Innlent

Björn Þorvaldsson metinn hæfastur um­sækj­enda

Eiður Þór Árnason skrifar
Björn Þorvaldsson hefur verið með mörg af stærstu málum héraðssaksóknara á sinni könnu undanfarin ár.
Björn Þorvaldsson hefur verið með mörg af stærstu málum héraðssaksóknara á sinni könnu undanfarin ár. Vísir/Vilhelm

Björn Þorvaldsson, saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, hefur verið metinn hæfastur umsækjenda um stöðu dómara með starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur.

Dómarinn mun einnig sinna störfum við aðra héraðsdómstóla eftir ákvörðun dómarasýslunnar. Greint er frá þessari niðurstöðu dómnefndar um hæfni umsækjenda um embætti dómara á vef Stjórnarráðsins.

Alls bárust sjö umsóknir en auk Björns sóttu Herdís Hallmarsdóttir lögfræðingur, Nanna Magnadóttir formaður úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála, Sigríður Rut Júlíusdóttir lögmaður, Sigurður Jónsson lögmaður, Valborg Steingrímsdóttir aðstoðarmaður dómara í Landsrétti og Þorsteinn Magnússon framkvæmdastjóri óbyggðanefndar um embættið. Staðan var auglýst laus til umsóknar þann 7. maí síðastliðinn.

Flutt umfangsmikil efnahagsbrotamál

Björn hefur í tæplega 18 ár fengist við rannsókn sakamála og ákvörðun um saksókn, svo og við flutning sakamála fyrir dómi, fyrst sem fulltrúi og síðar saksóknari. Hann varð saksóknari hjá embætti sérstaks saksóknara árið 2009 og gegndi því þar til hann tók við starfi sviðsstjóra ákærusviðs efnahags- og skattalagabrota hjá sama embætti.

Hefur Björn meðal annars flutt mörg umfangsmikil og flókin efnahagsbrotamál á öllum dómstigum. Hann lauk meistaraprófi í Evrópurétti frá Háskólanum í Lundi árið 2002 og hefur fengist við lagakennslu í Háskólanum í Reykjavík, Háskólanum á Bifröst og Háskólanum á Akureyri.

Dómnefndina skipuðu Eiríkur Tómasson, formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Kristín Benediktsdóttir, Óskar Sigurðsson og Ragnheiður Harðardóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×