Myo Touch nuddbekkurinn frá Gtech fær frábæra dóma heilsubloggara Gtech.is 13. ágúst 2021 08:46 Myo Touch sjálfvirki nuddbekkurinn er frábær lausn til að hjálpa þér að mýkja upp vöðva, ná slökun og róa líkama og sál. Sjálfvirki nuddbekkurinn Myou Touch frá Gtech hefur fengið frábærar mótttökur. Á síðustu tveimur árum hafa ryksugurnar frá Gtech slegið rækilega í gegn. Breski verkfræðingurinn Nick Grey, stofnandi og eigandi Gtech er mikill áhugamaður um Border Collie-hunda og hannaði því ryksugurnar sérstaklega með gæludýraeigendur í huga. Og hvað gerir svo þessi sami verkfræðingur þegar hann þjáist af bakverkjum? Jú, hann hannar sjálfvirkan nuddbekk til heimabrúks. Þessi nýjasta vara í Gtech-vörulínunni, Myo Touch nuddbekkurinn hefur fengið frábærar mótttökur og heilsubloggarar keppast við að lofa gripinn, bæði hönnun hans, einfaldleika, virkni og þægindi. Bakverkir höfðu hrjáð Grey árum saman og voru farnir að standa í vegi fyrir því að hann gæti gert það sem hann langaði. Langar og dýrar ferðir til nuddara voru að hans mati bæði tímafrekar og óumhverfisvænar, svo hann fór að þróa hugmyndir sínar að nuddbekknum. Með hönnun Myo Touch var hann þó ekki síður að hugsa um að gefa sér og öðrum tækifæri til að slaka á í hinu daglega amstri og losa um stress, með lítilli fyrirhöfn. Myo Touch nuddbekkurinn samanstendur af léttri álgrind með strigaáklæði. Undir er nuddkefli sem gengur fram og til baka á brautum. Margir glíma við spenntar herðar, vöðvabólgu, þreytta mjókbaksvöða, bakverki eða aðra kvilla sem sem geta stafað ýmist af hraða og streitu eða slæmri og einhæfri líkamsstöðu í vinnunni. Svo eru hinir sem eiga það til að taka of mikið á í ræktinni eða hlaupunum og kljást við strengi og harðsperrur. Hvorum hópnum sem þú tilheyrir, þá er Myo Touch frábær lausn til að hjálpa þér að mýkja upp vöðva, ná slökun og róa líkama og sál, án þess að þurfa að panta tíma hjá nuddara. Í stuttu máli samanstendur Myo Touch nuddbekkurinn af léttri álgrind með strigaáklæði sem þú leggst á. Þar undir er nuddkefli sem gengur fram og til baka á brautum. Hægt er að stilla stoppara á brautunum svo þú getur valið um að láta nudda allan líkamann eða taka fyrir ákveðin svæði, svo sem axlir, mjóbak, rass, læri eða kálfa. Með einföldum rofa velurðu hversu kröftugt nuddið er. Áferðin og raufarnar á keflinu eru gerðar til að komast að vöðvunum, vinna úr spennunni og hjálpa þér við að losa streitu. Bekknum fylgja svo einnig leiðbeiningar um hugleiðslu-, öndunar- og tækniæfingar sem geta aukið ávinninginn af nuddinu sjálfu. Bekkurinn er samanbrjótanlegur og það fer því lítið fyrir honum í geymslunni milli þess sem hann er í notkun. Hann er einnig auðveldur í uppsetningu, það tekur aðeins nokkrar mínútur að skella honum upp heima eða í vinnunni. Vörur frá Gtech hafa náð að festa sig í sessi sem gæðavörur, m.a. áðurnefndar ryksugur, en Gtech framleiðir einnig ýmis rafmagnsverkfæri, garðsláttuvélar o.fl. Nánari upplýsingar um þær og Myo Touch nuddbekkinn er að finna á gtech.is. Heilsa Tækni Mest lesið Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Viðskipti erlent Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Neytendur Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Viðskipti erlent Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Viðskipti innlent Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Samstarf Ríteil Kids hættir rekstri Viðskipti innlent Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Samstarf Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Viðskipti innlent Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Samstarf Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Greiðsluáskorun Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Sjá meira
Vörur frá Gtech hafa náð að festa sig í sessi sem gæðavörur, m.a. áðurnefndar ryksugur, en Gtech framleiðir einnig ýmis rafmagnsverkfæri, garðsláttuvélar o.fl. Nánari upplýsingar um þær og Myo Touch nuddbekkinn er að finna á gtech.is.
Heilsa Tækni Mest lesið Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Viðskipti erlent Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Neytendur Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Viðskipti erlent Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Viðskipti innlent Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Samstarf Ríteil Kids hættir rekstri Viðskipti innlent Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Samstarf Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Viðskipti innlent Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Samstarf Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Greiðsluáskorun Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Sjá meira
Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl