Bein útsending: Rannsóknaþing og Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs Rannís 9. september 2021 08:46 Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís stýrir Rannsóknarþingi Rannís og Vísinda- og tækniráðs sem fram fer í dag milli klukkan 13 og 14. Bein útsending hefst klukkan 13. „
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru ein af fáum viðurkenningum til ungra vísindamanna sem standa sig vel á alþjóðlegum vettvangi. Verðlaunin hafa því mikla þýðingu fyrir vísindasamfélagið,“ segir Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís en Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs verða veitt í dag á Rannsóknaþingi Rannís og Vísinda- og tækniráðs. „Við Íslendingar eigum margt framúrskarandi vísindafólk og við heyrum gjarnan af þeirra rannsóknum í gegnum fréttir af því sem er efst á baugi, til að mynda eldgos og jarðhræringar, loftslagsmál eða erfðabreyttar veirur. Verðlaunin eiga að vekja athygli á því sem vel er gert og eru hvatning til ungra vísindamanna til að standa sig vel. Verðlaunin hafa verið veitt á öllum sviðum vísinda og hafa leitt til þess að fólk hefur fengið tækifæri til þess að gera nánari grein fyrir sínum rannsóknum. Hátt í fjörutíu vísindamenn hafa hlotið verðlaunin frá árinu 1987 og hefur þeim öllum gengið vel á sínu sviði. Þetta fólk er góðar fyrirmyndir,“ segir Hallgrímur. Hann segir öflugt vísindastarf treysti stoðir mannlífs á Íslandi en yfirskrift rannsóknaþingsins er Árangur í rannsóknum og nýsköpun til framtíðar. Á þinginu verður einnig fjallað um vísinda- og tæknistefnu Vísinda- og tækniráðs sem sett var árið 2020. „Verðmætasköpun í samfélagi byggist á hugviti og því mikilvægt að störfum í þekkingargreinum fjölgi. Í stefnu Vísinda- og tækniráðs sem sett var fyrir árið 2020 - 2022 kemur meðal annars fram að samkeppnissjóðir, Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður verði efldir og sú aðgerð hefur þegar gengið eftir en sjóðirnir stækkuðu um 50 % og rúmlega það á síðasta ári. Þá hafa stuðningsaðgerðir við fyrirtæki sem stunda rannsóknir og nýsköpun verið stórefldar og kattfrádráttur eða endurgreiðsla vegna rannsókna og þróunarverkefna aukinn. Í nýrri stefnu er fjallað um ýmiss önnur atriði s.s. gæði og fjármögnun háskólastarfs, úttekt á skatta og styrkjakerfi til rannsókna og nýsköpunar, eflingu færni á vinnumarkaði, opinn aðgang að gögnum og t.d. mælaborð nýsköpunar“ útskýrir Hallgrímur. Í lögum er kveðið á um þriggja ára stefnu en í núverandi stefnu er sett fram framtíðarsýn til ársins 2030. „Í fyrsta sinn síðan farið var að birta stefnu Vísinda- og tækniráðs er nú gerð grein fyrir sýn ráðsins til næstu tíu ára. Þar er lögð áhersla á að Ísland sé samfélag þar sem rannsóknir, hugvit, sköpun og frumkvæði leiða til umbóta, verðmætasköpunar og öflugs athafna- og menningarlífs. Hugarfar, fjármagn, umgjörð og mannauður styðji við vísindi og nýsköpun sem grundvöll velsældar.Þetta þýðir að rannsóknir og nýsköpun á Íslandi búi við svipaða umgjörð og er í alþjóðlegu umhverfi. Að við séum samkeppnishæf og að íslenskar stofnanir og fyrirtæki taki þátt í alþjóðlegu rannsóknar- og nýsköpunarstarfi. Það er mikilvægt að þjóð með svona lítið rannsóknaumhverfi stundi öflugt alþjóðlegt samstarf. Síðast en ekki síst að rannsóknir og nýsköpun nýtist við þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir sem samfélag,“ segir Hallgrímur. Bein útsending verður frá Grand Hótel og hefst klukkan 13 hér á Vísi og á rannis.is Hægt verður að fylgjast með þinginu í beinni útsendingu í spilaranum hér fyrir neðan. Útsendingin hefst klukkan 13 og stendur til klukkan 14. Dagskrá þingsins Forstöðumaður Rannís, Hallgrímur Jónasson, býður gesti velkomna Setning Rannsóknaþings Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra Árangur í rannsóknum og nýsköpun til framtíðar Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs og Ragnhildur Helgadóttir, formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs Afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs Kristján Leósson formaður dómnefndar, gerir grein fyrir valinu. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs afhendir verðlaunin.
Vísindi Tækni Mest lesið „Oft velt því fyrir mér: Hvenær munu þessar sögusagnir hætta?“ Atvinnulíf Flýgur til Íslands á mánudögum til að vinna hér þrjá daga vikunnar Atvinnulíf Sögurnar í fyrra: Því lífið er svo miklu meira en bara vinnan Atvinnulíf „Ætla ekki að ljúga því að ég sé einhver ofurhress morguntýpa“ Atvinnulíf „Þú vinnur eftir hentugleika á þeim staðsetningum sem henta“ Atvinnulíf Eftirmaður Norman yfir LIV-mótaröðinni fundinn Viðskipti erlent Enn bólar ekkert á skiptastjóra fyrir Novis Neytendur Þögul sem gröfin um auglýsinguna umdeildu Viðskipti innlent „Oft velur maður frekar það sem maður er góður í“ Atvinnulíf „Helst eldri stjórnendur sem vilja fá fólkið til baka“ Atvinnulíf Fleiri fréttir BYKO með ánægðustu viðskiptavinina áttunda árið í röð Greiðsluáskorun Rafbílaeigendur hljóta að hafa stáltaugar Bóndi í Borgarfirði keyrði Skoda-bíl yfir milljón kílómetra Góð kjör á afmælissýningu Toyota Eldamennskan og jólaljósin algengasti brunavaldur um hátíðirnar Smitten á lista yfir mesta tekjuaukningu á Norðurlöndum Jólagjöfin sem kemur sér alltaf vel Ævintýrið heldur áfram með Discovery! Halda jólin frítt með inneign í appinu Sjá meira