Stórskotahríð Bayern en PSG yfir í hálfleik Anton Ingi Leifsson skrifar 7. apríl 2021 20:53 Kylian Mbappe fagnar fyrra marki sínu í kvöld. Alexander Hassenstein/Getty Images PSG er með 3-2 forystu fyrir síðari leikinn gegn Bayern Munchen í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Þrátt fyrir stórskotahríð Bæjara tókst þeim að tapa leiknum. Það voru ekki liðnar nema rúmar tvær mínútur er PSG komst yfir. Neymar kom boltanum þá á Kylian Mbappe og Frakkinn þrumaði boltanum, nánast í gegnum Manuel Neuer, og í netið. Á 28. mínútu var staðan orðinn 2-0. Eftir hornspyrnu vippaði Neymar boltanum aftur inn á teiginn, rangstöðugildra Bæjara klikkaði og varnarmaðurinn Marquinhos kom boltanum í netið. Hann þurfti þó að fara af velli skömmu síðar vegna meiðsla eftir magnaða frammistöðu fyrsta hálftímans. Marquinhos 7 clearances, 4 blocks and 1 goal in 28 minutes. absolutely outrageous.— Muhammad Butt (@muhammadbutt) April 7, 2021 Eric Maxim Choupo-Moting kom til Bayern í sumar frá PSG og hann byrjaði í stað Robert Lewandowski sem var frá vegna meiðsla. Hann þakkaði traustið með marki á 37. mínútu. PSG var 2-1 yfir í hálfleik en bæði lið fengu góð færi í upphafi síðari hálfleiks til að skora. Bæjarar fengu tvö en PSG eitt en markverðirnir voru vel á verði. Keylor Navas' last two Champions League games:◎ 9 saves vs. Barcelona◉ 9 saves vs. BayernAnd he's still got 30 minutes to play tonight. 😅 pic.twitter.com/HDZQD6SGup— Squawka Football (@Squawka) April 7, 2021 Heimamenn náðu að jafna metin eftir klukkutíma leik. Joshua Kimmich gaf þá frábæra aukaspyrnu inn á teiginn og þar var Thomas Muller mættur. Stangaði sá þýski boltann í netið og allt jafnt. Kylian Mbappe hélt áfram í síðari hálfleik og hann skoraði þriðja mark PSG á 68. mínútu er hann skoraði með frábæru skoti á nærstöngina. Bæjarar voru ekki hættir. Þeir fengu færi eftir færi til þess að jafna metin en allt kom fyrir ekki og lokatölur 2-3 sigur gestanna. Samkvæmt Livescore átti Bayern 23 skot í átt að marki PSG en PSG skaut sex sinnum í átt að marki Bæjara og skoraði þrjú mörk. Síðari leikur liðanna fer fram í París í næstu viku. Meistaradeild Evrópu
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti