Ókunnugar manneskjur gerast „rafrænir vinir“ og byrja spjall. Stundum er bara um saklaust kurteisisspjall að ræða og svo mælir fólk sér mót og kynnist betur.
Í öðrum tilvikum þróast rafræna spjallið í ákafari samræður, nánari og innilegri. Fólk kynnist án þess að hittast.
Samskiptin eru kannski oft á dag, yfir einhverjar vikur. Sérstaklega ef mikil fjarlægð er á milli fólks eða nú á tímum heimsfaraldurs þegar tækifærin til að hittast eru ekki á hverju strái.
Ástin í rafrænum heimi
Þó svo að fólk sé ekki búið að hittast augliti til auglitis getur það myndað einhverjar tilfinningar til manneskjunnar hinum megin við lyklaborðið, mis miklar auðvitað.
Einhverjir segjast þó hafa orðið ástfangnir í gegnum rafræn samskipti. Ástfangnir af manneskju sem þeir hafa ekki hitt í raunheimum.
Spurningu vikunnar er beint til allra þeirra sem hafa verið í leit að ástinni og átt í samskiptum á samfélagsmiðlum og stefnumótaforritum.