Tvær lægðir stjórna veðrinu á fyrsta degi júnímánaðar Atli Ísleifsson skrifar 1. júní 2021 07:20 Reikna má með skúrum víða um land í dag. Vísir/Vilhelm Tvær lægðir stjórna veðrinu á landinu í dag. Önnur þeirra er um 300 kílómetra vestur af Reykjanesi á hægri leið norður, en henni fylgja suðlægar áttir, fimm til þrettán metrar á sekúndu, með skúrum um vestanvert landið.
Hin lægðin er um fjögur hundruð kílómetra suður af Hornafirði og hún er á allhraðri norðurleið. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að nú þegar sé orðið að mestu skýjað á austurhelmingi landsins og þar muni rigna víða í dag í fremur hægri austanátt. Þegar lægðin gangi yfir muni vindur snúast í suðvestan átta til fimmtán metra austantil á landinu, og það létti einnig til á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti á landinu verður yfirleitt á bilinu sjö til tólf stig í dag. „Á morgun er svo útlit fyrir hægum suðlægum áttum en strekkingssunnanátt austantil á landinu fram á annað kvöld. Áfram skúrir um landið vestanvert en samfelldari rigning á Suðausturlandi og úrkomulítið veður norðaustan- og austanlands. Hiti 7 til 16 stig á morgun, hlýjast norðaustantil.“ Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Sunnan 5-13 m/s. Skúrir um vestanvert landið, rigning suðaustanlands, en bjartviðri norðaustantil. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á fimmtudag: Suðaustan 3-10 m/s og bjartviðri, en gengur í suðaustan 8-15 m/s og þykknar upp sunnan- og vestanlands með lítilsháttar vætu þar um kvöldið. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Austurlandi. Á föstudag: Suðaustan 5-13 og víða dálítil rigning eða súld, en bjart með köflum á norðaustanverðu landinu. Hiti 9 til 19 stig, hlýjast fyrir norðan. Á laugardag: Fremur hæg suðaustlæg, skýjað og dálitlar skúrir á sunnanverðu landinu, en bjart með köflum norðantil. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðanlands. Á sunnudag (sjómannadagurinn) og mánudag: Fremur hæg breytileg átt. Skýjað með köflum og líkur á skúrum víða um land, einkum síðdegis. Hiti víða 10 til 15 stig yfir daginn.
Veður Mest lesið Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent Hleypti líklega óvart úr Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Fleiri fréttir Reykvíkingar fengu loksins tuttugu gráður Landshitametið ekki fallið en hitamet fallin á ákveðnum stöðvum „Raunhæfur möguleiki“ að hitamet falli á morgun Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veðurblíða víða um land Spá hitabylgju í byrjun næstu viku og allt að 29 stigum Hlýnar um helgina Skýjað með skúrum í höfuðborginni Rigning í Reykjavík en hlýtt og gott fyrir austan „Við sáum að veðrið var best fyrir austan þannig við drifum okkur austur“ Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Sjá meira