Norðanáttin gæti orðið þaulsetin næstu daga Atli Ísleifsson skrifar 29. apríl 2021 07:14 Hiti verður sjö til ellefu stig suðvestantil, en annars eitt til sjö stig. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir „aðgerðarlitlu veðri“ í dag með dálítilli vætu sunnan- og vestanlands. Víða verður bjart veður í öðrum landshlutum. Hiti verður sjö til ellefu stig suðvestantil, en annars eitt til sjö stig.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að á morgun, föstudag, kólni með norðlægum áttum og að þá sé útlit fyrir að norðanáttin gæti orðið þaulsetin næstu daga. „Búast má við éljum um landið norðan- og austanvert, en lengst af þurrt og bjart veður sunnan heiða. Viðbúið er að næturfrost verði á mest öllu landinu og hitinn yfir daginn 0 til 4 stig fyrir norðan og austan á meðan að á sunnanverðu landinu ætti hitinn að vera 4 til 8 stig.“ Spákort Veðurstofunnar fyrir hádegi í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Gengur í norðaustan 8-13 m/s. Dálítil él norðan- og austanlands, rigning með köflum um landið sunnanvert, einkum þó SA-lands, en annars þurrt. Hiti frá frostmarki fyrir norðan, upp í 8 stig með suðurströndinni. Á laugardag: Norðaustan 5-13 og dálítil él norðan- og austanlands, en bjartviðri sunnan heiða. Hiti 0 til 7 stig að deginum, mildast S-lands. Á sunnudag: Norðaustan og austan 3-10. Skýjað NA- og A-lands, en bjartviðri vestantil. Hiti breytist lítið. Á mánudag og þriðjudag: Norðlæg átt. Skýjað og úrkomulítið norðantil á landinu, hiti um frostmark. Þurrt og bjart sunnan- og vestanlands með hita að 9 stigum yfir daginn. Á miðvikudag: Útlit fyrir norðaustanátt með éljum fyrir norðan og austan, en bjartviðri annars staðar. Áfram fremur kalt, en hiti að 7 stigum SV-til að deginum.
Veður Mest lesið Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Gular veðurviðvaranir í kortunum Bjart og allt að tuttugu og fimm stig á Austurlandi Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Sólin sleikir landsmenn Sjá meira