Erik, Gunnar og Sigrún ráðin í stjórnunarstöður hjá KPMG Atli Ísleifsson skrifar 11. nóvember 2021 09:26 Erik Christianson Chaillot, Gunnar Kristinn Sigurðsson og Sigrún Kristjánsdóttir. KPMG Erik Christianson Chaillot, Gunnar Kristinn Sigurðsson og Sigrún Kristjánsdóttir hafa verið ráðin í stjórnendastöður hjá KPMG.
Í tilkynningu segir að Erik hafi verið ráðinn mannauðsstjóri, Gunnar Kristinn forstöðumaður viðskiptaþróunar og Sigrún rekstrar- og fjármálastjóri. „Erik Christianson Chaillot hefur verið ráðinn mannauðsstjóri KPMG Síðastliðin sex og hálft ár hefur Erik starfað sem mannauðsstjóri hjá Kearney, alþjóðlegu ráðgjafarfyrirtæki, í Ástralíu þar sem hann var búsettur. Erik starfaði síðast á Íslandi hjá Capacent á ráðningarsviði og var hjá Nýherja þar á undan. Hann er með Bsc. gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og Msc. í viðskiptafræði með áherslu á mannauðsmál frá UNSW Business School í Ástralíu. Hann situr í framkvæmdastjórn og mun bera ábyrgð á mótun og innleiðingu mannauðsstefnu félagsins og stuðning við rekstur einstakra sviða. Gunnar Kristinn Sigurðsson hefur verið ráðinn forstöðumaður viðskiptaþróunar KPMG Gunnar hefur yfir 20 ára reynslu í markaðsmálum og viðskiptaþróun. Hann er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í alþjóða markaðsfræði frá Strathclyde University í Skotlandi. Gunnar starfaði áður sem markaðsstjóri hjá Isavia þar sem hann stýrði markaðs og samskiptamálum fyrirtækisins. Áður starfaði hann hjá Íslandsbanka þar sem hann starfaði við viðskiptarþróun, samskipta- og markaðsmál. Þá sat hann í stjórn ÍMARK, samtaka íslensks markaðsfólks á Íslandi frá 2017-2020. Gunnar ber ábyrgð á innleiðingu og mótun á stefnu félagsins í viðskiptaþróun og mun styðja við rekstur einstakra sviða. Sigrún Kristjánsdóttir hefur verið ráðin sem rekstrar- og fjármálastjóri KPMG Sigrún starfaði áður hjá Origo sem Forstöðumaður yfir Reikningshaldi og áður sem Forstöðumaður yfir Fjárstýringu og Hagdeild. Sigrún er með B.Sc. gráðu í Iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í Iðnaðarverkfræði frá Háskólanum í Karlsruhe, Þýskalandi. Hún hefur einnig lokið MBA gráðu frá Oxford Brookes Háskóla í Englandi. Sigrún ber ábyrgð á rekstri stoðsviðs KPMG og situr í framkvæmdastjórn félagsins. Hún ber einnig ábyrgð á innleiðingu á stefnu félagsins ásamt því að styðja við rekstur og stefnumótun einstakara sviða,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Mest lesið Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Sjá meira