Skúrir vestantil og stöku él við norðanströndina Atli Ísleifsson skrifar 4. nóvember 2021 07:23 Frá Langanesi á Akranesi. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir vestanátt í dag og skúrir á vestanverðu landinu. Síðdegis snýst vindur í norðlæga átt við norðurströndina með stöku éljum þar.
Hiti verður á bilinu tvö til sjö stig, en nærri frostmarki norðaustan- og austanlands. Á vef Veðurstofunnar segir að yfirleitt verði veður á morgun mjög svipað eins og í dag, en annað kvöld snúist vindur í austanátt suðvestantil með rigningu eða slyddu þar. „Laugardagur verður úrkomusamur um allt land með hvassri austanátt, en á sunnudag er útlit fyrir hægari vind og úrkomuminna veður, jafnvel þurrt að mestu vestantil. Hiti yfirleitt í bilinu milli 0 til 4 stig við suðurströndina, en annars um frostmark. Eftir helgi halda umhleypingarnar áfram.“ Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Vestlæg eða breytileg átt og slydduél eða él, en úrkomulítið austantil á landinu. Hiti 0 til 5 stig og vægt frost um landið norðaustanvert. Gengur í suðaustan 10-18 m/s með rigningu og hlýnandi veðri syðst um kvöldið. Á laugardag: Austan og norðaustanátt 10-18 m/s. Rigning eða slydda sunnantil, en víða snjókoma um landið norðanvert. Hiti nærri frostmarki. Norðlægari og kólnar meira um kvöldið, og styttir upp syðra. Á sunnudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt. Dálítil slydda um norðaustanvert landið en þurrt og bjart sunnanlands. Hiti kringum frostmark. Á mánudag: Hvöss suðaustanátt með rigningu eða slyddu í flestum landshlutum og hlýnandi veðri. Á þriðjudag: Suðlæg eða breytileg átt með vætu sunnantil, en norðanátt með snjókomu fyrir norðan. Á miðvikudag: Útlit fyir norðlæga átt með éljum um norðanvert landið, en bjart og þurrt sunnan heiða. Frost 0 til 5 stig.
Veður Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Fleiri fréttir Skýjað að mestu og hæg norðlæg eða breytileg átt Rigning og skúrir víða um land Bætir í úrkomu eftir hádegi Spáð hlýju veðri norðaustantil Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Sjá meira