Langaði í leiklist en fékk sig ekki til að opna dyrnar Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 18. júní 2021 11:30 Ólafur Þór Jóelsson hefur frætt landsmenn um tölvuleiki í meira en tvo áratugi. Snæbjörn talar við fólk Ólafur Þór Jóelsson er tölvuleikjanörd að atvinnu. Hann hefur verið þáttastjórnandi GameTíví frá því hann hóf göngu sína og nýtur þess enn í dag að spila tölvuleiki með vinum sínum, nú orðinn um fimmtugur.
Á sínum yngri árum lét Ólafur sig dreyma um að verða leikari eða uppistandari en lét aldrei verða af því að taka stökkið af alvöru. Í dag er hann þó nokkuð viss um að draumurinn hafi alltaf verið sá að geta glatt fólk og sent það frá sér brosandi út í daginn. Ólafur nýtur þess að bæta sjálfan sig, var virkur í Dale Carnagie þar sem hann lærði margt sem hjálpað hefur honum í gegnum lífið og telur að hann hafi val um að vera hamingjusamur. Til þess þurfi að slökkva á fullkomnunarsinnanum og vera bara ánægður með að vera bara með sex í öllu. Þessari innsýn á lífið og heilmiklu um tölvuleiki deilir Ólafur í nýjasta þættinum af Snæbjörn talar við fólk. Förum og felum líkið Ólaf langaði alltaf að prófa að verða leikari, og langaði alltaf frekar að vera á sviðinu þegar hann fór í leikhús. Eitt sinn þegar hann var nemandi í Verzlunarskóla Íslands ætlaði hann sér að mæta á fund nemendaleikfélagsins, en þegar á hólminn var komið fékk hann sjálfan sig ekki til að opna dyrnar að fundarherberginu, sneri heldur við og fór aftur heim. Í dag svalar hann leikþorstanum í gegnum GameTíví. Þessi reynsla af því að gugna á að gera eitthvað sem hann langaði virkilega að gera kenndi Ólafi að ráðfæra sig við gott fólk í kringum sig – og þá ekki bara já-fólkið sitt. „Mér fannst það oft þannig gott að tala við einhvern sem þekkir mig lítið, er ekki með mér í liði og bara getur sagt hlutina eins og þeir eru. [...] til dæmis eins og með foreldra mína, þegar ég er að ganga í gegnum eitthvað. [...] Ef að ég talaði við mömmu [...] hún hefði bara: „mamma, ég drap mann.“ [mamma svarar] „Jæja, förum og felum líkið.“ [...] og hún hefði bara alltaf séð mig í fyrsta sæti. [...] En síðan hef ég verið í öðrum vandamálum og talað við pabba, af því að hann var meira kannski – sagði hlutina eins og þeir voru og eru. Þá er þetta svolítið að maður verður að velja sér líka. Maður getur verið að velja sér alltaf að fara að tala við klappstýruna. „Heyrðu, er ég ekki bara góður?“ Það er alltaf til fullt af fólki sem segir bara „jú, þú ert geggjaður!“ En hvar ætlarðu að spegla þig?“ Meira en tuttugu ár Eftir að hafa lært af reynslunni í Verzló steig Ólafur það skref að skrá sig í áhugaleikfélagið Hugleik þar sem hann tók þátt í nokkrum uppfærslum, þar á meðal verkinu Sálir Jónanna sem fór í leikferðalag út fyrir landssteinana. Ólafur keypti tölvuleikjaverslun í Kringlunni sem ungur maður ásamt vini sem á endanum fór á hausinn. Eftir það ævintýri fékk hann starf hjá Senu við að vinna með tölvuleiki og hefur unnið hjá þeim alla tíð síðan. Stundum hefur Ólafur tekið að sér verkefni sem uppistandari. Enn þann dag í dag tekur hann við slíkum verkefnum, veislustjórn og uppistandi, meðfram sinni reglulegu vinnu. Í klippunni hér fyrir neðan má heyra söguna af því þegar Ólafur kynnti hugmynd um tölvuleikjasjónvarpsþætti til Popptíví sem hafði áður verið með stiklur úr tölvuleikjum til sýnis. Þar hóf þátturinn GameTíví göngu sína þar sem Ólafur og Sverrir Bergmann kynntu tölvuleiki fyrir landsmönnum. „Þetta eru orðin yfir tuttugu ár sem þátturinn hefur verið til í einhverri mynd. Yfirleitt vorum við ekki einu sinni að taka okkur frí.“ Klippa: Snæbjörn talar við fólk - Ólafur Þór Jóelsson Beint á eftir barnaefninu Sökum þess að þættirnir voru sýndir á þeim tíma sólarhrings sem börn höfðu aðgang að sjónvarpstækjum var þónokkuð um kvartanir yfir þættinum og fór að lokum svo að þátturinn færði sig yfir á Skjá Einn þar sem mikið var lagt í þættina. Í dag hefur þátturinn þróast yfir í það sem kallað er „Let's Play“ þar sem áhorfendur fylgjast með þáttastjórnendum spila leiki og deila reynslu sinni. Sem tölvuleikjaspekúlant reynir Ólafur að vera opinn fyrir sem flestum gerðum leikja. Þó eru auðvitað sumir leikir sem höfða frekar til hans en aðrir, og þá virðast sandkassaleikir [e. sandbox games] sem byggjast á opnu leikjasvæði og miklu frelsi henta Ólafi einstaklega illa. „Það er þetta eina sem ég nenni ekki að spila, þegar þetta er orðið of flókið. Og ég er að spila stundum með strákunum í GameTíví og þeir eru svo mikið inni í leikjum eins og 7 Days to Die, þar sem þú þarft að byggja eitthvað upp [...] svipað eins og Minecraft. [Það] kemur einhver zombie og gerir árás á allt og það þarf að fara að búa til eitthvað; finna tréð til að búa til girðingu og múrstein og – þetta er eitthvað algjört vesen! Og ég skil ekkert í þessu! Það eru svona 50 inventory slot og ég veit ekkert hvað þeir eru að gera! Og ég er bara vafrandi um tínandi túnfífla sem gera ekki neitt gagn, það er ekki einu sinni hægt að borða þá! Þarna er ég bara lost.“ Velur að vera hamingjusamur Ólafur var lengi vel að þjálfa ungmenni í Dale Carnagie. Þar getur hver komið inn með sínar eigin áskoranir í lífinu og hjálpar þjálfarinn þeim að takast á við þær. Sjálfur lærði Ólafur margt af sínum tíma í Dale Carnagie og slær á fordóma Snæbjörns – enda hafi hugmyndafræðin breyst mikið síðan Dale Carnagie kom fyrst til Íslands. Samtökin reyni að hjálpa fólki að bæta líðan sína og stöðu, auk þess að vísa fólki á réttan stað ef samtökin geta ekki veitt aðstoð sem hentar einstaklingunum. Ólafur Þór Jóelsson og Sverrir Bergmann. Snæbjörn spyr Ólaf hvort hann sé virkilega bara svona hress og jákvæður eins og hann kemur honum fyrir sjónir. „Já, mig langar að vera [jákvæður]. Og ekki bara langar að vera það, ég er það bara. Ég ætla bara að segja það, ég er það bara. Og ég vakna yfirleitt bara mjög ánægður með daginn. Ég vakna ekki eins og doktor Phil; „jæja, Ólafur, nú þarft þú að passa að endurtaka ekki mistök gærdagsins og passa að verða betri útgáfa – “ Ég bara er ekki þar. Ég bara vakna á morgnana eins og ég er, bara ríf mig á fætur og fæ mér þrjá kaffibolla og svo í vinnuna. [...] Ég er rosa ánægður! Ég er ánægður með vinnuna mína og hlutskipti mitt í lífinu, án þess að vera eitthvað að ofhugsa það. Svo fer ég bara í gegnum daginn með bros á vör. [...] Maður hefur bara val um að verða bara nokkuð hamingjusamur.“ Í dag er Ólafur að sjá um að selja fyrirtækjum skemmtipakka fyrir starfsmenn í samstarfi við Smárabíó. Skemmtisvæðið í Smáralindinni er undir hans yfirsýn og þar fær Ólafur nýjar áskoranir og tækifæri til að bregða sér í hin ýmsu gervi. Þegar hann horfir til baka hugsar Ólafur að hann hafi langað til að verða leikari eða uppistandari þegar hann var yngri til þess að geta látið fólki líða vel. Í sinni vinnu í dag nær hann að uppfylla þá þörf þar sem hann skemmtir öðrum með að spila leiki á Twitch eða með að peppa fólk upp áður en það spilar Lazer Tag. Takmarkinu er náð þegar fólk fer frá honum með bros á vör.
Snæbjörn talar við fólk Mest lesið Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Lífið Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Lífið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Lífið Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Tónlist Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Lífið Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Fleiri fréttir Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Sjá meira