Veiði

Frábær veiði í Tungufljóti

Karl Lúðvíksson skrifar
Björn Hlynur með 92 sm sjóbirting

Sjóbirtingsveiðin hefur verið ágæt á þessu tímabili en á þessum árstíma er oft að róast á sjóbirtingsslóðum en það var ekki þannig hjá síðasta holli í Tungufljóti í Skaftártungu.

Björn Hlynur Pétursson fór ásamt félögum sínum í Tungufljótið og þeir voru að klára veiðar þar í gær. það verður að segjast að flesta veiðimenn dreymir um að lenda í þeirri veislu sem þeir félagar lentu í en alls lönduðu þeir 38 sjóbirtingum í öllum stærðum.

Björn sendi okkur smá pistil um ferðina:

"Hvað á maður að segja , Við félagarnir lögðum af stað 15 maí kl 08 á leið í Tungufljót í Skaftártungu , þegar við komum var tilhlökkunin mikil og veður aðstæður góðar. Við byrjum veiðar þann dag kl 15, skiptum okkur niður og byrjuðum á syðri hólma og unnum og niður að flugubökkum. Það voru að veiðast fiskar bæði í syðri hólma og á Flögubökkum. Mikil gleði átti sér stað um kvöldið þar sem veiðiveislan byrjaði af krafti en þá veiddust tólf fiskar  þann fyrsta dag og var sá stærsti 92 cm spikfeitur sjóbbi . 

Dagur tvö byrjaði nú heldur betur vel, það var bara kastað úti og streamerinn tekinn strax, svoleiðis gekk dagurinn nánast alveg fyrir sig allir sjóbbarnir yfir 60+. Næsta dag eftir morgun vaktina þá enduðum við á þessum hálfa heila hálfa í 38 birtingum og margir af þessum birtingum voru yfir 80 cm. Mest allir birtingarnir voru teknir á svarta streamera sem Jungleinthetrout ( maros hnýtti sá streamer heitir Black Death ) svo voru þeir að taka Black Ghost og Svarta Gullið sem Björn Hlynur hnýtti. Veiðihúsið hjá Fishpartner fær fullt hús stiga - , takk fyrir okkur".






×