Hæstiréttur neitar að fella „hjartsláttarlöggjöfina“ úr gildi Atli Ísleifsson skrifar 2. september 2021 07:59 Víða í Bandaríkjunum hefur löggjafinn leitað allra ráða til að takmarka aðgengi kvenna að þungunarrofi. AP/LM Otero Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað því að fella úr gildi ný lög í Texas sem banna þungunarrof í nær öllum tilfellum. Lögin tóku gildi í gær og kröfðust þá fjöldi samtaka sem berjast fyrir rétti kvenna til þungunarrofs þess að Hæstiréttur landsins myndi fella þau úr gildi.
Fimm dómarar við réttinn lögðust hins vegar gegn því en fjórir voru því samþykkir. Breska ríkisútvarpið segir frá því að í rökstuðningi meirihluta hafi komið fram að ákvörðunin fæli þó ekki í sér einhverja niðurstöðu um hvort nýju lögin samræmdust stjórnarskrá og að dómsmál þessu tengt gætu enn komið til kasta Hæstaréttar. Lögin eru þau ströngustu í landinu frá því að Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu á 8. áratug síðustu aldar að konur hefðu stjórnarskrárvarinn rétt til þungunarrofs í máli sem kennt hefur verið við Roe gegn Wade. Lögin í Texas meina konum að gagnast undir þungunarrof um leið og stuðningsmenn þeirra telja að hægt sé að greina hjartslátt fóstursins, sem gerist vanalega í kringum sex vikna meðgöngu. Margar konur vita ekki af því að þær séu óléttar svo snemma. Allir þeir þrír dómarar sem Donald Trump skipaði við réttinn greiddu atkvæði gegn því að fella lögin úr gildi.
Bandaríkin Þungunarrof Hæstiréttur Bandaríkjanna Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Sjá meira