Alþingi í klípu vegna Megasarmála Jakob Bjarnar skrifar 16. desember 2021 13:10 Ásakanir á hendur Megasi hafa sett þingmenn sem eiga sæti í allsherjar- og menntamálanefnd í verulega klípu. Nokkrir þeirra vilja henda Megasi af lista. Meðal dagskrárliða á fundi allsherjar- og menntamálanefndar (amen) í gær og aftur í dag eru heiðurslaun listamanna. Mjög skiptar skoðanir eru innan nefndarinnar hvað skuli gera varðandi Megas sem er á lista yfir þá sem þiggja heiðurslaun en eftir að viðtal birtist í Stundinni við konu sem sakar Megas um kynferðisofbeldi. Í ljósi þess þykir ýmsum, þar á meðal nefndarmönnum, það ótækt að Megas sé á heiðurslaunum listamanna. Í Stundinni segir að Bergþóra Einarsdóttir hafi tilkynnt meint brot Megasar og Gunnars Arnar Jónssonar kenndan við hljómsveitina Súkkat, til lögreglu strax árið 2004, en gögnin fundust ekki aftur í málaskrá lögreglu. „Árið 2011 lagði hún fram formlega kæru en frekari rannsókn fór aldrei fram, þeir voru aldrei kallaðir fyrir og málið fellt niður þar sem það var talið fyrnt, enda skilgreint sem blygðunarsemisbrot. Niðurstaðan var kærð til ríkissaksóknara sem taldi málið heyra undir nauðgunarákvæðið en felldi það einnig niður á grundvelli einnar setningar.“ Allsherjar- og menntamálanefnd veltir þessum málum nú fyrir sér og á í standandi vandræðum með það enda er það afar flókið. En samkvæmt heimildum Vísis verður reynt að koma í veg fyrir að það komi fyrir þingið sjálft en sérstaklega þætti þingheimi það illt við að eiga ef ef beðið yrði um sundurliðun þannig að þingið þyrfti að greiða atkvæði um hvern og einn á listanum. Leitað að tveimur til þremur listamönnum til að fylla hópinn 23 eru nú á heiðurslaunum en meðal þess sem nefndin lítur á sem verkefni sitt er að finna til tvo sem setja má á listann en heiðurslaun listamanna eru veitt allt að 25 listamönnum árlega. Þó uppi séu skiptar skoðanir á þessu fyrirbæri þá munu menn, ef þeir sjá fram á að fá ekki lögum breytt, berjast fyrir „sínum mönnum“ en heiðurslaunin og hverjir þau hlutu voru löngum undirorpin flokkspólitískum hrossakaupum. Í lögum segir að þeir einir geti notið heiðurslauna sem hafa varið starfsævi sinni eða verulegum hluta hennar til liststarfa eða skarað fram úr við listsköpun sína eða ef störf þeirra að listum hafa skilað miklum árangri á Íslandi eða á alþjóðavettvangi. „Forseti Alþingis skipar nefnd þriggja manna sem allsherjar- og menntamálanefnd leitar umsagnar hjá um þá listamenn sem til greina koma að njóta launanna skv. lögum nr. 66/2012 um heiðurslaun listamanna.“ Nokkrir nefndarmanna vilja Megas út Í nefndinni eiga sæti Bryndís Haraldsdóttir (formaður), Jóhann Friðrik Friðriksson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Bergþór Ólason, Birgir Þórarinsson, Eyjólfur Ármannsson, Jódís Skúladóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Logi Einarsson en áheyrnarfulltrúi er Sigmar Guðmundsson. Eftir því sem Vísir kemst næst er afstaða nefndarmanna til þessa máls þverpólitísk. Nokkrir eru helst á því að víkja beri Megasi af lista og þar með svipta hann heiðurslaununum. En meðal spurninga sem nefndarmenn spyrja sig er hvort myndast geti skaðabótaskylda við það að taka Megas af listanum? Þá að teknu tilliti til þess að um æviskipan er að ræða, engin dæmi eru um að fólk hafi verið svipt heiðurslaunum, en ekkert segir um það í lögum að þeir sem þiggi heiðurslaun þurfi að vera vammlausir. Og ekki er um mál að ræða sem hefur verið afgreitt af hálfu dómskerfisins þannig að ákvörðunin hlyti að byggjast á ásökunum sem ekki hafa hlotið meðferð réttarkerfisins. Betlað og bísast í bænum DV tók fréttaviðtal við Megas af því tilefni og birti undir fyrirsögninni: „Það þýðir ekki að betla og bísast í bænum“. Þar segist Megas ekki hafa heyrt annað en fólk vilji óska honum til hamingju með það. DV ræddi við Megas í desember 2003 þegar spurðist að hann myndi hljóta heiðurslaun. „Kannski fæ ég bréf á mánudaginn, en þangað til verð ég að lifa samkvæmt því að eiga ekki neitt,“ sagði Megas við það tilefni. Blaðamaður DV, sem kallar Megas meistara, og spyr hvort meta megi þetta sem svo að Megas fái nú „loksins“ viðurkenningu fyrir störf sín. „Það hefur alltaf virst eins og það séu einhverjir verndarmúrar þarna. Ég veit ekki hvort það sé hægt að kalla það viðurkenningu frá fólki þó að maður fái laun frá hinum svokölluðu fulltrúum þess.“ Heiðurslaun listamanna eru veitt listamanni að fullu til sjötíu ára aldurs og skulu vera þau sömu og starfslaun listamanna eru á hverjum tíma. Eftir sjötugt eru þau 80% af starfslaunum. Starfslaun listamanna í fyrra voru rúmlega 400 þúsund krónur á mánuði eða tæpar fimm milljónir króna yfir árið. Þeir sem eru á heiðurslaunum listamanna Þeir sem voru á lista yfir heiðurslistamenn þjóðarinnar voru eftirfarandi en Jón Sigurbjörnsson og Vilborg Dagbjartsdóttir féllu frá á árinu. 1. Bubbi Morthens 2. Erró 3. Friðrik Þór Friðriksson 4. Guðbergur Bergsson 5. Guðrún Ásmundsdóttir 6. Guðrún Helgadóttir 7. Gunnar Þórðarson 8. Hannes Pétursson 9. Hreinn Friðfinnsson 10. Jón Ásgeirsson 11. Jón Nordal 12. Jón Sigurbjörnsson 13. Jónas Ingimundarson 14. Kristbjörg Kjeld 15. Kristín Jóhannesdóttir 16. Magnús Pálsson 17. Matthías Johannessen 18. Megas 19. Steina Vasulka 20. Vigdís Grímsdóttir 21. Vilborg Dagbjartsdóttir 22. Þorbjörg Höskuldsdóttir 23. Þorgerður Ingólfsdóttir 24. Þráinn Bertelsson 25. Þuríður Pálsdóttir Alþingi Kynferðisofbeldi Tónlist Listamannalaun Mest lesið „Vinkonusambönd virka aldrei ef það er afbrýðisemi“ Lífið Kári og Erla vilja 330 milljónir fyrir lúxusíbúð við höfnina Lífið Stórstjörnur flykkjast í verkefni Baltasars Bíó og sjónvarp Eiríkur og Guðrún selja eitt fallegasta hús Vesturbæjarins Lífið Linda Ben mætir á skjáinn í fyrsta sinn Lífið Edda Falak gaf bróður sínum nafna Lífið Fólk fer of snemma af stað í næsta samband Lífið Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu Tónlist Stóð ekki á svörum um vandræðalegasta augnablikið Lífið Krasinski er kynþokkafyllstur í ár Lífið Fleiri fréttir Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Sjá meira
1. Bubbi Morthens 2. Erró 3. Friðrik Þór Friðriksson 4. Guðbergur Bergsson 5. Guðrún Ásmundsdóttir 6. Guðrún Helgadóttir 7. Gunnar Þórðarson 8. Hannes Pétursson 9. Hreinn Friðfinnsson 10. Jón Ásgeirsson 11. Jón Nordal 12. Jón Sigurbjörnsson 13. Jónas Ingimundarson 14. Kristbjörg Kjeld 15. Kristín Jóhannesdóttir 16. Magnús Pálsson 17. Matthías Johannessen 18. Megas 19. Steina Vasulka 20. Vigdís Grímsdóttir 21. Vilborg Dagbjartsdóttir 22. Þorbjörg Höskuldsdóttir 23. Þorgerður Ingólfsdóttir 24. Þráinn Bertelsson 25. Þuríður Pálsdóttir
Alþingi Kynferðisofbeldi Tónlist Listamannalaun Mest lesið „Vinkonusambönd virka aldrei ef það er afbrýðisemi“ Lífið Kári og Erla vilja 330 milljónir fyrir lúxusíbúð við höfnina Lífið Stórstjörnur flykkjast í verkefni Baltasars Bíó og sjónvarp Eiríkur og Guðrún selja eitt fallegasta hús Vesturbæjarins Lífið Linda Ben mætir á skjáinn í fyrsta sinn Lífið Edda Falak gaf bróður sínum nafna Lífið Fólk fer of snemma af stað í næsta samband Lífið Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu Tónlist Stóð ekki á svörum um vandræðalegasta augnablikið Lífið Krasinski er kynþokkafyllstur í ár Lífið Fleiri fréttir Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Sjá meira