„Hef áhyggjur af Keflavík en neita að trúa því öðru en þeir vinni allavega einn leik“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. júní 2021 13:31 Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í Keflavík verða að vinna Þór Þ. í kvöld ef þeir ætla að möguleikanum á að verða Íslandsmeistarar á lífi. vísir/bára Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur og einn sérfræðinga Domino's Körfuboltakvölds, neitar að trúa því að Keflavík vinni ekki leik gegn Þór Þ. í einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. Þórsarar eru 2-0 yfir í einvíginu og geta tryggt sér fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins með sigri í Keflavík í kvöld. Í samtali við Vísi segist Benedikt frekar hallast að sigri Keflavíkur í kvöld. Fyrir einvígið gegn Þór hafði Keflavík unnið átján leiki í röð en liðið er nú komið í afar erfiða stöðu. „Þetta er búið að vera svo ótrúlegt tímabil og ótrúlegir hlutir eins og að Þórsarar sópi Keflvíkingum gætu alveg gerst en ég er nú á því að Keflavík láti það ekki gerast. Ég spái allavega Keflavík sigri í kvöld,“ sagði Benedikt. Verða alltaf betri og betri Fyrir tímabilið voru ekki miklar væntingar gerðar til Þórsara og þeim var meðal annars spáð falli. En núna eru þeir bara einum sigri frá því að verða Íslandsmeistarar. „Þetta er alvöru lið sem er búið að vera gott í allan vetur. Þetta er vel samsett lið og þeir hafa ekki þurft að gera neinar breytingar. Þeir vaxa saman og verða alltaf betri og betri,“ sagði Benedikt. Þórsarar lentu í 2. sæti Domino's deildarinnar og eru nú bara einum sigri frá því að verða Íslandsmeistarar.vísir/Bára Hann segir að spilamennska Keflvíkinga í úrslitaeinvíginu hafi komið sér á óvart þótt liðið hafi ef til vill ekki náð alvöru flugi í úrslitakeppninni allri. „Ég átti von á sterkara Keflavíkurliði. Þegar maður horfði á þá í átta liða úrslitunum fannst manni þeir ekki spila sinn besta bolta en þeir voru aðeins betri í undanúrslitunum,“ sagði Benedikt en Keflavík vann bæði Tindastól og KR 3-0. Hafa mætt ofjörlum sínum „Maður hélt að þeir myndu bæta við sig snúning í úrslitunum en þeir virðast bara hafa mætt ofjörlum sínum í þessum tveimur leikjum. Keflavík vann báða leikina gegn Þór í deildakeppninni og urðu síðan langbesta lið landsins í langan tíma.“ Calvin Burks var besti leikmaður Keflavíkur í öðrum leiknum gegn Þór.vísir/bára Benedikt segir að það hafi ekki komið sér í opna spjöldu að Keflvíkingar skyldu tapa í Þorlákshöfn en tapið á heimavelli hafi komið á óvart. „Mér var brugðið hvernig þeir töpuðu fyrsta heimaleiknum í þessu einvígi. Það er ástæðan fyrir því að þeir eru ekkert í góðum málum í úrslitunum, að hafa tapað heimaleiknum og það svona illa. En ég var alveg viðbúinn því að Þór myndi vinna í Höfninni,“ sagði Benedikt. Sé ekkert taka þá úr jafnvægi Þórsarar stigið mörg og stór skref fram á við á tímabilinu en eiga eftir að taka það stærsta, vinna Keflvíkinga í þriðja sinn til að tryggja sér Íslandstitilinn í fyrsta sinn í sögunni. „Það er eitt að vinna leiki en annað að taka síðasta sigurinn sem þarf til að tryggja sér titilinn. Lið geta stundum stressast upp við það að hafa bikarinn í húsinu. En mér finnst þetta Þórsliðið vera svo gríðarlega einbeitt að ég sé ekkert taka þá úr jafnvægi. Þeir eru ofboðslega einbeittir og komu líka inn í einvígið með allt vinna að vinna en engu að tapa,“ sagði Benedikt. Græni drekinn hefur látið vel í sér heyra í úrslitakeppninni og verður vafalítið í stuði í Blue-höllinni í kvöld.vísir/bára „Á meðan er þessu öfugt farið hjá Keflavík. Það voru allir búnir að láta þá hafa titilinn og tala um að þeir væru langbestir. Eftir að þeir kláruðu Stjörnuna tók Lárus [Jónsson, þjálfari Þórs] það fram að þeir væru að fara að mæta langbesta liði landsins og svona. Keflavík hefur öllu að tapa en ekkert að vinna lengur og það er hugarástand sem er ekkert sérstaklega gott. Ég hef áhyggjur af Keflavík en neita að trúa því öðru en þeir vinni allavega einn leik,“ sagði Benedikt að lokum. Í 37 ára sögu úrslitakeppninnar hefur það aðeins fjórum sinnum gerst að lið komi til baka eftir að hafa lent 2-0 undir í einvígi og farið áfram en aldrei í úrslitum. Grindavík 2017 er eina liðið sem hefur náð að jafna í úrslitaeinvígi eftir að hafa lent 2-0 undir. Sagan er því ekki á bandi Keflvíkinga. Leikur Keflavíkur og Þórs hefst klukkan 20:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun Domino's Körfuboltakvölds hefst klukkan 19:30 og leikurinn verður svo gerður upp í sama þætti. Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Dominos-deild karla Þór Þorlákshöfn Keflavík ÍF Tengdar fréttir Þrjú félög hafa unnið sinn fyrsta titil í Keflavík og Þór getur bæst í hópinn í kvöld Þór getur í kvöld orðið fjórða félagið til að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á gólfinu í íþróttahúsinu við Sunnubraut. 22. júní 2021 13:00 Miðakerfið hrundi á þriðja leik Keflavíkur og Þórs en Þórsarar eiga enn inni 52 miða Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur sent frá sér sérstaka yfirlýsingu vegna sölu miða á þriðja úrslitaleik Keflavíkur og Þórs frá Þorlákshöfn sem fer fram annað kvöld. 21. júní 2021 15:57 Lárus hrósar Styrmi og „litáíska ljúfmenninu“ Lárus Jónsson var í settinu í Domino's körfuboltakvöldi í gærkvöld eftir 88-83 sigur liðs hans Þórs Þorlákshafnar á Keflavík. Þór leiðir einvígið nú 2-0. 20. júní 2021 11:00 „Kannski ekki maðurinn sem við bjuggumst við að myndi skjóta á sig nýtt rassgat hérna“ Finnur Jónsson, aðstoðarþjálfari Keflavíkur, sagði að það hafi reynst liðinu erfitt að lenda undir í fyrri hálfleik gegn Þór Þorlákshöfn í kvöld og þurfa að klóra sig til baka. Keflavík er 2-0 undir í úrslitaeinvíginu og með bakið upp við vegg. 19. júní 2021 23:21 Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Keflavík 88-83 | Þórsarar stóðust áhlaupið og eru einum sigri frá titlinum Þór Þ. vann fimm stiga sigur á Keflavík, 88-83, í öðrum leik liðanna í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla í kvöld. Þórsarar geta tryggt sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil með sigri í þriðja leik liðanna í Keflavík á þriðjudaginn. 19. júní 2021 22:50 Ragnar Bragason: „Kannski erum við það vitlausir að trúa því að við getum unnið“ Ragnar Örn Bragason, leikmaður Þórs Þorlákshafnar, var valinn meður leiksins þegar liðið mætti Keflavík í fyrstu viðureign liðanna í úrslitaeinvígi Domino's deildar karla. Þórsarar unnu stórsigur, 91-73 og Ragnar Örn mætti í settið eftir leik. 17. júní 2021 17:31 Spilum bara körfubolta og útkljáum þetta á vellinum Lárus Jónsson var rólegheitin uppmáluð eftir sigur Þórs frá Þorlákshöfn gegn Keflavík í kvöld. Sigurinn þýðir að Þórsarar eru 1-0 yfir í einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik. 16. júní 2021 22:29 Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Þór Þ. 73-91 | Þórsarar með forystu í einvíginu eftir frábæran útisigur Þór frá Þorlákshöfn er komið í 1-0 í einvíginu við Keflavík um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik. Sigur þeirra var öruggur og deildarmeistarar Keflavíkur áttu einn sinn slakasta leik á tímabilinu. 16. júní 2021 22:40 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Sjá meira
Þórsarar eru 2-0 yfir í einvíginu og geta tryggt sér fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins með sigri í Keflavík í kvöld. Í samtali við Vísi segist Benedikt frekar hallast að sigri Keflavíkur í kvöld. Fyrir einvígið gegn Þór hafði Keflavík unnið átján leiki í röð en liðið er nú komið í afar erfiða stöðu. „Þetta er búið að vera svo ótrúlegt tímabil og ótrúlegir hlutir eins og að Þórsarar sópi Keflvíkingum gætu alveg gerst en ég er nú á því að Keflavík láti það ekki gerast. Ég spái allavega Keflavík sigri í kvöld,“ sagði Benedikt. Verða alltaf betri og betri Fyrir tímabilið voru ekki miklar væntingar gerðar til Þórsara og þeim var meðal annars spáð falli. En núna eru þeir bara einum sigri frá því að verða Íslandsmeistarar. „Þetta er alvöru lið sem er búið að vera gott í allan vetur. Þetta er vel samsett lið og þeir hafa ekki þurft að gera neinar breytingar. Þeir vaxa saman og verða alltaf betri og betri,“ sagði Benedikt. Þórsarar lentu í 2. sæti Domino's deildarinnar og eru nú bara einum sigri frá því að verða Íslandsmeistarar.vísir/Bára Hann segir að spilamennska Keflvíkinga í úrslitaeinvíginu hafi komið sér á óvart þótt liðið hafi ef til vill ekki náð alvöru flugi í úrslitakeppninni allri. „Ég átti von á sterkara Keflavíkurliði. Þegar maður horfði á þá í átta liða úrslitunum fannst manni þeir ekki spila sinn besta bolta en þeir voru aðeins betri í undanúrslitunum,“ sagði Benedikt en Keflavík vann bæði Tindastól og KR 3-0. Hafa mætt ofjörlum sínum „Maður hélt að þeir myndu bæta við sig snúning í úrslitunum en þeir virðast bara hafa mætt ofjörlum sínum í þessum tveimur leikjum. Keflavík vann báða leikina gegn Þór í deildakeppninni og urðu síðan langbesta lið landsins í langan tíma.“ Calvin Burks var besti leikmaður Keflavíkur í öðrum leiknum gegn Þór.vísir/bára Benedikt segir að það hafi ekki komið sér í opna spjöldu að Keflvíkingar skyldu tapa í Þorlákshöfn en tapið á heimavelli hafi komið á óvart. „Mér var brugðið hvernig þeir töpuðu fyrsta heimaleiknum í þessu einvígi. Það er ástæðan fyrir því að þeir eru ekkert í góðum málum í úrslitunum, að hafa tapað heimaleiknum og það svona illa. En ég var alveg viðbúinn því að Þór myndi vinna í Höfninni,“ sagði Benedikt. Sé ekkert taka þá úr jafnvægi Þórsarar stigið mörg og stór skref fram á við á tímabilinu en eiga eftir að taka það stærsta, vinna Keflvíkinga í þriðja sinn til að tryggja sér Íslandstitilinn í fyrsta sinn í sögunni. „Það er eitt að vinna leiki en annað að taka síðasta sigurinn sem þarf til að tryggja sér titilinn. Lið geta stundum stressast upp við það að hafa bikarinn í húsinu. En mér