Keflavík fær færeyskan landsliðsmann í framlínuna Sindri Sverrisson skrifar 25. janúar 2022 10:30 Patrik Johannesen er kominn í búning Keflavíkur. Keflavík Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur samið við færeyska landsliðsmanninn Patrik Johannesen um að spila með liðinu á komandi keppnistímabili.
Patrik er 26 ára gamall sóknarmaður og á að baki að minnsta kosti 12 A-landsleiki fyrir Færeyjar, þar af tvo í undankeppni HM á síðasta ári. Samkvæmt tilkynningu Keflvíkinga getur Patrik leikið sem bæði kant- og sóknarmaður en honum er lýst sem öflugum leikmanni sem auka muni breiddina í leikmannahópi Keflavíkur. Patrik lék síðast með Egersund í norsku C-deildinni og skoraði þar 13 mörk í 21 leik. Áður skoraði hann grimmt í færeysku deildinni þar sem hann hefur leikið með KÍ Klaksvík, B36, AB og TB, en hann lék einnig með norska liðinu Florö í B-deild árið 2018. Keflavík seldi á dögunum miðjumanninn unga Davíð Snæ Jóhannsson til ítalska félagsins Lecce. Félagið hefur hins vegar auk þess að fá Patrik fengið finnska miðvörðinn Dani Hatakka, miðjumennina Sindra Snæ Magnússon frá ÍA og Erni Bjarnason frá Leikni, vinstri bakvörðinn Ásgeir Pál Magnússon frá Leikni Fáskrúðsfirði, og markverðina Ásgeir Orra Magnússon frá Njarðvík og Rúnar Gissurarson úr Reyni Sandgerði.
Pepsi Max-deild karla Keflavík ÍF Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Handbolti Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Fleiri fréttir Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Sjá meira