Lífið

Brit­n­ey einu skrefi nær því að losna undan oki föður síns

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Jamie Spears, faðir söngkonunnar Britney Spears, hefur nú formlega látið af forræði sínu yfir henni.
Jamie Spears, faðir söngkonunnar Britney Spears, hefur nú formlega látið af forræði sínu yfir henni. Getty/Isaac Brekken

Faðir söngkonunnar Britney Spears hefur skilað inn nauðsynlegum skjölum til þess að hann láti af forræði yfir dóttur sinni. Söngkonan færist því skrefinu nær að losna undan valdi föður síns, sem hefur stjórnað lífi hennar og fjármálum síðustu þrettán ár. Britney hefur barist fyrir sjálfræði sínu að undanförnu og er því um stóran sigur að ræða fyrir poppprinsessuna heimsfrægu.

Britney var svipt sjálfræði eftir að hún var nauðungarvistuð á geðdeild árið 2008 eftir að hafa fengið taugaáfall. Síðan þá hefur faðir söngkonunnar, James Spears , farið með mest völd yfir lífi hennar. 

Söngkonan hefur staðið í harðri baráttu fyrir því að fá stjórn á eigin lífi á nýjan leik. Síðastliðið ár sótti hún tvisvar um að faðir henni myndi láta af forræði yfir henni.

Hún tjáði sig um frelsissviptinguna fyrir dómstólum í sumar þar sem hún greindi meðal annars frá því að hún hefði verið neydd til þess að vera á getnaðarvörn.

„Ég hef logið því að öllum heiminum að allt sé í lagi og mér líði vel“ sagði Brit­n­ey við dómarann í dag. Hún sagðist hafa verið í af­neitun og talið sér trú um að ef hún segði sjálfri sér nógu oft að henni liði vel færi henni að gera það. „Ég er í losti og á­falli. Ég er svo reið að það nær engri átt.“

Sjálfræðisbarátta hennar hefur vakið heimsathygli og aðdáendur víða um heim stutt söngkonuna á veraldarvefnum og efnt til mótmæla undir myllumerkinu #FreeBritney.

Í síðasta mánuði bárust fréttir þess efnis að faðir hennar hefði tekið ákvörðun um að láta af forræðinu sökum linnulausra árása í sinn garð. Nú hefur hann skrifað undir pappíra þar sem hann lætur formlega af forræði yfir dóttur sinni en nú tekur við nokkur bið eftir að skjölin verði staðfest af dómstólum. 

„Ef fröken Spears vill endurheimta sjálfræðið og telur að hún geti ráðið við sitt eigið líf, telur herra Spears að hún eigi að fá tækifæri til þess,“ segir í dómskjölum.


Tengdar fréttir

Brit­n­ey vill kæra pabba sinn fyrir mis­notkun

Tónlistarkonan Britney Spears hefur lýst því yfir að hún vilji kæra föður sinn, Jamie Spears, fyrir að hafa misnotað vald sitt yfir henni en hann hefur haft forræði yfir henni, ásamt öðrum, undanfarin 13 ár. Þetta sagði stjarnan í yfirlýsingu fyrir dómi í gær.

Brit­n­ey verður á­fram á valdi föður síns

Dómari í sjálfræðismáli söngkonunnar Britney Spears tilkynnti í gær að faðir hennar, Jamie Spears, verði áfram með fjárhagslegt vald yfir henni. Vika er síðan Britney flutti tilfinningaríka ræðu fyrir dómara í Los Angeles og var niðurstaðan kveðin upp í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.