Jón Axel hitti áfram illa í tapi Phoenix Suns í Sumardeild NBA í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2021 07:30 Jón Axel Guðmundsson hefur verið óheppinn með skotin sín í leikjunum í Las Vegas. Getty/Jürgen Kessler Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson spilaði með Phoenix Suns í nótt þegar liðið tapaði naumlega á móti Cleveland Cavaliers í Sumardeild NBA í Las Vegas.
Cavaliers vann leikinn 88-85 og endaði þar með tveggja leikja sigurgöngu Suns liðsins á mótinu. That's a wrap in Vegas.Kyle Alexander: 18 PTS, 14 REBS, 3 BLKSMichael Frazier: 17 PTS, 3 REBS, 3 ASTSTy-Shon Alexander: 14 PTS, 3 ASTS, 2 REBS pic.twitter.com/KUoln576IK— Phoenix Suns (@Suns) August 16, 2021 Jón Axel spilaði í sextán mínútur í leiknum og var með fimm stig, þrjú fráköst og þrjár stoðsendingar á þeim. Jón hélt hins vegar áfram að hitta mjög illa. Hann hitti aðeins úr 1 af 10 skotum sínum í leiknum og öll fjögur þriggja stiga skot hans misfórust. Hann hitti aftur á móti úr 3 af 4 vítaskotum. Jón Axel hefur spilað í fjórum síðustu leikjum Phoenix Suns í Las Vegas en skotin hafa ekki verið að detta hjá honum. Hann er aðeins með sextán prósent skotnýtingu (4 af 25) og hefur klikkað á tólf af þrettán þriggja stiga skotum sínum í leikjunum fjórum. Jón hefur aftur á móti hækkað stigaskor sitt með hverjum leik úr einu stigi á móti Utah Jazz, í þrjú stig á móti Denver Nuggets, í fjögur stig á móti Portland Trail Blazers og hann skoraði síðan eins og áður sagði fimm stig á móti Cleveland Cavaliers í nótt.
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Búið spil hjá fyrirliðanum en Barcelona má fá nýjan mann Fótbolti Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira