Von á næstu haustlægð í kvöld Eiður Þór Árnason skrifar 19. september 2021 07:51 Víða er spáð rigningu næstu daga. Vísir/Vilhelm Í dag er spáð vestan og suðvestan 3 til 10 metrar á sekúndu, skýjað með köflum og stöku skúrum en sunnan 8 til 13 og bjartviðri fram eftir degi á Austurlandi. Hiti 7 til 13 stig, hlýjast austanlands.
Í kvöld er von á næstu lægð að landinu sem birtist í vaxandi suðaustanátt og rigningu í kvöld og nótt, fyrst á Suður- og Vesturlandi. Að sögn Veðurstofunnar fara skilin svo norður yfir landið í nótt með úrkomu í öllum landshlutum. Á morgun snýst í vestan 5 til 13 metra á sekúndu en 13 til 20 sunnantil eftir hádegi og jafnvel hvassara í vindstrengjum undir Mýrdalsjökli og í kringum Öræfajökul. Rigning með köflum en þurrt að kalla austast. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag: Vestan og norðvestan 8-13 m/s, en 13-18 með suðurströndinni. Víða rigning, en þurrt á Suðausturlandi og Austfjörðum um kvöldið. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast suðaustanlands. Á þriðjudag: Norðlæg átt 5-13 m/s og rigning í flestum landshlutum. Líkur á slyddu um norðanvert landið, en styttir upp sunnantil. Kólnandi veður. Á miðvikudag (haustjafndægur): Norðvestan 8-15 m/s og rigning eða slydda norðanlands, en hægari og þurrt um landið sunnanvert. Hiti frá 2 stigum fyrir norðan, upp í 9 stig með suðurströndinni. Á fimmtudag: Ákveðin norðvestanátt með rigningu eða slyddu á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Hiti breytist lítið. Á föstudag: Norðaustlæg átt og dálitlir skúrir eða slydduél norðaustantil á landinu, en rigning með köflum sunnanlands. Svalt í veðri. Á laugardag: Útlit fyrir stífa norðlæga átt með skúrum eða slydduél norðanlands en bjartviðri syðra.
Veður Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Fleiri fréttir Skýjað að mestu og hæg norðlæg eða breytileg átt Rigning og skúrir víða um land Bætir í úrkomu eftir hádegi Spáð hlýju veðri norðaustantil Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Sjá meira