finnst þetta Þórsliðið vera svo gríðarlega einbeitt að ég sé ekkert taka þá úr jafnvægi. Þeir eru ofboðslega einbeittir og komu líka inn í einvígið með allt vinna að vinna en engu að tapa,“ sagði Benedikt. Græni drekinn hefur látið vel í sér heyra í úrslitakeppninni og verður vafalítið í stuði í Blue-höllinni í kvöld.vísir/bára „Á meðan er þessu öfugt farið hjá Keflavík. Það voru allir búnir að láta þá hafa titilinn og tala um að þeir væru langbestir. Eftir að þeir kláruðu Stjörnuna tók Lárus [Jónsson, þjálfari Þórs] það fram að þeir væru að fara að mæta langbesta liði landsins og svona. Keflavík hefur öllu að tapa en ekkert að vinna lengur og það er hugarástand sem er ekkert sérstaklega gott. Ég hef áhyggjur af Keflavík en neita að trúa því öðru en þeir vinni allavega einn leik,“ sagði Benedikt að lokum. Í 37 ára sögu úrslitakeppninnar hefur það aðeins fjórum sinnum gerst að lið komi til baka eftir að hafa lent 2-0 undir í einvígi og farið áfram en aldrei í úrslitum. Grindavík 2017 er eina liðið sem hefur náð að jafna í úrslitaeinvígi eftir að hafa lent 2-0 undir. Sagan er því ekki á bandi Keflvíkinga. Leikur Keflavíkur og Þórs hefst klukkan 20:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun Domino's Körfuboltakvölds hefst klukkan 19:30 og leikurinn verður svo gerður upp í sama þætti. Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Dominos-deild karla Þór Þorlákshöfn Keflavík ÍF Tengdar fréttir Þrjú félög hafa unnið sinn fyrsta titil í Keflavík og Þór getur bæst í hópinn í kvöld Þór getur í kvöld orðið fjórða félagið til að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á gólfinu í íþróttahúsinu við Sunnubraut. 22. júní 2021 13:00 Miðakerfið hrundi á þriðja leik Keflavíkur og Þórs en Þórsarar eiga enn inni 52 miða Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur sent frá sér sérstaka yfirlýsingu vegna sölu miða á þriðja úrslitaleik Keflavíkur og Þórs frá Þorlákshöfn sem fer fram annað kvöld. 21. júní 2021 15:57 Lárus hrósar Styrmi og „litáíska ljúfmenninu“ Lárus Jónsson var í settinu í Domino's körfuboltakvöldi í gærkvöld eftir 88-83 sigur liðs hans Þórs Þorlákshafnar á Keflavík. Þór leiðir einvígið nú 2-0. 20. júní 2021 11:00 „Kannski ekki maðurinn sem við bjuggumst við að myndi skjóta á sig nýtt rassgat hérna“ Finnur Jónsson, aðstoðarþjálfari Keflavíkur, sagði að það hafi reynst liðinu erfitt að lenda undir í fyrri hálfleik gegn Þór Þorlákshöfn í kvöld og þurfa að klóra sig til baka. Keflavík er 2-0 undir í úrslitaeinvíginu og með bakið upp við vegg. 19. júní 2021 23:21 Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Keflavík 88-83 | Þórsarar stóðust áhlaupið og eru einum sigri frá titlinum Þór Þ. vann fimm stiga sigur á Keflavík, 88-83, í öðrum leik liðanna í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla í kvöld. Þórsarar geta tryggt sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil með sigri í þriðja leik liðanna í Keflavík á þriðjudaginn. 19. júní 2021 22:50 Ragnar Bragason: „Kannski erum við það vitlausir að trúa því að við getum unnið“ Ragnar Örn Bragason, leikmaður Þórs Þorlákshafnar, var valinn meður leiksins þegar liðið mætti Keflavík í fyrstu viðureign liðanna í úrslitaeinvígi Domino's deildar karla. Þórsarar unnu stórsigur, 91-73 og Ragnar Örn mætti í settið eftir leik. 17. júní 2021 17:31 Spilum bara körfubolta og útkljáum þetta á vellinum Lárus Jónsson var rólegheitin uppmáluð eftir sigur Þórs frá Þorlákshöfn gegn Keflavík í kvöld. Sigurinn þýðir að Þórsarar eru 1-0 yfir í einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik. 16. júní 2021 22:29 Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Þór Þ. 73-91 | Þórsarar með forystu í einvíginu eftir frábæran útisigur Þór frá Þorlákshöfn er komið í 1-0 í einvíginu við Keflavík um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik. Sigur þeirra var öruggur og deildarmeistarar Keflavíkur áttu einn sinn slakasta leik á tímabilinu. 16. júní 2021 22:40 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Sjá meira
Þrjú félög hafa unnið sinn fyrsta titil í Keflavík og Þór getur bæst í hópinn í kvöld Þór getur í kvöld orðið fjórða félagið til að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á gólfinu í íþróttahúsinu við Sunnubraut. 22. júní 2021 13:00
Miðakerfið hrundi á þriðja leik Keflavíkur og Þórs en Þórsarar eiga enn inni 52 miða Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur sent frá sér sérstaka yfirlýsingu vegna sölu miða á þriðja úrslitaleik Keflavíkur og Þórs frá Þorlákshöfn sem fer fram annað kvöld. 21. júní 2021 15:57
Lárus hrósar Styrmi og „litáíska ljúfmenninu“ Lárus Jónsson var í settinu í Domino's körfuboltakvöldi í gærkvöld eftir 88-83 sigur liðs hans Þórs Þorlákshafnar á Keflavík. Þór leiðir einvígið nú 2-0. 20. júní 2021 11:00
„Kannski ekki maðurinn sem við bjuggumst við að myndi skjóta á sig nýtt rassgat hérna“ Finnur Jónsson, aðstoðarþjálfari Keflavíkur, sagði að það hafi reynst liðinu erfitt að lenda undir í fyrri hálfleik gegn Þór Þorlákshöfn í kvöld og þurfa að klóra sig til baka. Keflavík er 2-0 undir í úrslitaeinvíginu og með bakið upp við vegg. 19. júní 2021 23:21
Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Keflavík 88-83 | Þórsarar stóðust áhlaupið og eru einum sigri frá titlinum Þór Þ. vann fimm stiga sigur á Keflavík, 88-83, í öðrum leik liðanna í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla í kvöld. Þórsarar geta tryggt sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil með sigri í þriðja leik liðanna í Keflavík á þriðjudaginn. 19. júní 2021 22:50
Ragnar Bragason: „Kannski erum við það vitlausir að trúa því að við getum unnið“ Ragnar Örn Bragason, leikmaður Þórs Þorlákshafnar, var valinn meður leiksins þegar liðið mætti Keflavík í fyrstu viðureign liðanna í úrslitaeinvígi Domino's deildar karla. Þórsarar unnu stórsigur, 91-73 og Ragnar Örn mætti í settið eftir leik. 17. júní 2021 17:31
Spilum bara körfubolta og útkljáum þetta á vellinum Lárus Jónsson var rólegheitin uppmáluð eftir sigur Þórs frá Þorlákshöfn gegn Keflavík í kvöld. Sigurinn þýðir að Þórsarar eru 1-0 yfir í einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik. 16. júní 2021 22:29
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Þór Þ. 73-91 | Þórsarar með forystu í einvíginu eftir frábæran útisigur Þór frá Þorlákshöfn er komið í 1-0 í einvíginu við Keflavík um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik. Sigur þeirra var öruggur og deildarmeistarar Keflavíkur áttu einn sinn slakasta leik á tímabilinu. 16. júní 2021 22:40