Dmitry Peskov, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, sakaði í dag Bandaríkin um að auka spennu vegna Úkraínu, samkvæmt frétt Reuters.
Rússar hafa oft sagt að spennan sé til komin vegna Bandaríkjanna og Atlantshafsbandalagsins en ekki vegna þess að Rússar hafa komið tugum þúsunda hermanna við landamæri Úkraínu á undanförnum vikum.
Sjá einnig: Hernaðaruppbygging Rússa heldur áfram
Rússar hafa flutt um hundrað þúsund hermenn að landamærum Úkraínu. Þeir krefjast þess að Úkraínu verði meinaður mögulegur aðgangur að NATO í framtíðinni. Þá hafa þeir krafist þess að Atlantshafsbandalagið fjarlægi allar hersveitir og vopn úr Austur-Evrópu.
Það á við ríki eins og Pólland, Eystrasaltsríkin, Rúmeníu og Búlgaríu.
Forsvarsmenn Atlantshafsbandalagsins hafa sagt að ekki komi til greina að verða við þeim kröfum. Tilkynntu var í gær að hersveitir yrðu settar í viðbragðsstöðu og fleiri herskip og orrustuþotur yrðu sendar til aðildarríkja í Austur-Evrópu.
Í Rússlandi er beðið eftir skriflegum svörum við kröfum þeirra.
TASS fréttaveitan, sem er í eigu rússneska ríkisins, hefur eftir Peskov að ríkisstjórn Pútíns bíði enn eftir svörum. Næstu skref í deilunni verði ekki ákveðin fyrr en þau hafi borist og búið að fara yfir þau.
Eftir að svörin berast stendur til að halda annan fund milli Antony Blinken og Sergey Lavrov, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Rússlands.
Eiga ekki von á innrás á næstu dögum
Pólitískir leiðtogar Úkraínu sögðu í dag að þeir ekki eki von á innrás á næstu dögum. Þeir hafa þó sagt að ógnin sé raunveruleg.
Oleksii Raznikov, varnarmálaráðherra Úkraínu, sagði á þingi í dag að rússneskir hermenn hefðu ekki myndað þær fylkingar sem þeir myndu gera í aðdraganda innrásar. Fólk ætti ekki að missa svefn yfir mögulegri innrás, né pakka í töskur.
Sjá einnig: Vonast eftir því besta en búa sig undir það versta
Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar slegið á svipaða strengi og sagt yfirvöld hafa stjórn á ástandinu.
Rússar gerðu innrás í Úkraínu árið 2014 og innlimuðu Krímskaga. Þá hafa Rússar stutt dyggilega við bakið á aðskilnaðarsinnum í austurhluta Úkraínu með vopnum og hermönnum. Átökin þar eru talin hafa kostað allt að fimmtán þúsund manns lífið í gegnum árin.