Marine Le Pen sýknuð af ákæru um hatursorðræðu Atli Ísleifsson skrifar 4. maí 2021 14:34 Marine Le Pen mun líklega bjóða sig fram gegn Emmanuel Macron í frönsku forsetakosningunum á næsta ári. Hún segir málið sprottið undan rifjum pólitískra andstæðinga sinna. EPA Dómstóll í Frakklandi hefur sýknað Marine Le Pen, formann hægriöfgaflokksins Þjóðfylkingarinnar og fyrrverandi forsetaframbjóðanda af ákæru um hatursorðræðu.
Dómstóllinn í Nanterre, sem er að finna í úthverfi höfuðborgarinnar Parísar, taldi að Le Pen hafi ekki brotið lög þegar hún birti myndir af ódæðisverkum liðsmanna hryðjuverkasamtakanna ISIS á Twitter árið 2015. Le Pen birti myndirnar í kjölfar hryðjuverkaárásanna í París þar sem íslamskir hryðjuverkamenn drápu 130 manns í röð árása. Var um að ræða þrjár myndir sem Le Pen birti, þar á meðal mynd af líki bandaríska blaðamannsins James Foley sem hryðjuverkamenn höfðu afhöfðað. Le Pen hélt fram sakleysi sínu, en saksóknarar höfðu farið fram á að hún yrði dæmd til greiðslu fimm þúsund evra sektar, um 750 þúsund króna. Í ákæru var hún sökuð um að hafa brotið lög þar sem kveðið er á um að bannað sé að miðla ofbeldisskilaboðum sem talin séu geta skaðað mannlega reisn. Le Pen, sem mun líklega bjóða sig fram gegn Emmanuel Macron í frönsku forsetakosningunum á næsta ári, sagði dómsmálið sprottið undan rifjum pólitískra andstæðinga sinna.
Frakkland Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira