Sund er hreyfing Þórður Pétursson og fleiri íþróttafræðingar og sundkennarar skrifar 25. janúar 2022 10:30 Bentu á það sem er þér fyrir bestu. Hreyfing er þér fyrir bestu. Skólamál eru í stöðugri þróun. Ár frá ári, mánuðum til mánaða. Þær minningar sem margir foreldrar, afar og ömmur eiga af sinni skólagöngu eru margar hverjar enn við lýði en aðrar hafa þróast með tímanum eða eru ekki lengur við lýði. Skrif Diljár Ámundardóttur Zoega í Fréttablaðinu 13. janúar vakti flesta sundkennara til umhugsunar um þekkingu Diljár og annarra í Skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar á aðalnámskrá grunnskóla og á þekkingu á starfsháttum og kennslu í sundi. Grein Arnars Þórðarsonar í Fréttablaðinu 19. janúar sýndi svo fram á að ráðið býr yfir lítilli þekking á umfjöllunarefninu sundkennslu. Margt sem Diljá Ámundardóttir Zoega benti á í sinni grein 13. janúar inniheldur mikla þversögn. Nemandi á að fá val að sleppa við sund ef hann hefur náð hæfniviðmiðum í lok 8. bekkjar. Við sem kennum sund um allt land sjáum fyrir okkur að ýmis ráð og nefndir koma til með að taka óupplýstar ákvarðanir án alls samráðs við fagfólkið sem eru kennararnir. Kennarar búa yfir mikilli reynslu og við þróun okkar á hverju ári og flesta daga þurfum við að glíma við eitthvað nýtt. Skólamál eru í sífelldri þróun í að annast börn sem eru með misjafnar og fjölbreyttar þarfir og hefur sú þróun verið hröð upp á síðkastið. Skólastjórnendur keppast við að senda alla kennara á námskeið til að læra að takast á við nýja tíma. Starfsfólk sundlauga er upplýst og börn og fullorðnir gestir sundlauga eru farnir að nota þriðja klefann eða aðrar lausnir þar sem þær finnast. Allt með samtali og upplýsingagjöf þar sem margir koma að borðinu. Enginn kennari vill að nemanda líði illa. En við erum öll að læra og mistök eru partur af reynslu. Diljá Ámundardóttur Zoega heldur því fram í sömu grein að tillaga sem snýr að því að nemendur klári sína sundkennslu við lok 8. bekkjar sé borðleggjandi fyrirkomulag í aðalnámskrá grunnskóla. Við kennarar viljum aðeins vitna í aðalnámskrá grunnskóla fyrir Diljá, aðra fulltrúa í Skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar, alla aðra sem eru í sams konar ráðum í öðrum bæjarfélögum ásamt öðrum sem hafa áhuga. Efst í umfjöllun um íþróttir og sund í aðalnámskrá grunnskóla stendur: - Hreyfing er mikilvæg öllum börnum. Sund er hreyfing - Aukin sundfærni styrkir sjálfsmynd og eykur sjálfsöryggi einstaklingsins. Sund er góð leið til heilsubótar enda er aðgengi að góðri sundaðstöðu almennt afar gott hér á landi. Hreinlæti, líkamlega umhirðu, fræðslu um kynímyndir og staðalmyndir og umræðu um einelti og annað ofbeldi er auðvelt að tengja þessari kennslu. Sund er mikilvæg hreyfing. Við fagaðilarnir – íþróttafræðingar - sundkennarar erum best til þess fallin með okkar reynslu að fá nemendur með okkur og klára grunnskólasundkennsluna eins og hún kemur fyrir í aðalnámskrá. -Í skólasundi skal fyrstu tvö árin leggja megináherslu á aðlögun barnsins að vatninu í gegnum leik og æfingar. Kynna almennar sundaðferðir í 1-4. bekk. Nemendur sem ljúka 4. bekk þurfa að hafa öðlast nokkra kunnáttu í sundaðferðunum og getað bjargað sér á sundi. Nemendur í 5.-7. bekk skulu fá aukna áhersla á notkun vatnsins til heilsueflingar með margvíslegum æfingum bæði á sundi og við fjölbreyttar styrkjandi æfingar í vatninu. Við lok 10. bekkjar getur nemandi: Tekið ákvarðanir á grundvelli öryggis- og umgengnisreglna og brugðist við óvæntum aðstæðum. Framkvæmt og útskýrt helstu atriði skyndihjálpar, endurlífgunar og björgunar úr vatni og notkun björgunaráhalda. Bjargað jafningja á björgunarsundi. Á unglingastigi skal einnig auka vægi björgunarþátta svo sem þjálfun í að troða marvaða, bjarga félaga upp á flotsveig eða hring. Þá skal æfa björgunarsund með félaga. Í stuttri samantekt þá er lagður grunnur að sundtökunum á yngsta stigi. Á miðstigi er lagt áhersla á að börnin nái að synda á milli bakka og á unglingastigi er lagt áherslu á björgun í vatni. Að allir útskrifast úr sundi í 8. bekk er engan veginn fagleg nálgun og alls ekki í neinu samráði við þá kennara sem stunda kennslu í þessari kennslugrein vítt og breytt um landið. Kæra Diljá, Örn og aðrir í öðrum skólanefndum. Við Íþróttafræðingar og sundkennarar erum alveg til í að samþykkja að kannski mætti gera sund að valgrein í 10. bekk. Það væri þá undir kennurum og skólastjórnendum komið. Það gæti vissulega verið hvetjandi að mæta í alla tíma í 9. bekk og ná þá að klára hæfniviðmið í 10. bekk í leiðinni. En það val í 10. bekk þarf þá að vera með hreyfingu á móti eins og stendur í aðalnámskrá. Það er nefnilega þannig að ef nemendur hafa fengið góða kennslu á yngri stigum skilar það sér í eldri deildir sem áhugaverðir tímar sem gefa heilmikið í þoli og tækni. Lausnin er síst að hætta að hreyfa sig. Sund er hreyfing. Hreyfing er þér fyrir bestu. Höfundar eru íþróttafræðingar og sundkennarar vítt og breitt um landið. Ana Tepavcevic – Sundkennari Hafnarfirði Bjarney Gunnarsdóttir - Íþróttafræðingur/sundkennari Reykjavík Darri Sigurðsson - Íþróttafræðingur/sundkennari Hellu Edda Linberg - Íþróttafræðingur/sundkennari Akureyri Guðni Sighvatsson - Íþróttafræðingur/sundkennari Laugarvatni Harpa Eyfjörð Helgadóttir – Íþróttafræðingur/sundkennari Svalbarðsströnd Harpa Rut Heimisdóttir - Íþróttafræðingur/sundkennari Dalvík Haukur Már Ólafsson - Íþróttafræðingur/sundkennari Kópavogi Hrund Jónsdóttir – Íþróttafræðingur/sundkennari Seltjarnarnesi Kjartan Ólafsson – Íþróttafræðingur/sundkennari Kópavogi Kolbrún Fjóla Sigþórsdóttir - Íþróttafræðingur Menntaskólanum Ísafirði Kristján Örn Ebenezerson - Íþróttafræðingur Höfn Lilja Íris Gunnarsdóttir - Íþróttafræðingur/sundkennari Kópavogi Ólafur Guðmundsson - Íþróttafræðingur/sundkennari Selfossi og form. ÍHFÍ Ólafur Snorri Rafnsson - Íþróttafræðingur/sundkennari Reykjavík Páll Janus Þórðarson – Íþróttafræðingur/sundkennari Ísafirði Ragnar Elvar Arinbjarnarson – Sundkennari Álftanesi Sabína Steinunn Halldórsdóttir - Íþróttafræðingur/sundkennari FSU Sigga Baxter – Íþróttafræðingur/sundkennari Egilsstöðum Sigurður Reynir Ragnhildarson – Íþróttafræðingur/sundkennari Selfossi Símon Geir Þorsteinsson - Íþróttafræðingur/sundkennari Kópavogi Skúli Sigurðsson - Íþróttafræðingur/sundkennari Reykjanesbæ Steinunn Þorkelsdóttir - Íþróttafræðingur/sundkennari Mosfellsbæ Þorbjörg Sólbjartsdóttir – Íþróttafræðingur/sundkennari Mosfellsbæ Þórður Pétursson - Íþróttafræðingur/sundkennari Kópavogi Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sund Skóla - og menntamál Grunnskólar Heilsa Mest lesið Vilja komast í orku Íslands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Tölum um 7.645 íbúðirnar sem einstaklingar hafa safnað upp Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Ökuréttindi á beinskiptan og sjálfskiptan bíl Þuríður B. Ægisdóttir Skoðun Plan sem er sett í framkvæmd í stað áralangrar kyrrstöðu Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun 57 eignir óska eftir eigendum Sæunn Gísladóttir Skoðun Röng klukka siðan 1968: Kominn tími á breytingar Erla Björnsdóttir Skoðun Vindhanagal Helgi Brynjarsson Skoðun Ríkislögreglustjóri verður að víkja Einar Steingrímsson Skoðun Endurreisn Grindavíkur Kristín María Birgisdóttir Skoðun Á eineltisdaginn minnum við á eineltisdaginn Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir,Ögmundur Jónasson Skoðun Skoðun Skoðun Hagræn áhrif íþrótta og mikilvægi þeirra á Íslandi Helgi Sigurður Haraldsson skrifar Skoðun Vegið að heilbrigðri samkeppni Herdís Dröfn Fjeldsted skrifar Skoðun Frjósemisvitund ungs fólks Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Ökuréttindi á beinskiptan og sjálfskiptan bíl Þuríður B. Ægisdóttir skrifar Skoðun Á eineltisdaginn minnum við á eineltisdaginn Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir,Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Ísland á krossgötum: Gervigreindarver í stað álvera! Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Endurreisn Grindavíkur Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Plan sem er sett í framkvæmd í stað áralangrar kyrrstöðu Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun 57 eignir óska eftir eigendum Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Vindhanagal Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Vilja komast í orku Íslands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Tölum um 7.645 íbúðirnar sem einstaklingar hafa safnað upp Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Ríkislögreglustjóri verður að víkja Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Röng klukka siðan 1968: Kominn tími á breytingar Erla Björnsdóttir skrifar Skoðun Ísland 2040: Veljum við Star Trek - eða Star Wars leiðina? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hærri vörugjöld á bíla: Vondar fréttir fyrir okkur öll Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Hvar er skýrslan um Arnarholt? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fólkið á landsbyggðinni lendir í sleggjunni Margrét Rós Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Höldum fast í auðjöfnuð Íslands Víðir Þór Rúnarsson skrifar Skoðun Fjárfesting í fólki Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Evran getur verið handan við hornið Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar Skoðun Um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Leikskólinn og þarfir barna og foreldra á árinu 2025 Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig hjálpargögnin komast (ekki) til Gasa Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Vestfirðir gullkista Íslands Gylfi Ólafsson skrifar Skoðun Iceland Airwaves – hjartsláttur íslenskrar tónlistar Einar Bárðarson skrifar Skoðun 3003 Elliði Vignisson skrifar Skoðun Lestin brunar, hraðar, hraðar Haukur Ásberg Hilmarsson skrifar Skoðun Segið það bara: Þetta var rangt – þá byrjar lækningin Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Loftslagsmál á tímamótum Nótt Thorberg skrifar Sjá meira
Á eineltisdaginn minnum við á eineltisdaginn Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir,Ögmundur Jónasson Skoðun
Skoðun Á eineltisdaginn minnum við á eineltisdaginn Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir,Ögmundur Jónasson skrifar
Skoðun Plan sem er sett í framkvæmd í stað áralangrar kyrrstöðu Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar
Á eineltisdaginn minnum við á eineltisdaginn Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir,Ögmundur Jónasson Skoðun