Norðanáttin ríkjandi á landinu Atli Ísleifsson skrifar 29. mars 2021 06:45 Á morgun er útlit fyrir mun hægari breytileg átt og þurrviðri víðast hver svo snýst smám saman í vestanátt og hlýnar. Vísir/Vilhelm Norðanáttin verður ríkjandi á landinu í dag þar sem reikna má með éljagangi og skafrenningi norðan- og austantil fram yfir hádegi. Má reikna með átta til fimmtán metrum á sekúndu í dag og frosti yfirleitt núll til fimm stig.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar kemur fram að á Austfjörðum hvessi heldur af norðvestri síðar í dag og gæti veður þar verið byljótt fram á nótt. „Á morgun er útlit fyrir mun hægari breytileg átt og þurrviðri víðast hver svo snýst smám saman í vestanátt og hlýnar. Á miðvikudag og fimmtudag er áfram útlit fyrir vestanátt og milt loft í kjölfar víðáttumikillar hæðar suður af landinu. Þá er líklegt að þokuloft eða súld geri vart við sig við vesturströndina en bjartviðri austantil. Langtímaspár gera svo ráð fyrir snúningi um páskana með norðanátt og miklum kulda, en þær spár eiga eftir að þróast þegar líður á vikuna.“ Spákortið fyrir klukkan 14 eins og það leit út í morgun.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðvestlæg eða breytileg átt 3-8 og víða léttskýjað, en stöku él við norðurströndina og líkur á þokulofti vestantil. Hiti kringum frostmark síðdegis, annars 0 til 7 stiga frost. Á miðvikudag: Vaxandi vestanátt og þykknar upp, 10-18 m/s seinni partinn með lítilsháttar slyddu eða rigningu N- og V-lands. Hlýnandi veður. Á fimmtudag (skírdagur): Vestan 5-13 m/s, skýjað og dálítil súld vestast, en léttskýjað á A-verðu landinu. Hiti 2 til 8 stig yfir daginn. Á föstudag (föstudagurinn langi): Hvöss vestanátt og súld með köflum V-lands, en þurrt og bjart veður eystra. Hiti 5 til 10 stig. Á laugardag: Snýst í norðanátt 8-15 m/s með éljum N- og A-lands og ört kólnandi veðri. Talsvert frost um kvöldið. Á sunnudag (páskadagur): Útlit fyrir norðan hvassviðri með éljum N- og A-lands en bjartiviðri í öðrum landshlutum. Áfram talsvert frost.
Veður Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira