Innlent

Landhelgisgæslan myndaði svæðið: Rýming stendur yfir í Útkinn

Árni Sæberg skrifar
Fjölmargar aurskriður hafa fallið í Útkinn í dag og í gær.
Fjölmargar aurskriður hafa fallið í Útkinn í dag og í gær. Landhelgisgæsla Íslands

Í nótt voru fimm bæir rýmdir í Þingeyjarsveit og bærinn Nípá í Útkinn var rýmdur í dag vegna aurskriðna. Gríðarleg úrkoma hefur verið á svæðinu frá því í gær og mikið vatn er í fjallshlíðum. Þyrla Landhelgisgæslunnar myndaði svæðið í dag.

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra segir að þyrla Landhelgisgæslunnar hafi flogið með sérfræðinga almannavarna að skriðusvæðinu í dag þar sem vísindamenn mátu aðstæður. Þá hafi íbúar á bæjum sem urðu innlyksa verið ferjaðir með þyrlunni. Björgunarsveitir hafi aðstoðað bændur á svæðinu við að komast til mjalta í dag.

Myndskeið frá svæðinu tekið úr þyrlu Landhelgisgæslunnar má sjá í spilaranum hér að neðan.

Ákveðið hafi verið á fundi með Veðurstofu Íslands að rýming verði í gildi til hádegis á morgun hið minnsta. Þá hafi óvissustigi verið lýst yfir á Tröllaskaga en mikil úrkoma sé enn þar.

Á Ólafsfirði hafi verið tilkynnt um vatn í átján húsum og sjötíu viðbragðsaðilar séu að störfum í bænum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×