Styrkari heilbrigðisþjónusta á Norðurlandi Svandís Svavarsdóttir skrifar 23. september 2021 16:01 Í heilbrigðisumdæmi Norðurlands bjuggu árið 2020 36.751 manns. Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) og Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) sinna heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi. HSN stýrir heilbrigðisþjónustu í umdæminu en SAk er sérgreinasjúkrahús fyrir Norður- og Norð-Austurland. Fjármagn til HSN hefur á kjörtímabilinu, þ.e. árunum 2017-2021, aukist um 12,9% skv. fjárlögum, án launa- og verðlagshækkana, þ.e. á föstu verðlagi, og sambærileg aukning á fjármagni til SAk er um 9%. Með auknu fjármagni er mögulegt að veita enn betri þjónustu til handa íbúum umdæmisins. Sterk heilbrigðisstofnun Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) sinnir allri heilsugæsluþjónustu á svæðinu frá Þórshöfn í austri til Blönduóss í vestri. Starfsemin er á sex meginstarfsstöðvum, þ.e. á Húsavík, Akureyri, Dalvík, í Fjallabyggð, á Sauðárkróki og Blönduósi. Heilsugæslustöðvar og heilsugæslusel HSN eru samtals 17 talsins. Þá rekur HSN sjúkra-, hjúkrunar- og dvalarrými á Húsavík, í Fjallabyggð, á Sauðárkróki og Blönduósi. Heilsugæsluþjónusta hefur verið styrkt á kjörtímabilinu, til dæmis með auknu fjármagni í heilsueflandi heimsóknir og heilsueflandi móttökur. HSN hefur unnið að innleiðingu heilsueflandi móttaka á öllu starfssvæðinu en markmið þeirra er að tryggja eldra fólki og einstaklingum með fjölþætt og langvinn heilsufarsvandamál þverfaglega og heildstæða heilbrigðisþjónustu og innleiða skipulagða heilsuvernd fyrir aldraða. Til þessa verkefnis hefur HSN fengið 24,2 milljónir. Sérstök áhersla hefur einnig verið lögð á þjónustu við þau sem eru með sykursýki í heilsugæslunni. Úrbætur á húsnæði heilsugæslunnar á Akureyri Lengi hefur verið kallað eftir úrbótum á húsnæði heilsugæslunnar á Akureyri. Mikil þörf var á því bregðast við þeirri stöðu, bæði til að bæta starfsumhverfi starfsmanna og laða að starfsfólk - en ekki síður til að skapa betri möguleika til að veita sem besta þjónustu. Á þessu kjörtímabili var ákveðið að bregðast við þessu ákalli og niðurstaðan var að opna tvær nýjar heilsugæslustöðvar á Akureyri. Annars vegar er þar um að ræða nýja byggingu fyrir Heilsugæslu suður en útboð er fyrirhugað á næstu vikum. Hins vegar er það nýtt húsnæði fyrir Heilsugæslu norður sem verður í leiguhúsnæði. Miklar væntingar eru bundnar við þá umbyltingu sem þetta nýja húsnæði mun hafa í för með sér á starfsaðstæðum og möguleikum til að mæta betur þjónustuþörfum skjólstæðinga heilsugæslunnar. Endurbætur á húsnæði HSN Hvað aðrar endurbætur á húsnæði HSN varðar þá standa framkvæmdir við nýtt stigahús við sjúkrahúsið á Húsavík yfir, auk standsetningar á herbergjum þar, en HSN fékk 200 milljóna króna framlag til nýframkvæmda og endurbótaverkefna. Þessar breytingar munu bylta aðstöðu sjúklinga. Einnig er unnið að endurbótum á 2. og 3. hæð á sjúkrahúsinu á Siglufirði. Efling geðheilbrigðisþjónustu Sálfræðingum innan HSN hefur fjölgað úr 4.35 stöðum 2016 í 9,2 stöður árið 2021, auk þess sem geðheilsuteymi hefur tekið til starfa innan HSN. Þessar breytingar eru til þess fallnar að efla geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu til muna. Þjónusta við aldraða Í heilbrigðisumdæmi Norðurlands eru um 383 hjúkrunarrými alls og 49 dvalarrými, í níu byggðakjörnum. Í umdæminu hefur verið unnið að því að bæta aðbúnað íbúa og breyta fjölbýlum í einkarými. Nú er unnið að undirbúningi byggingar nýs 60 rýma hjúkrunarheimilis á Húsavík. Samkeppni um hönnun húsnæðisins er lokið og er áætlað að nýtt heimili verði tilbúið til notkunar á fyrri hluta árs 2024. Hið nýja hjúkrunarheimili mun leysa af hólmi þau rými sem nú eru í hjúkrunarheimilinu Hvammi, en það húsnæði uppfyllir ekki nútímakröfur um aðbúnað, enda fluttu fyrstu íbúar þangað fyrir 40 árum. Á Akureyri er unnið að byggingu 60 nýrra rýma sem verður hrein viðbót við þann fjölda hjúkrunarrýma sem fyrir er í bænum. Það heimili á einnig að opna á árinu 2024. Ég hef á tímabilinu stutt við nýsköpunar- og þróunarvinnu í þjónustu við aldraða á Norðurlandi. Má þar nefna þróunarverkefni um sveigjanlega dagþjálfun sem starfsrækt hefur verið frá febrúar 2019 á Akureyri og hefur gefist mjög vel. Samið var um að nýta rekstrarheimildir 10 hjúkrunarrýma til að fjölga þjónustustundum í dagþjálfun. Með þeim hætti hefur verið hægt að stytta mjög biðtíma eftir dagþjálfun og þjóna mun fleirum en áður var. Eitt af markmiðum með sveigjanlegri dagþjálfun er að styðja við aldraða til að búa lengur sjálfstæðri búsetu á eigin heimili. Þjónustukannanir hafa sýnt fram á að mikil ánægja er með þjónustuna meðal þeirra sem hennar njóta. Tækjakaup og sjúkraflutningar Fjármagn til tækjakaupa á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni hefur verið aukið verulega á kjörtímabilinu. Fjármagnið hækkaði um 200 milljónir árið 2018 en á kjörtímabilinu nema fjárframlög til tækjakaupa heilbrigðisstofnananna tæpum 1,3 milljarði samtals. Sérstaklega var horft til endurnýjunar á myndgreiningarbúnaði stofnana, til dæmis á SAk. Jafnframt hófst endurnýjun á sjúkrabílaflota landsins á árinu, en kaup og rekstur bílanna er í samstarfi við Rauða krossinn. Sú endurnýjun er víða kærkomin, enda margir bílar víða komnir á tíma. Sterkt sjúkrahús SAk er annað tveggja sérgreinasjúkrahúsa landsins og gegnir lykilhlutverki í almannavörnum. Sjúkrahúsið er kennslusjúkrahús og þar fer fram öflugt starfsnám háskóla- og framhaldskólanema í heilbrigðisgreinum. Á SAk er einnig miðstöð læknisfræðilegrar þjónustu sjúkraflugs í landinu. Á sjúkrahúsinu eru meðal annars bráðalegudeildir fyrir fullorðna og börn, göngudeildir, rannsóknadeildir, gjörgæsludeild, skurðstofur o.fl. auk rýma á Kristnesspítala fyrir þá sem þurfa á þjónustu endurhæfingar- og öldrunarlækninga að halda. Öflug göngudeildarþjónusta er starfrækt á sjúkrahúsinu og fer sú þjónusta vaxandi með auknu framboði sérfræðinga. Bráðamótttaka er starfrækt þar og fæðingarþjónusta er rekin á sjúkrahúsinu, þar sem árlega fæðast um 400 börn. Mikill vöxtur hefur verið í þjónustu við fólk með krabbamein og sinnir almenna göngudeildin nú nær öllum þeim sjúklingum á svæðinu sem þurfa á krabbameinslyfjagjöf að halda. Alvarlega nýrnabilaðir sjúklingar geta nýtt sér blóðskilunarmeðferð á SAk og hefur orðið gífurlegur vöxtur í þeirri þjónustu undanfarin fimm ár. Á kjörtímabilinu hafa ýmis umbótaverkefnið verið unnin hjá SAk. Sem dæmi má nefna að sett var upp sýkla- og veirufræðideild með nauðsynlegum búnaði og formlegu leyfi til að greina tilkynningarskylda sjúkdóma í desember 2020 og í kjölfarið var til staðar geta á SAk til að greina Covid-19 sýni. Göngudeildarþjónusta við sjúklinga með langvinna sjúkdóma og meltingarmóttaka var fest í sessi árið 2020 og fjarheilbrigðisþjónusta hefur verið aukin á kjörtímabilinu. Nú nýlega var barna- og unglingageðteymi SAk eflt með 13 milljóna fjárframlagi frá heilbrigðisráðuneytinu. Mikil áhersla er lögð á eflingu vísinda- og rannsóknastarfs innan sjúkrahússins, til dæmis með því að skapa svigrúm og frjótt umhverfi vísinda- og þróunarstarfa. Ný vísindastefna SAk til ársins 2023, var mótuð og kynnt Bygging nýrrar legudeildar við SAk Nú stendur yfir undirbúningsvinna vegna byggingar nýrrar legudeildarálmu við SAk á Akureyri. Gert er ráð fyrir að húsið verði um 10.500 m² og frumathugun vegna verkefnisins er á lokametrunum og stefnt að samkeppni í kjölfarið. Bygging nýrrar legudeildar við SAk er langþráð og mun bæta aðstöðu á sjúkrahúsinu til muna. Heilbrigðisþjónustan í heilbrigðisumdæmi Norðurlands hefur sannarlega verið styrkt á fjölbreytta vegu á kjörtímabilinu. Starfsemi hefur verið efld með auknum fjárframlögum svo mögulegt hefur verið að ráðast í ný verkefni og efla þjónustu sem fyrir var, auk þess sem fjármagn hefur runnið til tækjakaupa og framkvæmda. Við þurfum að halda áfram að efla heilbrigðisþjónustuna á landsbyggðinni enn frekar á næsta kjörtímabili, öllum landsmönnum til heilla. Höfundur er heilbrigðisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Svandís Svavarsdóttir Vinstri græn Heilbrigðismál Skoðun: Kosningar 2021 Alþingiskosningar 2021 Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sjúkrahúsið á Akureyri Mest lesið Þegar sölumaður áfengis fræðir okkur um lýðheilsu Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Þegar enginn lætur vita - ofbeiting laga og kerfisblinda Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Næsti formaður Framsóknar Salvör Sól Jóhannsdóttir Skoðun Stöðluð meðalmennska og einkunnir án aðgreiningar Hlédís Maren Guðmundsdóttir Skoðun Takk læknar! Siv Friðleifsdóttir Skoðun Sveitarstjórnarkosningar 2026 – hvað gera Vinir Kópavogs? Ólafur Björnsson Skoðun Næsti formaður elsta stjórnmálaflokks Íslands – Framsóknarflokksins Þorvaldur Daníelsson Skoðun Bréf til Láru Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Takk fyrir traustið! Hörður Arnarson Skoðun Má bjóða þér meiri forræðishyggju, Lára? Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar rétturinn og réttvísin horfa undan Vigfús Eysteinsson skrifar Skoðun Efnahagsleg ábyrgð er fjölskyldumál Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Leikskólamál í Reykjavík – staðreyndir og mögulegar lausnir Baldur Borgþórsson,Hlynur Áskelsson skrifar Skoðun Takk læknar! Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Fjarðarheiðargöng: Öryggi, traust og framtíð Austurlands í húfi Guðný Lára Guðrúnardóttir skrifar Skoðun Ísland er að tapa hundruðum milljarða – eitrað framkvæmdakerfi lamar allt samfélagið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stöðluð meðalmennska og einkunnir án aðgreiningar Hlédís Maren Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sveitarstjórnarkosningar 2026 – hvað gera Vinir Kópavogs? Ólafur Björnsson skrifar Skoðun Bréf til Láru Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfi sem treystir á seiglu Sandra B. Franks skrifar Skoðun Er gervigreind verkfæri kommúnistans eða kapítalistans? Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Takk fyrir traustið! Hörður Arnarson skrifar Skoðun Laxeldisumræðan er lýðræðisumræða Gylfi Ólafsson skrifar Skoðun Endurvekjum hvata til fjárfestinga Hildur Eiríksdóttir skrifar Skoðun Næsti formaður elsta stjórnmálaflokks Íslands – Framsóknarflokksins Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Flott framtak Reykjavíkurráðs ungmenna Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Næsti formaður Framsóknar Salvör Sól Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Er smá Insta á skólatíma best? Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar sölumaður áfengis fræðir okkur um lýðheilsu Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Borgarlínuþrengingar Elías B. Elíasson,Ragnar Árnason,Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Lagareldi til framtíðar – ábyrgur rammi fyrir atvinnulíf, umhverfi og samfélög Gerđur B. Sveinsdóttir,Sigríđur Júlía Brynleifsdóttir,Bragi Þór Thorodssen,Þorgeir Pálsson,Jóna Árný Þórđardóttir,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Jón Páll Hreinsson skrifar Skoðun Norska konungdæmið Ingibjörg Kristín Jónsdóttir skrifar Skoðun Vangaveltur um „fólkið sem hvarf“ Skírnir Garðarsson skrifar Skoðun Karlmenn sem ógna landi og þjóð Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Að verða læs fyrir lífið Rúnar Sigþórsson skrifar Skoðun Grunnþjónusta fyrst og svo allt hitt……er flotgufa forgangsmál? Katrín Magnúsdóttir skrifar Skoðun Jafnrétti er ekki „aukaverkefni“ Arnar Gíslason,Joanna Marcinkowska,Sveinn Guðmundsson skrifar Skoðun Samgöngur þurfa jafnvægi, ekki skotgrafir Þórir Garðarsson skrifar Skoðun U-beygja í öldrunarþjónustu er ekki lausn Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvenær er komið nóg? Vilhelm Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Leikskólamál í Reykjavík – staðreyndir og mögulegar lausnir Baldur Borgþórsson,Hlynur Áskelsson skrifar
Skoðun Fjarðarheiðargöng: Öryggi, traust og framtíð Austurlands í húfi Guðný Lára Guðrúnardóttir skrifar
Skoðun Ísland er að tapa hundruðum milljarða – eitrað framkvæmdakerfi lamar allt samfélagið Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Næsti formaður elsta stjórnmálaflokks Íslands – Framsóknarflokksins Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Lagareldi til framtíðar – ábyrgur rammi fyrir atvinnulíf, umhverfi og samfélög Gerđur B. Sveinsdóttir,Sigríđur Júlía Brynleifsdóttir,Bragi Þór Thorodssen,Þorgeir Pálsson,Jóna Árný Þórđardóttir,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Jón Páll Hreinsson skrifar
Skoðun Jafnrétti er ekki „aukaverkefni“ Arnar Gíslason,Joanna Marcinkowska,Sveinn Guðmundsson skrifar