Lífið

Hjólaði þvert yfir landið á minna en sólarhring

Samúel Karl Ólason skrifar
Veðrið lék ekki við McElveen á ferð hans þvert yfir landið.
Veðrið lék ekki við McElveen á ferð hans þvert yfir landið. Evan Ruderman

Íþróttamaðurinn Payson McElveen hjólaði nýverið þvert yfir Ísland á innan við sólarhring. Hann er atvinnumaðurinn í fjallahjólreiðum og segir Ísland fallegasta land sem hann hafi komið til.

McElveen lagði af stað frá Akureyri klukkan 04:15 þann 10. september. Hann var svo kominn til Víkur eftir 19 klukkustundir og 45 mínútur. Hafði hann þá ferðast 407 kílómetra á afskekktum fjallavegum Íslands.

Í tilkynningu frá Ölgerðinni segiri að McElveen hafi lýst þessari hjólaferð sem „ferð ævinnar“. Hann er á samningi hjá Red Bull og stendur til að gera ferðinni skil í kvikmynd.

Payson McElveen á leið yfir landið.Evan Ruderman

„Þessi hjólaferð snérist minna um að slá tímamet heldur væri frekar persónuleg áskorun og tækifæri til að vera í nánd við náttúru Íslands. Lýsir McElveen Íslandi sem fallegasta landi sem hann hefur komið til,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir einnig að McElveen sé fyrsti maðurinn til að fara þessa leið á innan við sólarhring. Hann naut aðstoðar Chris Burkard, sem er einnig íþróttamaður og ljósmyndari.

Hann hefur áður komið til landsins en árið 2019 keppti hann einn í WOW Cyclothon og hjólaði hringveginn á 52:36:19, án þess að sofa.

„McElveen hjólaði við erfiðar aðstæður upp á hálendi og á vegum með lágmarksviðhaldi. Þegar hann var kominn niður af hálendinu nýtti hann þjóðveg 1 síðustu 91 km til Vík. Um 223 km af leiðinni var ómalbikað með engri aðstöðu á leiðinni til að stoppa. McElveen lagði af stað með meira en 7.000 kaloríur af mat til að næra sig á ferðalaginu,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að ferðinni hafi verið flýtt um tvo daga vegna slæmrar veðurspár. Þrátt fyrir það hafi McElveen þurft að hjóla í mótvindi mesta leiðina, í mikilli bleytu og kulda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.