Róbert Orri fór meiddur til Montreal og verkirnir hættu ekki Sindri Sverrisson skrifar 24. ágúst 2021 15:18 Róbert Orri Þorkelsson í leik við Frakka á EM U21-landsliða. Getty/Peter Zador Það verður bið á því að knattspyrnumaðurinn Róbert Orri Þorkelsson leiki sína fyrstu leiki fyrir kanadíska félagið Montreal í MLS-deildinni. Hann verður frá keppni næstu 2-3 mánuðina.
Róbert Orri, sem er uppalinn hjá Aftureldingu, var seldur til Montreal frá Breiðabliki í sumar. Hann hefur ekkert getað spilað fyrir liðið vegna meiðsla sem kallast íþróttakviðslit (e. sports hernia). Róbert Orri meiddist í apríl eða skömmu eftir að hafa komið heim af Evrópumóti U21-landsliða. Hann náði að spila þrjá leiki í Pepsi Max-deildinni í sumar, áður en hann var seldur, en varð á endanum að fara í aðgerð vegna verkja. „Við vissum að Róbert væri með þessi meiðsli þegar hann kom til félagsins í júní en það var mikilvægt fyrir okkur að kaupa hann,“ sagði Olivier Renard, íþróttastjóri Montreal. „Við vonuðumst til þess að hann myndi jafna sig en verkirnir eru enn til staðar svo við ákváðum að hann færi í aðgerð. Við óskum honum skjóts bata.“ Það er því ljóst að hinn 19 ára Róbert Orri verður ekki í U21-landsliðinu þegar það byrjar nýja undankeppni EM í september með útileik við Hvíta-Rússland og heimaleikjum við Grikkland og Portúgal.
MLS Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Handbolti Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Bíða eftir upplýsingum um hráka Ísraelans Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Sjá meira