Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir og Ágúst Freyr Hallsson hafa verið par síðan árið 2016 og eiga þau saman einn dreng. Þau fóru að prófa sig áfram í eldhúsinu eftir að Metta féll fyrir acaí skálum á ferðalagi sínu um Bali. Þau stofnuðu fyrirtækið Maikai en tóku fyrst um sinn aðeins við pöntunum frá fyrirtækjum.
Eftirspurnin átti fljótt eftir að aukast og í dag eru sölustaðir Maikai orðnir sex talsins. Þau reka útibú í Smáralind og á Hafnartorgi, en samhliða því selja þau vörur undir merkinu í hinum ýmsu matvöruverslunum.
Þau Metta og Áki voru gestir í 32.þætti af hlaðvarpinu Betri helmingurinn með Ása sem hóf göngu sína síðasta vor. Umsjónarmaður þáttanna er Ásgrímur Geir Logason. Hann fær til sín þjóðþekkta einstaklinga ásamt þeirra betri helming og ræðir um ástarsambandið, lífið og tilveruna.
Vandræðaleg fyrstu kynni á B5
Í þættinum segja þau frá því hvernig leiðir þeirra lágu saman í gegnum follow á Instagram.
„Ég vissi alltaf hver hann var,“ segir Metta. Hann hafði lengi verið í fótbolta og tengdist þannig vinum Mettu úr Kópavoginum.
„Svo vorum við bæði orðin einhleyp þarna árið 2016 og ég byrjaði að followa hann á Instagram,“ segir hún. Áki segist hins vegar ekki hafa vitað hver Metta væri á þessum tímapunkti.
Eftir orðskipti á Instagram færðu þau sig yfir á Snapchat þar sem þau héldu áfram að spjalla saman daglega.
„Ég var ekkert að spá í einhverju svona á þessum tíma, en Metta alveg náði að negla mig niður einn, tveir og þrír,“ segir Áki en Metta viðurkennir fúslega að hún hafi átt frumkvæðið að þeirra samskiptum til að byrja með.
Eins og í svo mörgum sönnum íslenskum ástarsögum, hittust þau Metta og Áki loks í fyrsta sinn á skemmtistaðnum B5.
„Ég man bara alveg mómentið þegar við sáum hvort annað í fyrsta skipti eftir að hafa talað svona mikið saman. Við vorum sjúklega vandræðaleg, Jesús minn almáttugur,“ segir Metta.
„Þetta var ekki eins rómantískt og ég hélt,“ bætir Áki við.
Var með aflitað hár og í gipsi þegar Metta kom heim
Eftir þessi vandræðalegu fyrstu kynni á B5 fór Metta fljótlega í sex vikna ferðalag til Bali. Á meðan á ferðinni stóð töluðu þau saman tvisvar á dag á Facetime, þrátt fyrir mikinn tímamismun.
„Þegar ég var að vakna þá var hún að fara sofa, eða öfugt. Annað hvort okkar sofnaði alltaf í miðju símtali.“
Þegar Metta kom heim úr ferðinni og þau hittust loksins aftur, telur Áki að Mettu hafi verið brugðið við þá sjón sem mætti henni.
„Ég tapaði einhverju veðmáli þannig ég þurfti að aflita á mér hárið. Svo handleggsbrotnaði ég í leik, þannig þegar hún kemur heim þá er ég aflitaður í gipsi. Ég var bara eins og Slim Shady upp á sitt besta.“
Þau hafa hins vegar verið saman allar götur síðan og þróuðust hlutirnir mjög hratt. Ári síðar áttu þau von á sínu fyrsta barni.
„Hún hringir í mig á meðan ég er í vinnunni og segir að við þurfum að tala saman,“ en Áka grunaði hvað væri í vændum.
Áki var að fara keppa í fótbolta eftir vinnu og var orðinn allt of seinn. Hann þurfti að koma við heima til þess að sækja fótboltadótið og þá segir Metta honum að hún sé ólétt.
„Svo fer ég og keppi og ég var bara eins og draugur sko.“
„Þarft bara að vera street-smart þegar þú ert að byrja“
Sonur þeirra, Viktor Svan, kom svo í heiminn árið 2018. Þau segja það hafa verið mikið púsluspil að vera með lítið barn á sama tíma og þau voru að koma fyrirtæki á laggirnar.
Metta og Áki eru ekki með neina viðskiptafræðimenntun og var Áki að ljúka við stúdentsprófið þegar þau opnuðu fyrsta Maikai staðinn.
„Ég held þú þurfir í rauninni bara að vera pínu street-smart þegar þú ert að byrja. Þú mátt ekki hugsa of mikið inni í kassa.“
Þau segjast hins vegar hafa verið dugleg að leita sér utanaðkomandi aðstoðar þegar kemur að þáttum í rekstrinum sem eru utan þeirra kunnáttusviðs.

Eru góð í því að vinna saman
Metta og Áki gera sér grein fyrir því að það að vinna með makanum sínum sé alls ekki fyrir alla, þeirra samstarf hafi hins vegar gengið vel.
„Við byrjuðum náttúrlega frekar snemma í okkar sambandi að vinna saman, þannig við erum bara mjög vön því. En ég held að við séum bara mjög góð í því að vinna saman og við erum greinilega með svona sömu sýn á hlutina og hvað við viljum gera.“
Þau segjast hvort um sig hafa sitt hlutverk í rekstrinum og bera mikla virðingu fyrir starfi hvors annars.
„Allavega enn sem komið er þá hefur þetta ekki haft nein neikvæð áhrif á sambandið okkar. Ég sef aldrei á sófanum,“ segir Áki.
Að mati Mettu bætti Áki hins vegar bæta aðeins í rómantíkina í sambandinu.
„Ég get ekki of mikla rómantík. Ég fæ svona klígju sko, mér finnst það hræðilegt. En það er til millivegur og Áki þarf aðeins að fara nær línunni, af því það vantar bara alla rómantík í þennan mann.“
„Þetta var alveg hræðilegt!“
Í þættinum segir Metta skemmtilega sögu af því þegar hún bauð Áka upp á hafragraut morguninn eftir að þau fóru heim saman eftir B5 kvöldið örlagaríka.
„Í dag þekki ég hann það vel að hann byrjar alla morgna á því að fá sér kaffi og hann er ekki mikill morgunverðargaur,“ en Metta gaf honum hins vegar kúffulla skál.
„Ég var bara að þvinga þetta ofan í mig þarna skelþunnur. Þetta var það síðasta sem mig langaði í,“ segir Áki.
Þá segja þau einnig frá óheppilegu atviki sem Metta lenti í eitt sinn þegar þau voru á leið til Akureyrar.
„Það hringir einhver í Mettu og Metta fer þvílíkt hjá sér og þetta var mjög skrítið símtal. Þá var sem sagt kona frá Kópavogsbæ að hringja í Mettu til að láta hana vita af því að hún fann ekki neinar upplýsingar um fötlunina hennar.“
Metta hafði ætlað sér að sækja um barnabætur en óvart fyllt út umsókn fyrir styrk vegna fötlunar. „Þetta var alveg hræðilegt,“ segir Metta.
Í þættinum segja segja þau ýmsar skemmtilegar sögur. Hlustendur fá meðal annars að heyra af því þegar Áki þurfti að sækja Mettu þegar þau voru nýbyrjuð að deita, eftir að það hafði liðið yfir hana.
Hér að neðan má hlusta á viðtalið við þau Mettu og Áka í heild sinni.