„Peps“ Persson fallinn frá Atli Ísleifsson skrifar 28. júní 2021 09:49 Skánsk mállýska setti mikinn svip á tónlist Peps Persson. Facebook Sænski tónlistarmaðurinn Peps Persson er fallinn frá, 74 ára að aldri. Umboðsmaður Perssons segir að hann hafi látist á laugardaginn, eftir að hafa glímt við veikindi um nokkurt skeið.
Tónlistarmaðurinn, sem hét Per-Åke Persson réttu nafni, var þekktur fyrir blús- og reggítónlist sína sem hann söng á sinni þekktu skánsku mállýsku. Persson gaf út fjölda þekktra laga með sveit sinni Peps Blodsband sem stofnuð var á áttunda áratugnum, meðal annars lagið Falsk matematik sem var á sænska vinsældalistanum í fimmtán vikur árið 1973 og lagið Hög standard frá 1975. Sömuleiðis naut lagið Oh Boy! mikilla vinsælda þar sem hann söng um sænska sumarveðrið árið 1992. Peps Persson vann á ferli sínum með fjölda annarra sænskra tónlistarmanna, þeirra á meðal Nisse Hellberg, Wilmer X og Timbuktu.
Tónlist Svíþjóð Andlát Mest lesið Var atvinnulaus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók ákvörðun sem breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira