Hann vakti nýverið athygli fyrir sýninguna Becoming Richard sem birtist á 287 auglýsingaskjám á strætóskýlum og risa LED-skiltum við fjölförnustu gatnamót á höfuðborgarsvæðinu.
Fréttastofa leit við á nýju ljósmyndasýningunni, skoðaði myndirnar og spurði listamanninn, áður einkum framleiðandann, spjörunum úr:
„Kannski er þetta bara stormurinn fyrir lognið. Maður er aðeins að eldast og maður vill koma því frá sér sem maður hefur verið að gera. Kannski er þetta bara hluti af því að hreinsa út af harða diskinum,“ sagði Sigurjón í samtali við fréttastofu.
Hann kveðst sækja innblástur til Íslands og í íslenska náttúru. Helmingur sýningarinnar eru verk sem eru innblásin af hinni þekktu ferðabók rithöfundanna og skáldanna W.H. Auden og Louis Macneice, sem fyrst kom út árið 1937.
Hinn helmingur sýningarinnar vísar til Bandaríkjanna, einkum Los Angeles og listamanna sem eru eða hafa verið búsettir þar, og þeirra fjölmörgu landa og staða sem Sigurjón hefur heimsótt og kynnst í kringum starf sitt sem kvikmyndaframleiðandi.
Gestsaugað hefur að sögn veitt honum þar annars konar innblástur, því að þrátt fyrir 43 ára búsetu erlendis telur hann sig fyrst og fremst Íslending.