreiddu smitum í samfélaginu sem við erum nú að sjá þá styttist í að við förum að sjá fyrir endann á honum.“ 26. janúar 2022 11:49 Segir ljós við enda ganganna þrátt fyrir að mjög erfið staða blasi við Víðir Reynisson segist uggandi yfir þeim breytingum sem voru kynntar í dag en telur engu að síður að um stórt og mikilvægt skref hafi verið að ræða. Gera má ráð fyrir að fleiri muni greinast smitaðir á næstunni og þarf fólk að vera undir það búið. Hann sér þó fram á bjartari tíma í vor. 25. janúar 2022 21:00 Miklar breytingar á sóttkví Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að gera breytingar á sóttkví hér á landi. Frá og með miðnætti mun fólk sem verður útsett fyrir smitum utan heimilis ekki sæta sóttkví heldur fara í smitgát. Börn og unglingar verða algjörlega undanþegin reglum um smitgát. 25. janúar 2022 12:17 Lögin skýr um að það beri að aflétta þegar forsendurnar eru brostnar Fjármálaráðherra segir að heilbrigðisráðherra beri skylda til að líta til fleiri þátta heldur en sóttvarnalæknir telur upp þegar kemur að takmörkunum. Hann bendir að þróunin sé jákvæðari en fyrri spár gerðu ráð fyrir, forsendur fyrri aðgerða séu brostnar, og því beri að aflétta. 24. janúar 2022 23:20 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Sjá meira
Beinir því til fólks að fara ekki í sýnatöku að ástæðulausu Sóttvarnalæknir beinir því til fólks að fara ekki í sýnatöku að ástæðulausu. Hjarðónæmi gæti náðst í mars eða apríl, en þrátt fyrir góða stöðu borgi sig að fara hægt í afléttingar. 26. janúar 2022 18:21
Langþráð hjarðónæmi geti náðst eftir um tvo mánuði „Spurningin sem á öllum brennur þessa stundina er hvenær getum við búist við að faraldrinum muni ljúka eða að minnsta kosti hvenær fer að draga verulega úr honum. Þessu er auðvitað ekki hægt að svara með neinni vissu en þó er hægt að segja að með þessum útbreiddu smitum í samfélaginu sem við erum nú að sjá þá styttist í að við förum að sjá fyrir endann á honum.“ 26. janúar 2022 11:49
Segir ljós við enda ganganna þrátt fyrir að mjög erfið staða blasi við Víðir Reynisson segist uggandi yfir þeim breytingum sem voru kynntar í dag en telur engu að síður að um stórt og mikilvægt skref hafi verið að ræða. Gera má ráð fyrir að fleiri muni greinast smitaðir á næstunni og þarf fólk að vera undir það búið. Hann sér þó fram á bjartari tíma í vor. 25. janúar 2022 21:00
Miklar breytingar á sóttkví Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að gera breytingar á sóttkví hér á landi. Frá og með miðnætti mun fólk sem verður útsett fyrir smitum utan heimilis ekki sæta sóttkví heldur fara í smitgát. Börn og unglingar verða algjörlega undanþegin reglum um smitgát. 25. janúar 2022 12:17
Lögin skýr um að það beri að aflétta þegar forsendurnar eru brostnar Fjármálaráðherra segir að heilbrigðisráðherra beri skylda til að líta til fleiri þátta heldur en sóttvarnalæknir telur upp þegar kemur að takmörkunum. Hann bendir að þróunin sé jákvæðari en fyrri spár gerðu ráð fyrir, forsendur fyrri aðgerða séu brostnar, og því beri að aflétta. 24. janúar 2022 23:20